Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 4
4
FJARÐARPÓSTURINN
— 2Á TALI-
í þessum þætti, „2 á tali“, leitar Fjarðarpósturinn til tveggja aðila í bæn-
um og leggur fyrir þá spurningu varðandi bæjarmálefnin. í þetta sinn eru
það þeir Vilhjálmur Skúlason, formaður bæjarráðs og fulltrúi Félgas
óháðra borgara í bæjarstjórn, og Markús Á. Einarsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins, sem svara spurningunni: „Hvað er þér efst í huga
varðandi bæjarmálefnin á síðari hluta fjárhagsársins?“
„Fjármál bæjarins
eru mér ævinlega
efst í huga"
Efst í huga nú í þeirri gifurlegu
verðbólgu, sem hér gefur geisað og
ævinlega verður meiri en áætlanir
gera ráð fyrir, er að sjálfsögðu fjár-
mál bæjarfélagsins og stofnana
þess, því fari þau úr skorðum fer
allt annað í óefni. Á þeim byggist,
að þær fjölmörgu, nauðsynlegu
framkvæmdir, sem bæjarfélagið
hefur ráðist í, hafi eðlilegan fram-
gang. Þetta erefstíhuga mínum nú
og ævinlega.
Tvö önnurmálefni, sem ofarlega
eru í huga þessa stundina, annað
sem veldur miklum áhyggjum og
hitt, sem veldur huglægri ánægju,
eru fjármál Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, sem ég óttast mjög að séu
þegar komin í óefni með þeim
alvarlegu afleiðingum, sem það
hlýtur að hafa í för með sér. Hitt er
sá undirbúningur, sem nú er á loka-
Vilhjálmur Skúlason, form. bæjar-
ráðs.
stigi, að samningi milli bæjarfél-
agsins og Eimskipafélags íslands
um uppbyggingu suðurhafnar-
innar, en framkvæmd hans mun
renna enn einni stoð undir atvinnu-
líf í Hafnarfirði.
Lóðir fyrir íbúðarhús.
Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar
nokkrar lóðir fyrir íbúðarhús í Setbergi, á
Hvaleyrarholti, við Klettagötu og Ölduslóð.
Um er að ræða lóðir fyrir einbýlishús, rað-
hús og parhús og eru þær nú þegar bygg-
ingarhæfar.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, þ.m.t.
um gjöld og skilmála.
Umsóknum skal skila á sama stað eigi
síðar en 11. okt. n.k.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Bæjarverkfræðingur
„við þurfum öll að taka
höndum saman gegn
fjárhagsvandanum"
Öll þurfum við nú að takast á við
verulega kjaraskerðingu meðan
reynt er að ná tökum á miklum
efnahagsvanda, vonandi með
árangri. Bæjarfélagið verður fyrir
tilsvarandi kjararýrnun og það
kreppir því að.
í fyrsta lagi innheimtast útsvör
og önnur opinber gjöld mun lakar
en áður, því að fjölskyldufólk á
mjög erfitt með að láta enda ná
saman.
í öðru lagi hefur áhugi á hús-
byggingum augljóslega minnkað
mjög á síðustu mánuðum. í vor var
úthlutað rúmlega 60 einbýlishúsa-
lóðum á Setbergi og voru umsækj-
endur um 150 talsins. Nú er svo
komið að telja verður gott ef byggt
verður á rúmum helmingi þessara
lóða og gatnagerðargjöld greidd.
Þetta þýðir einfaldlega að um 12
milljónir króna kann að vanta á til
greiðslu á holræsa- og vegafram-
kvæmdum sem ráðist var í í vor.
í þriðja lagi reynast nær allar
framkvæmdir dýrari en í upphafi
var áætlað. Það hefur því orðið að
draga úr þeim. Endurbygging
Reykjavikurvegar átti að ná að
Flatahrauni en nær rétt suður fyrir
gatnamót Hjallabrautar. Leik-
skólabygging í Suðurbæ gengur
hægar en áætlað var og fleira mætti
telja.
Það urðu mér vonbrigði, er
bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
sýndu á miðju sumri það fádæma
ábyrgðarleysi að lýsa því yfir í
bókun, að þeir myndu greiða
atkvæði gegn sérhverri hækkun á
gjaldskrá opinberrar þjónustu sem
Markús Á. Einarsson.
kæmi til afgreiðslu í bæjarstjórn
meðan kaupgjald væri bundið í
landinu. „Allt annað væri órök-
rétt, ósanngjarnt og siðlaust“,
sögðu þeir. Ef allir bæjarfulltrúar
lokuðu augum fyrir óþægilegum
staðreyndum með þessum hætti,
liði ekki á löngu þar til bæjarsjóður
tæmdist gjörsamlega. Hverjum
dettur í hug að bæjarsjóður
Hafnarfjarðar geti einn staðið
undir þeim verðhækkunum sem
berast hvarvetna að úr þjóðfélag-
inu? Ég trúi því að þessi bókun
þeirra Alþýðuflokksmanna hafi
verið gerð í fljótræði, enda ýmsar
hækkanir afráðnar þegar við gerð
fjárhagsáætlunar síðastliðinn
vetur.
Mér er nú efst í huga að allir
bæjarfulltrúar, jafnt í meirihluta
sem minnihluta taki höndum
saman og ráðist gegn fjárhagsvand-
anum með ráðdeild. Nú verður að
gæta aðhalds, en jafnframt halda
uppi nauðsynlegri þjónustu við
bæjarbúa, þótt á móti blási. Það er
skylda okkar.
SEIKO
SEIKO úr og klukkur í miklu úrvali
SEIKO - gæði
SEIKO - ending
SEIKO - þjónustan
í Hafnarfirði
V.
J
TRYGGVI OLAFSSON úrsmiður
Strandgötu 25 - sími 53530