Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 10
10
FJARÐARPÓSTURINN
viðbygging við Sólvang
I sumar var hafist handa við
viðbyggingu við Sólvang, þar sem
Heilsugæsla Hafnarfjarðar verður
til húsa, auk þess sem bætt verður
úr brýnni húsnæðisþörf sjúkra-
hússins.
Heildarstærð viðbyggingarinnar
er 1.888m2, á 1. hæð 1.437m2 og í
kjallara451m2. Viðbygging þessier
tvö hús, sem eru samtengd. í öðru
húsinu verður heilsugæslan með
Matthías Bjarnason, heilbrigðis-
ráðherra tók fyrstu skóflustungu
að viðbyggingu við Sólvang.
rými fyrir heimilislækna, sérfræð-
inga, hjúkrunarfræðinga, heil-
brigðisfulltrúa og öll helstu rými
þeirra vegna. í hinu húsinu er
anddyri, forsalur, rannsóknar-
stofa, röntgen, afgreiðsla og rit-
arar, skjalageymsla, eldhús,
geymslur, vörumóttaka og af-
greiðsla matar og borðsalur. í kjall-
ara verður þvottahús, fataskápar
starfsfólks, geymslur og tækjarými,
en aðstaða þessi er sameiginleg
fyrir Sólvang og heilsugæsluna.
Að auki eru áformaðar gagngerar
breytingar á 1. hæð gamla Sól-
vangs, einkum norðurhlutanum,
þar sem nú eru eldhús og þvotta-
hús, sem færast í nýbygginguna.
Á 1. hæð gamla Sólvangs, þar
sem nú eru eldhús og þvottahús,
verður iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun,
dagvistun og hvíldarherbergi.
Á þaki hússins verður nokkurt
útirými, sem tengist 2. hæð Sól-
vangs og við það aftur blómskáli.
Gert er ráð fyrir að hluti hins
nýja húss geti síðar stækkað og
hækkað um 2 hæðir, þar sem yrðu
nýjar legudeildir.
Byggingakostnaður er nú áætl-
aður 33.3 millj. kr. sem skiptist
milli ríkissjóðs og bæjarsjóðs skv.
lögum. Bæjarstjórn hefur sam-
þykkt sérstaka byggingaáætlun
sem miðar við að fyrra húsið verði
tekið í notkun í lok næsta árs og
síðara húsið 1985. Áform þessi eru
háð því að ríkissjóður fjármagni
sinn hluta kostnaðarins á bygg-
ingartímanum.
/
■ •lí'ýv
*V“>
Gluggar
H-k •. •,
Smíðum glugga og hurðir. Vönduð vinna
á hagkvæmu verði. Gerum tilboð og
veitum nánari upplýsingar, ef óskað er.
Hafnarfirði, sími 53284.
? • ^7 -7 1
ó ■■ '
Eiríkur Pálsson, fv. forstjóri flutti snjallt og skondið ávarp í tilefni fyrstu
skóflustungu að viðbyggingu Sólvangs.
REYKJAVÍKURVEGI 66 — SÍMI 54100
Einstaklingsrúm
Breidd: 85 cm -90 cm-105 cm -.110 cm og 120 cm
Njóttu svefns í rúmi frá NÝFORM