Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Qupperneq 12
12
FJARÐARPÓSTURINN
—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—
Góð byrjun
handboltakappanna
Tekst Dadú að leiða FH til sigurs í íslandsmótinu?
Nú er handknattleiksvertíðin
hafin og I. deildarleikmenn FH og
Hauka komnir á fulla ferð. Bæði
iiðin haffa búið sig vel undir Is-
landsmótið og önnur verkefni
vetrarins og vonandi verður upp-
skera þeirra góð að þessu sinni.
FH-ingar hafa farið virkilega vel af
stað í haust. Tveir meistaratitlar
eru þegar komir í hús og glæsileg
tilþrif hafa sést til leikmanna liðsins
i byrjun Islandsmótsins.
Auk mótanna hér heima taka
FH-ingar þátt í Evrópukeppni.
Liðið komst þar í 2. umferð án
keppni, en bráðlega verður dregið
um hvaða lið veðrur mótherji FH
næst, en 2. umferð verður leikin í
byrjun nóvember.
Haukar leika nú í I.deild á ný
eftir tveggja ára hlé. Vafalaust
verður aðalkeppikefli félagsins því
að halda sæti sínu í deildinni og
ætti að takast það, enda eru í liðinu
margir þrautreyndir kappar.
Um leið og við birtum hér skrá
yfir næstu leiki Hafnarfjarðarlið-
anna, hvetjum við bæjarbúa til að
mæta á leikina og styðja vel við
bakið á sínum mönnum.
Reykjavík, 9. október: Valur —
Haukar
Akureyri, 14. október: KA —
Haukar
Hafnarfj., 15. október: FH —
Víkingur
Reykjavík, 1. nóvember: KR — FH
Hafnarfj, 4. nóvember: Haukar —
Stjarnan
Hafnarfj. 5. nóvember: FH — KA
Hafnarfj., 9. nóvember: FH —
Valur
Reykjavik, 13. nóvember: Þróttur
— Haukar.
Útsvör — aðstöðugjöld
3. gjalddagi álagöra útsvara og
aöstöðugjalda er 1. október.
Lögtök vegna gjaldfalIinna en
ógreiddra útsvara og aðstöðugjalda
eru hafin.
Greiðið skilvíslega og forðist
óþægindi og kostnað sem af vanskil-
um leiða.
Dráttarvextir reiknast 5% fyrir
hvern byrjaðan vanskilamánuð.
Innheimta
Hafnarfjarðarbæjar.
islandsmót f siglingum
haldið við Hafnarfjörð
íslandsmótið í siglingum minni báta var haldið hér í Hafnarfirði fyrir
nokkrum vikum. Mótið þótti takast mjög vel og vera siglingaklúbb Hafn-
firðinga, Þyt, til sóma.
Á myndinni hér að ofan er einn hafnfirsku keppendanna, Ágúst Ágústs-
son að sýna Ijósmyndara Fjarðarpóstsins hvemig á að koma skútunni á
réttan kjöl, þegar óhapp hefur hent.
Trésmiöja Björns Ólafssonar hefur
margra ára reynslu í framleiöslu á úti-
hurðum og gluggum sem þola íslenskt
veöur.
ÚTIHURÐIR — SVALAHURÐIR —
BÍLSKÚRSHURÐIR — GLUGGAR
- OREGON PINE - TEKK -
FURA — IROKO — MAHOGNY
Allar hurðir og gluggar frá BÓ eru
með SLOTT-lista og TETU þétt-
ingu.
TRÉSMIÐJA
OALSHRAUNI 13. HAFNARFIRÐI SlMI 54444