Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 6
6 FJARÐARPÓSTURINN Viðurkenningar fyrir fegrun og snyrtimennsku 9. september sl. veitti Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar sínar áriegu viður- kenningar í hófi á Gaflinum. Að þessu sinni voru verðlaunaðar 5 hús og lóðir. Þá fékk Steinþór Einarsson sérstaka viðurkenningu fyrir frábæran dugnað og smekkvísi að fegrun kaupstaðarins, en Steinþór er garðyrkju- stjóri Hafnarfjarðar. Um leið og Fjarðarpósturinn óskar verðlaunahöf- unum til hamingju birtast hér myndir af verðlaunahúsunum og umhverfi þeirra. Helga Stefánsdóttir og Gunnar Hjaltalin, Sævangi 44, fengu viðurkenn- ingu fyrir fegrun og umhverfisvernd. Elsa Aðalsteinsdóttir og Ingvar Árnason eigendur Kaffistofunnar Kæn- unnar fengu viðurkenningu fyrir snyrtimennsku innan dyra og utan. Stefán Vilhjálmsson byggingarmeistari, Breiðvangi, 1, fékk viðkenningu fyrir eftirtektarverða snyrtimennsku við hús í byggingu að Hjallahrauni 15. Verðlaunahafarnir (frá vinstri): Þorvaldur Guðmundsson, Ingvar Árnason, Elsa Aðalsteinsdóttir, Stefán Vilhjálmssson, Steinþór Einars- son, Guðlaug Karlsdóttir, Sæmundur Þórðarson, Helga Stefánsdóttir og Gunnar Hjaltalín. Guðlaug Karlsdóttir og Sæmundur Þórðarson, Merkurgötu 3, fengu viðurkenningu fyrir snyrtimennsku og viðhald á eldra húsi. Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri og eigandi ALI-hússins, Dalshrauni 9b, fékk viðurkenningu fyrir fegrun og snyTtimennsku við iðnaðar- húsnæði.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.