Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Side 16
„Um leið og nýja húsið okkar er tilbúið bjóðum við ykkur í heimsókn
í Sædýrasafnið. Við hlökkum til að sjá ykkur.“
FJflRDflR
pösturmn
Sædýrasafnid
opnar á ný
- stórkostleg uppbygging hef ur átt sér stað
Undanfarna mánuði hefur fjöldi
manns unnið að miklum endurbót-
um í Sædýrasafninu. Nýjar bygg-
ingar hafa risið eða eru i smíðum,
eldri byggingar mikið endurbættar
og umhverfi allt verið gert hið
snyrtilegasta. Stefnt er að því að
opna í október enda þá öllum skil-
yrðum fullnægt sem sett voru til
leyfisveitingar.
Margt verður að sjá í Sædýra-
safninu. Máþarnefnaísbirni, Ijón,
refi, apa, sæljón, kindur og geitur,
gæsir, hrafna, uglur, auk ótal fisk-
tegunda.
Ljóna- og apahúsið hefur nánast
verið byggt frá grunni og aðstaða
þar öll hin skemmtilegasta. Þar
verður einnig komið fyrir „fiski-
þró“ sem örugglega á eftir að vekja
mikla athygli. Þá er hvalalaugin
mikið mannvirki, en þar verður
fyrst um sinn heimkynni sæljón-
anna.
Mikil vinna hefur verið lögð í að
gera umhverfið sem snyrtilegast.
Leiktækjum verður komið fyrir á
svæðinu fyrir yngstu sýningargest-
ina. Þegar fram líða stundir verður
hægt að njóta veitinga innan húss í
skemmtilegu umhverfi en þangað
til verða veitingar seldar úr sölu-
skála á svæðinu.
Ekki er að efa að opnun Sædýra-
safnsinser fagnaðarefni langflestra
þeirra sem kost eiga á því að heim-
sækja safnið. Fjöldi sýningargesta
er sótti safnið á sínum tíma sannar
að þörf er fyrir dýragarð sem
þennan. Aðgangséyrir nægði þá vel
fyrir daglegum rekstri en uppbygg-
ingin var afar kostnaðarsöm og
styrkir til safnsins í lámarki. Eng-
um var betur ljóst en forráða-
mönnum safnsins að betur varð að
gera en fjármagn ræður öllum
framkvæmdum. Sædýrasafnið er
sjálfseignarstofnun og uppbygging
öll og rekstur fer að sjálfsögðu eftir
því hvaða tekjur safnið hefur. Nú
hafa sveitarfélög á svæðinu flest
lýst yfir vilja til að styrkja safnið og
sýnt mikinn áhuga á að það taki til
starfa á ný. Menntamálaráðherra
hefur verið mjög jákvæður til þess-
arar starfsemi og því hafa aðstand-
endur safnsins lagt í þær fram-
kvæmdir sem áður eru nefndar.
Nú þegar er að finna í Sædýra-
safninu ýmsa aðstöðu sem erlendir
dýragarðar hafa ekki komið upp
enn. Stefnt er að því að þarna geti
sýningargestir, ungir og aldnir,
fundið ýmsa skemmtan við sitt
hæfi, bæði við skoðun dýranna og
ýmsa afþreyingu aðra. Þarna verða
sýningar af ýmsum toga, innlendar
og erlendar og stórt svæði þar sem
menn geta verið innan dyra.
Þó mikið hafi verið unnið þá eru
ýmsar hugmyndir enn í vinnslu,
hugmyndir sem vonandi verða að
veruleika.
Eitt er þó víst, þeir eru margir
sem eiga eftir að njóta góðra stunda
í Sædýrasafninu i Hafnarfirði.
BÆJARMÁLA-
Apunktar
□ Lagðir hafa verið fram árs-
reikningar Júní Stá. fyrir árið
1982. Samkvæmt þeim var halii
á rekstri fyrirtækisins kr.
19.086.216,66. Skuldir umfram
eign samkv. efnahagsreikningi
pr. 31/12 1982 nema kr.
47.436.383,29.
□ Lagðir hafa verið fram árs-
reikningar Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar fyrir árið 1982.
Samkvæmt þeim var tap á
rekstri fyrirtækisins kr.
13.132.246,78. Hrein eign nam
pr. 31/12 1982 kr.
60.443.823,19.
□ Bæjarráð hefur lýst ánægju
sinni yfir framtaki lögreglu við
umferðarstjórn við gangbrautir
við Hjaliabraut, er börn fara til
skóla, og væntir þess, að
framhald verði á slíkri þjónustu
þar og víðar í bænum.
□ Fræðsluráð, skólastjóri og
kennarar Lækjarskóla hafa gert
svohljóðandi samþykkt: „Þar
sem kunnugt er, að söluturn að
Hverfisgötu 57 er rekinn án
tilskylinna leyfa, mælist
fræðsluráð til þess við bæjarráð
að söluturninum verði lokað nú
þegar.
Þá er það skoðun fræðslu-
ráðs að söluturnar i nágrenni
skóla séu til mikillar óþurftar,
þegar til þess er tekið að nem-
endur leita þangað í stunda-
hléum en það veldur margs-
konar erfiðleikum í skólahald-
inu.“
□ Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að úthluta Eim-
skipafélagi íslands h.f. þremur
lóðum upp af Suðurbakka, alls
um 42.500m!.
□ Bæjarráð hefursamþykkt að
sótt verði um lán hjá Byggingar-
sjóði verkamanna til byggingar
14 íbúða á lóð við Þúfubarð/
Kelduhvamm til viðbótar við
lánsumsókn, sem þegar hefur
verið send sjóðnum varðandi
byggingu 17 íbúða við Móabarð
34-36. Miðað verði við að lán
frá sjóðnum nægi til greiðsiu á
hlutdeild hans við að Ijúka
byggingum þessum.
Bæjarráð hefur vakið athygli
stjórnar Húsnæðisstofnunar á
því, að Hafnarfjarðarbær hefur
verið mjög afskiptur á undan-
förnum árum í lánveitingum úr
Byggingasjóði verkamanna og
lagt áherslu á að breyting verði
þar á til batnaðar.
□ Kynnt hafa verið í bæjarráði
frumdrög að skipulagi 2ja nýrra
iðnaðarsvæða sunnan Hval-
eyrarholts. Bráðlega verður
tekin afstaða til þess hvort
svæðið verði fyrir valinu til
skipulagningar.
Bæjarverkfræðingi hefur
verið falið að láta gera grófa
kostnaðaráætlun um stofn-
kostnað svæðanna. Jafnframt
að safna saman fyrirliggjandi
upplýsingum um sjávarstrauma
meðfram ströndinni.
i
f3, '‘‘Lr j ' > -iT. .r c^r .f i" - •f -**n .
Bæjarstjórn hefur samþykkt að láta vinna deiliskipulag af reitnum,
sem afmarkast af Lœkjargötu, Brekkugötu, rótum Hamarsins og
Öldugötu. Valkostir skipulags á þessu svœði verða kynntir bœjar-
búum, áður en bœjarstjórn tekur endanlega ákvörðun um skipulag
svœðisins.
□ Skipulagsstjórn ríkisins
hefur fyrir sitt leyti samþykkt
fyrirliggjandi tillögur að mið-
bæjarskipulagi Hafnarfjarðar
og afgreitt hana til félagsmála-
ráðherra til staðfestingar.
Tillagan er staðfest eins og
hún liggur fyrir, en skipulags-
stjórn fer þess á leit, að leitað
verði umsagnar hennar, þegar
fjallað verður um útfærslu á
Lækjargötu.
Skipulagsstjórn telur, að
allur undirbúningur og máls-
meðferð aðalskipulags Hafnar-
fjarðar og deiliskipulags mið-
bæjar liefur verið til mikillar
fyrirmyndir öðrum sveitarfél-
ögum.