Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Síða 1
FJflRDflB
mí pósturtnn
1. TBL. — 1. ARG.
29. SEPT. 1983
Gamall og nýr tími
Hér birtast tvær myndir teknar með áratugamillibili. Er gaman að sjá
hvernig svipmótið hefur breyst í tirnans rás.
Sú eldri, birstist í Sögu Hafnarfjarðar 1908-1983 en fyrsta bindi hennar
er væntanlegt um mánaðarmótin sept./okt. Með ritun sögunnar hefur
höfundurinn, Ásgeir Guðmundsson, skráð sögu bæjarins frá fyrstu tíð til
vorra tíma. Saga Hafnarfjarðar 1908-1983 hefur að geyma óhemjumikinn
fróðleik um Hafnarfjörð og Hafnfirðinga í fortíð og nútíð.
Nýtt blað
á gömlum grunni
Fjarðarpósturinn, sem nú kemur í fyrsta sinn fyrir augu Hafn-
firðinga, er vissulega nýtt blað, en byggist á gömlum grunni eigi að
síður. Útgefendur Fjarðarfrétta hafa lengi velt fyrir sér þeim mögu-
leika að gefa út blað sem kemur reglulega út, og með Fjarðarpóst-
inum verður sú hugmynd vonandi að veruleika.
Fjarðarpósturinn mun koma út hálfsmánaðarlega, annan hvern
fimmtudag. Blaðið verður fréttablað með svipuðu sniði og Fjarðar-
fréttir hafa verið, að því undanskildu, að brotið er minna og meira
er lagt upp úr stuttum fréttum og myndefni. Nokkrir fastir þættir
verða í blaðinu, flestir þekktir úr Fjarðarfréttum, svo sem
,,Bæjarmálapunktar“, „Bæjarbúar spyrja“, o.fl.
Fjarðarpósturinn mun, eins og Fjarðarfréttir, verða óháður
stjórnmálaöflunum í bænum. Markmið blaðsins er fyrst og fremst
að fjalla um hafnfirsk málefni og taka þátt í því að styrkja stöðu
Hafnarfjarðar sem sjálfstæðs bæjarfélags. Jafnframt er blaðið
opinn vettvangur fyrir þá sem vilja leggja orð í belg um bæjarmál-
efnin. Þá máekki gleyma hlutverki blaðsins sem miðils fyrir þá sem
vilja auglýsa vöru og þjónustu í bænum. Þátttaka þeirra sem sjá sér
hag í því að auglýsa í blaðinu, gerir okkur jafnframt kleift að dreifa
því ókeypis til bæjarbúa.
Eins og fram kom hér að ofan eru útgefendur Fjarðarpóstsins
þeir sömu og Fjarðarfrétta: Guðmundur Sveinsson, Ellert Borgar
Þorvaldsson og Rúnar Brynjólfsson. Það er von okkar, sem gefum
nú út þetta nýja blað, að það fái ekki síðri viðtökur meðal Hafnfirð-
inga en Fjarðarfréttir. Fari svo, verður Fjarðarpósturinn sönnun
þess að útgáfa á óháðu fréttablaði með reglulega útgáfutíðni, á
fullan rétt á sér í Hafnarfirði.
Fjarðarfréttir
Þótt útgefendur Fjarðarfrétta hefji nú útgáfu á nýju blaði, munu
Fjarðarfréttir samt sem áður koma áfram út öðru hverju. Næsta
tölublað þeirra er jólablaðið, sem reiknað er með að komi út í
byrjun desember. Undirbúningur efnis í það er þegar hafinn, og eru
þeir sem vilja koma á frainfæri efni eða ábendingum um efni
vinsamlega beðnir um að hafa samband við útgefendur.
Sýning á málverkagjöf
Eins og bæjarbúum er í fersku
minni, gáfu hjónin lngibjörg
Sigurjónsdóttir og Sverrir Magnús-
sson Hafnarfjarðarbæ stórgjöf á
75 ára afmæli bæjarins þ. 4. júní sl.
Var þar um að ræða gjöf á fast-
eigninni nr. 34 við Strandgötu,
málverkasafn og bækur. Gjöfinni
skal varið til stofnunar og starf-
rækslu listar- og menningarmið-
stöðvar, er beri heitið „HAFNAR-
BORG“.
Bæjarstjórn hefur í samræmi við
eitt ákvæði gjafabréfsins skipað í
stjórn „HAFNARBORGAR".
Auk Sverris Magnússonar, sem til-
nefndureraf gefendum í stjórnina,
bæjastjóra, Einars I. Halldórsson-
ar, eru í stjórninni bæjarfulltrú-
arnir Ellert Borgar Þorvaldssson
og Rannveig Traustadóttir.
Bæjarstjórn hefur nú ákveðið,
að standa fyrir sýningu á málverka-
gjöf þeirra hjóna. Sýning þessi
verður í Háholti og verður hún
formlega opnuð laugardaginn 15.
október nk. Sýningin mun standa
til 23. október.
Nánari upplýsingar um sýning-
una verða í næsta blaði.
A umferðarári
Með lækkandi sól og skóla-
byrjun eykst hætta á umferðar-
slysum. í skólanum fer fram
umferöarkennsla og áhersla er
lögð á að yngstu nemendurnir,
þeir sem eru að hefja sína skóla-
göngu, fái leiðsögn um þar sem
varast verður í umferðinni.
Lögreglan hefur komið í skól-
ana og farið verður með börn-
unum í gönguferðir um ná-
grennið og bréf eru send til for-
eldra þar sem minnt er á að
brýna fyrir börnunum varúð í
umferðinni.
Þessi mál varða hvern einasta
mann og aldrei verður lögð
nógu rík áhersla á tillitssemi og
varúð þeirra sem stjórna öku-
tækjum, hverju nafni sem þau
nefnast. Setjum okkur það
markmið á umferðarári að hver
og einn verði þátttakandi í því
að auka umferðarmenningu
okkar, og tillitsseini og varkárni
sitji ávallt í fyrirrúmi hjá gang-
andi og akandi vegfarendum.