Fjarðarpósturinn - 04.02.1988, Síða 1
FIMMTUDAGUR
4. FEBRÚAR
Þórður Ingimarsson, Rúnar Brynjólfsson og Sigurður Sverrisson
undirrita samninginn.
NÝIR AÐILAR TAKA VIÐ
FJARÐARPÓSTINUM 1. IHARS
Samningur undirritaður fyrir réttri viku.
Nýir rekstraraðilar taka form-
lega við Fjarðarpóstinum, eina
vikublaði Hafnfirðinga, þann 1.
mars næstkomandi. Samningur þar
að lútandi var formlega undirritað-
ur fyrir réttri viku. Þeir sem taka
við Fjarðarpóstinum eru Þórður
Ingimarsson, sem verið hefur
starfsmaður blaðsins í rúmt hálft
ár, og Sigurður Sverrisson. Nýtt
hlutafélag verður stofnað um rekst-
ur Fjarðarpóstsins á næstunni og
verða aðaleigendur þess þrír, þeir
Þórður og Sigurður auk Fríðu
Proppé.
Reynsla
Hinir nýju eigendur blaðsins eru
allir reyndir blaðamenn og hafa
starfað sem slíkir um lengri eða
skemmri tíma. Þórður hefur starf-
að við blaðamennsku lengi. Hann
hefur starfað við Fjarðarpóstinn í
rúmt hálft ár, bæði við auglýsingar
og skriftir, auk annarra verkefna.
Sigurður á að baki áratugsferil í
blaðamennsku og rekur nú Skaga-
blaðið á Akranesi. Fríða hefur
starfað sem blaðamaður í á annan
áratug, lengstum á Morgunblað-
inu en nú síðast hjá Kynningu og
Markaði.
Þau Fríða og Þórður koma til
með að verða i fullu starfi hjá
Fjarðarpóstinum, hún sem ritstjóri
en hann sem auglýsingastjóri auk
þess að grípa inn í skriftir eftir
föngum. Sigurður, sem verður
ábyrgðarmaður blaðsins, mun
jafnframt grípa í skriftir auk þess
að annast útlitshönnun.
Breytingar
Þrátt fyrir að nýir aðilar með nýj-
ar hugmyndir taki við rekstrinum
mun eitt og annað halda sér úr
Fjarðarpóstinum eins og hann er í
dag. Gvendur gaflari heldur t.d.
áfram að skrifa í blaðið og einnig
mun Gunnar Sveinbjörnsson ann-
ast íþróttaskrif sem fyrr auk ígripa
í önnur störf. Fréttaskrif verða hins
vegar öll stokkuð upp og lögð verð-
ur áhersla á beittari og frískari
fréttamennsku en verið hefur. Verð-
ur vinnslu blaðsins hagað þannig
að hægt verði að birta glænýjar
fréttir, jafnvel frá morgni útgáfu-
dags.
Sjá nánar um breytingar inni í
blaðinu.
KALLAÐ 150 SINNUM ÚT
Á árinu 1987 var Slökkvilið Hafnarfjarðar kallað 150 sinnum út.
Af þessum 150 útköllum voru 96 vegna elds, þar af 46 sinnum vegna
elds í rusli, sinu eða mosa.
Árið 1986 voru útköllin 183. Þar af 148 vegna elds.
Brunavarnarsvæði Slökkviliðs Hafnarfjarðar (Hf., Garóabær og
Bessastaðahreppur) taldi 1. des. sl. 21.149 manns.
Utköll skiptust þannig milli sveitarfélaga:
Hafnarfjörður.........................105 útköll
Garðabær ............................ 29 útköll
Bessastaðahreppur...................... 16 útköll
Slökkviliðið sér einnig um sjúkraflutninga fyrir sama svæði. Á ár-
inu 1987 urðu flutningar 1364 en voru 1269 árið áður. Af þessum
1364 flutningstilfellum voru 242 bráðaflutningar vegna slysa og
annarra áfalla.
Mestu brunatjón ársins voru að Sævangi 35, Álfaskeiði 4, Austur-
götu 36, Ölduslóð 1 (bílg.), Lækjarhvammi 15, Hverfisgötu 20 og
Hverfisgötu 50.
Þá er rétt að benda á að í 67 tilfellum á árinu 1987 var um „vilj-
andi“ íkveikjur að ræða þar sem af algjöru tillitsleysi er kveikt í rusli
og sinu. í þessum 67 tilfellum varð slökkviliðið að fara á staðinn og
slökkva eldinn.
VALHÚS
FASTEIQNASALA
REYKJAVÍKURVEGI 62
Svelnn Slgurjónsson, sölustj.
Valgelr Krlstlnsson, hrt.
▲ BJARNASTAÐAVÖR: 176m2
einbýli auk 41m2 bílsk. Afh. írág.
utan — fokh. innan.
▲ FAGRABERG: ca. 130m2 eldra
einbýli á tv. hœðum, bílskúrsr.
Verö 5 millj.
▲ SUÐURHV AMMUR - RAÐHÚS,
Glœsil. raðhús á tv. hœöum,
auk bílsk. Aíh. frág. utan, fokh.
innan. Teikn. á skrifst.
▲ GRENIBERG - PARHÚS, pall-
byggt 170m2 parhús, auk. bílsk.
▲ KELDUHV AMMUR - SÉRHÆÐ,
4-5 herb. 117m2 sérhœö í þríb. allt
sér, bílskúrsr. Verö 5-52 millj.
A SUÐURHV AMMUR - SÉRHÆÐ.
4-5 herb. 115m2 efri hœö í enda-
raöhúsi, bílskúr.
▲ ÁLFASKEIÐ - SKIPTL 5 herb.
127m2 endaíbúð á þriöju hœö,
bílskúr. SKIPTI ÆSKIL., á 3-4 herb.
íbúö á 1. hœð.
▲ VOGAR VATNSLEYSUSTR.,
115m2 efri sérhœö í tvlb. Verö 2
millj. LAUS STRAX.
▲ MIÐVANGUR: Falleg 2ja
herb. íbúö á 5 hœö í lyftublokk.
Verö 3 millj.
A ÁSBÚÐARTRÖÐ: Nýl. góö sér-
hœö auk rými í kj. Verð 8.4 millj.
A ÖLDUTÚN, Góð 78m2 íbúð á
neðri hœö I tvíb. Allt sér.
A ÓSKA EFTIR AÐ KAUPA 4-5
herb. íbúö í Hafnarfiröi - Garöa-
bœ í skiptum íyrir parhús í
Mosfellsbœ.
A LEIGUHÚSNÆDI ÓSKAST I
NORÐURBÆ: þarf að vera
rúmg. íbúð, raöhús eöa einb.