Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 2
2
FJARÐARPÓSTURINN
??? BÆJARBÚAR SPYRJA ???
„Hvernig framfylgir lögreglan
banni við hundahaldi?"
„Hundóánægður“ spyr: „Hund-
um fer greinilega fjölgandi á ný í
bænum. Hvað hefur lögreglan að-
hafst til þess að framfylgja lögum
um bann við hundum í Hafnar-
firði?“
Steingrímur Atlason, yfirlög-
regluþjónn:
„Sannast sagna hefur lítið verið
gert, en þegar kvartanir hafa borist
hefur verið reynt að leysa málin á
sem liðlegastan hátt. Ef hundar
ganga lausir hefur verið farið með
þá á dýraspítala og þar eru þeir
geymdir þar til eigendur þeirra hafa
komið þeim fyrir í öðrum byggðar-
lögum, þar sem hundahald er leyft.
Að öðrum kosti eru hundarnir af-
Iífaðir“.
„Þarf bærinn ekki að
halda við eignum sínum?"
íbúi við Flatahraun spyr hvort
bæjaryfirvöldum beri ekki skylda
til að sinna viðhaldi eigna sinna. Á
sama tíma og bæjarbúar eru
áminntir um að fegra og snyrta í
kringum sig þá eru sumar stofnanir
bæjarins í algerri vanhirðu. Má þar
nefna verkmenntahús Iðnskólans
sem dæmi. „Hver eru áform
bæjarins varðandi viðhald þessa
húss?“ spyr íbúi við Flatahraun.
Fræðslustjóri, Ellert Borgar:
„Bæjaryfirvöld leitast við eftir
fremsta megni að viðhalda eignum
sínum. Hvað varðar Iðnskólann á
Flatahrauni er þar unnið enn að
stofnframkvæmdum og því minna
fjármagn til viðhalds en ella.
Það skal þó viðurkennt að þörf
væri á að mála verkdeildarhúsið
utan og standa vonir til að það
verði gert næsta sumar“.
— KYNNINC Á NEFNDUM —
Fræðsluráð Hafnarfjarðar
Fræðsluráð Hafnarfjarðar: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Gunnar Linnet, Páll
Daníelsson, formaður, Hermann Þórðarson og Ágúst Karlsson.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar fer í
umboði bæjarstjórnar með málefni
grunnskóla bæjarins, Flensborgar-
skóla, Tónlistarskólans og Náms-
flokka Hafnarfjarðar.
Fræðsluráði ber að sjá svo um,
að skólaskyld börn njóti lögboð-
innar fræðslu og hljóti sem jöfnust
tækifæri til náms.
Fræðsluráð fjallar um umsóknir
um skólastjóra — og kennarastöð-
ur og sendir menntamálaráðuneyt-
inu tillögur og umsögn um val um-
sækjenda. Þá fjallar ráðið einnig
um umsóknir um önnur störf en
kennslu við skóla bæjarins.
Fiæósiuiau skal sjá um að
jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi
skólahúsnæði og að það henti
skólastarfinu sem best.
Fræðsluráð hefur i umboði
bæjarstjórnar yfirumsjón með
fjárreiðum skólanna og gerir í því
sambandi tillögur til fjárhagsáætl-
unar bæjarins ár hvert.
í fræðsluráð er kosið hlutfalls-
kosningu af bæjarstjórn. í ráðinu
eru nú:
Páll V. Daníelsson, form.
Hermann Þórðarsson
Gunnar Linnet
Ágúst Karlsson og
Jóna Ósk Guðjónsdóttir.
Heímilislæknír — sérfræðingur?
Bæjarbúi spyr:
„Mér finnst gæta of mikillar
tregðu hjá mörgum heimilislækn-
um að vísa sjúklingum frá sér til
sérfræðinga í hinum ýmsu sjúk-
dómstilfellum. Hvaða reglur hafa
læknar um slíkar tilvísanir?"
Dr. Jóhann Ágúst Sigurðsson,
héraðslœknir:
„Læknar ætlast til þes að fólk
beri upp sín vandamál við okkur.
Siðan ræðst það hvort heimilis-
læknir getur sinnt þessu vandamáli
eða ekki. Telji heimilislæknir sig
ekki geta það, þá vísar hann frá séi
til annarra sérfræðinga. Með sér-
menntun í heimilislækningum ei
unnt að sinna mun fleiri vanda-
málum en áður var.
Kirkjubygging
víðistaðasóknar
Kirkjubygging Víðistaðasóknar er nú óðum að rísa. Verður það hið
fegursta mannvirki þar sem fram fer margháttuð menningarstarfsemi.
Byggingin er sérstaklega hönnuð þannig að auk kirkjulegra athafna verði
þar fjölbreytt félagsstarf og sérstakt tillit tekið til hljómburðar með hljóm-
leikahald í huga. Styrkir eru af skornum skammti til kirkjubygginga og
verður söfnuðurinn að fjármagna stærstan hluta bygginarinnar.
Um þessar mundir er unnið af fullum krafti, en alltaf vantar fleiri
hendur við mótahreinsun. Laugardags- og sunnudagsmorgnaer tilvalið að
le8&ja hönd á plóginn og taka til hendinni við byggingu Víðistaðakirkju.