Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 14
14
FJARÐARPÓSTURINN
— FYRIRTÆKI í FIRDINUM —
Magafylli og menning
Niðri við höfnina stendur hús,
sem þekkt var undir nafninu
Póló—kaffi. Heitir þar nú Fjarðar-
kaffi og hafa orðið mannaskipti á
rekstrinum.
Hjónin Hilmar Kristenson og
Helga Gestsdóttir hafa nú tekið við
rekstrinum. Er hann með svipuðu
sniði og áður þ.e. þar er seldur
matur og kaffi. Þau hjónin hafa þó
gert breytingu á opnunartíma, því
nú er einnig opið á laugardögum og
sunnudögum.
Á boðstólum er alls kyns heim-
ilismatur og bakkamatur fyrir
fyrirtæki og vinnuhópa. Alltaf er
nóg á könnunni og með kaffinu,
bæði smurt brauð og sætabrauð.
Eins er hægt að kaupa öl og sæl-
gæti. Þarna getur fólk einnig orðið
menningar aðnjótandi. þar sem
málverk og teikningar eftir hinn
kunna hafnfirska listamann, Svein
Björnsson, hanga þar á veggjum.
Hilmar sagðist einnig hafa hug á
að leigja út húsnæðið á kvöldin og
um helgar. Sagði hann það einkar
hentugt fyrir smáhópa, t.d. til
fundarhalda.
Sögðust þau hjón vonast til að
Hafnfirðingar notfærðu sér að fá
bæði magafylli og menningu á einu
bretti hjá þeim.
Fjarðarpósturinn óska þeim til
hamingju með reksturinn og alls
góðs í framtíðinni.
Nýtt fyrirtæki á gömlum merg
Þeir sem óku niður eða upp Reykjavíkurveginn hér áður komust ekki
hjá því að sjá veitingastaðinn Skútuna. Nú hefur nafnið verið flutt um set
og prýðir nú nýbyggingu að Dalshrauni 15. Þar hefur Birgir Pálsson, mat-
reiðslumeistari hafið rekstur á nýju fyrirtæki, veitingaeldhúsi, sem ber
nafnið Skútan. Birgir er Hafnfirðingum kunnur af rekstri veitingastaðar-
ins, sem bar sama nafn og af rckstri skemmtistaðarins Skiphóls.
Nú hefur hann söðlað um, og býður upp á nýjung í Firðinum. í veitinga-
eldhúsinu er á boðstólum veislumatur fyrir alls kyns samkvæmi. Má þar
nefna kalt borð, kabarett, heitan mat og pottrétti. Eins eru á boðstólum
matarbakkar fyrir fyrirtæki og fleira.
Fjarðarpósturinn óskar Birgi til hamingju með nýja fyrirtækið og velfarn-
aðar í framtíðinni.
Matur og málverk
Skemmtileg nýjung var tekin upp í versluninni Hvammseli eigi alls fyrir
löngu.
Á veggjum þar hanga mjög skemmtileg málverk af húsum í Hafnarfirði
ásamt fleirum myndum.
Húsamyndirnar hefur Guðmundur Ómar Svavarsson málað. Er það
skemmtileg nýbreytni að geta farið á málverkasýningu um leið og innkaup-
in eru gerð.
Utandyra hefur annar hafnfirskur listamaður,, Jón Þór Gíslason, prýtt
vegg verslunarinnar.
Mættu fleiri fara að dæmi Karls eiganda Hvammsels hvað þetta varðar.
Clæsileg sérverslun
Verslunin MYNDIN að Dals-
hrauni 13 hefur sannarlega farið
myndarlega af stað. Verslunin er í
afar rúmgóðu húsnæði þar sem
,,plaköt“ hurða- og veggmyndir í
miklu úrvali njóta sín mjög og er
ávallt ánægjulegt að koma í fyrir-
tæki þar sem vel er vandað til inn-
réttinga og uppsetningar og hvort
tveggja hefur tekist mjög vel til hjá
MYNDINNI.
Eigendur verslunarinnar, þeir
Guðjón Guðmundsson og Jó-
hannes Norðfjörð og fjölskyldur
þeirra, eru umboðsaðilar fyrir
sænskt fyrirtæki, Scandercor, eitt
það stærsta í ,,plakat“gerð í heim-
inum. Mjög mikið úrval getur að
líta í versluninni og geta viðskipta-
vinir valið úr yfir 500 gerðum
plakata og mynda.
Margt annað fæst í MYND-
INNI. Má þar nefna álramma, sem
mjög eru vinsælir um þessar
mundir og skemmtileg gjafakort,
sem ramma má síðan inn i ramma
frá MYNDINNI.
Sömu aðilar reka heildsölu með
gjafavöru ýmiss konar, búsáhöld
úr tré, ljós og hillur. Nefnist það
fyrirtæki JÓGI.
Þeir Jóhannes og Guðjón segjast
mjög ánægðir með þær viðtökur
sem verslunin hefur fengið. Margir
viðskiptavina koma langt að enda
er verslunin einn sú stærsta sinnar
tegundar hérlendis.
FJARÐARPÓSTURINN óskar
eigendum til hamingju með þessa
glæsilegu verslun og alls velfarn-
aðar í framtíðinni.