Fjarðarpósturinn - 04.02.1988, Qupperneq 2
2
FJAROARPÓSTURINN
FMRÐflfi
^mMpóstunnn
ÚtgefaVidl:
Fjaröarfréttir st.
Ritstjórt og ábyrgðarmaöur:
Rúnar Brynjólfsson
Útgáfuróð:
Ellert Borgar Þorvaldsson
Guðmundur Sveinsson
Rúnar Brynjólfsson
LJósmyndun:
Ellert Borgar Þorvaldsson
Heimillsfang:
Pósthólf 57, Hafnarfirði
Simar: 651745 51261,
51298. 53454
Utilt og setnlng.
Fjarðarpósturinn
Filmuvinna og prentun:
Prisma: slmi 65 16 14
NÝIR ÚTGEFENDUR
FJARÐARPÓSTSINS
ÞflÐ EYKUR ORYGGK) I UIVIFERÐINNI
Nánari upplýsingar á bensínstöðvum, j
Bifreiðaeftirliti rikisins og a lögreglustöðvum. !
BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS
Andorra
Tollalækkun oröin aö veruleika hjá okkur.
dæmi varalitur áöur 937,-
nú 670,-
dæmi varalitur áður 393,-
nú 249,-
Eins og fram kemur á forsíðu
Fjarðarpóstsins í dag taka nýir aðil-
ar við rekstri blaðsins þann 1. mars
næstkomandi. Tveimur dögum síð-
ar kemur Fjarðarpósturinn út í
fyrsta sinn undir stjórn þeirra og þá
i verulega breyttri mynd frá því sem
nú er.
Andlitslyfting
Það sem lesendur Fjarðarpósts-
ins reka eflaust augun í fyrst er þeir
sjá hið „nýja blað“ er að útliti þess
hefur verið breytt verulega. Brotið
verður stærra og dálkarnir fimm í
stað fjögurra nú. Þar með aukast
allir möguleikar á frísklegri upp-
setningu og framsetningu frétta.
Síðufjöldinn verður hins vegar
óbreyttur fyrst um sinn eða 16.
Breytingin verður þó ekki ein-
vörðungu fólgin í útlitinu heldur er
ætlunin að efla fréttaskrif til muna
en jafnframt að koma á fót ýmsum
fastaþáttum, sem eru hverju blaði
nauðsynlegir. Vinnslu blaðsins
verður hagað þannig, að auðvelt er
að birta glænýjar fréttir, jafnvel frá
morgni sjálfs útgáfudags. Þannig
verður leitast við að veita lesendum
blaðsins eins góða þjónustu og
kostur er.
Blaðið selt
Útlitsbreytingin er eflaust það
fyrsta sem lesendur reka augun í en
þeir komast einnig að því frá og
með 1. mars, að Fjarðarpóstinum
verður ekki dreift ókeypis. Blaðið
verður selt á kr. 50r Sölubörn ganga
skipulega í hverfi bæjarins og bjóða
blaðið til sölu en einnig verður það
selt víða í verslunum og sjoppum.
Kynningarverð verður á Fjarðar-
póstinum út marsmánuð en þann 1.
Bankábréf Iðnaðarbankans gefa háa ávöxtun a eíníaidan
og aðgengilegan hátt.
• Kaupin eru eins fyrirhafnarlítil og
mögulegt er og ársávöxtun er nú
10.2% umfram verðbólgu.
• Nafnverð Bankabréfa er 50 þúsund kr.
Ef þig vantar á þá fjárhæð gefur
bankinn þér möguleika á góðum
sparnaðarleiðum að markinu.
• Bankabréfin hafa mismunandi
gjalddaga - allt eftir því hvað þú vilt
ávaxta peningana þína lengi. Stystu
bréfin eru leyst út í apríl nk. Og þú
getur fengið upphæðina lagða inn á
reikninginn þinn sjálfkrafa þér að
kostnaðarlausu.
• Þú getur leyst bréfin út, hvenær sem
er gegn 1 % innlausnargjaldi, ef
nauðsyn krefur.
Strandgötu 1, Hafnarfirði.
apríl hækkar verð blaðsins í kr. 65
í lausasölu. Frá þeim tíma verður
boðið upp á áskriftarþjónustu gegn
því að greitt sé með VISA- eða
Eurocard-greiðslukorti. Áskrifend-
ur munu hins vegar fá blaðið áfram
á kr. 50. Þannig spara þeir sér 30%
um leið og þeir firra sig öllum
áhyggjum af því að missa af Fjarð-
arpóstinum.
Ávinningur
Ekki er óeðlilegt, að dyggir les-
endur Fjarðarpóstsins síðustu árin
velti því fyrir sér hvað hinir nýju
eigendur meini eiginlega með því að
ætla að selja blaðið. Skýringin er
einföld. Með þeirri kúvendingu á
allri vinnslu blaðsins sem nú stend-
ur fyrir dyrum er Ijóst, að rekstrar-
kostnaður kemur til með að stór-
aukast. A.m.k. tveir starfsmenn
verða í fullri vinnu við útgáfuna og
3-4 í hlutastarfi. Til þessa hafa aug-
lýsingar borið uppi kostnað af út-
gáfu blaðsins en ljóst er að þær
tekjur hrökkva ekki fyrir útgjöld-
um með breyttum rekstri.
En hvað fá kaupendur fyrir sinn
snúð? Hinir nýju aðstandendur
Fjarðarpóstsins eru þess fullvissir,
að Hafnfirðingar fá enn betra blað
en verið hefur og þeir eiga kost á
aukinni þjónustu. Fjarðarpóstur-
inn ætlar sér áfram að vera öflugur
málsvari Hafnfirðinga og hafn-
firskra hagsmuna og mun í tengsl-
um við það markmið sitt bjóða les-
endum upp á þá þjónustu að leita
svars við spurningum sem þeir
kunna að hafa. Þá ætlar blaðið að
bjóða upp á ókeypis smáauglýs-
ingaþjónustu svo eitthvað sé nefnt
af nýjungum. Nánar verður skýrt
frá smáauglýsingaþjónustunni
síðar.
Kröfur
Hinir nýju rekstraraðilar Fjarð-
arpóstsins ætla sér að halda uppi
virkri fréttastefnu og um leið að-
haldi á bæjaryfirvöld og bæjarbúa.
Til þess að dæmið gangi upp þarf
aðhaldið hins vegar að vera gagn-
kvæmt. Lesendur þurfa að láta í sér
heyra séu þeir ósammála blaðinu og
ekki sakar að láta í sér heyra ef eitt-
hvað er vel gert.
Um leið og lesendur eru farnir að
greiða fyrir Fjarðarpóstinn geta
þeir gert auknar kröfur til hans og
eiga að gera það. Þar með skapa
þeir honum um leið það aðhald sem
öllum fjölmiðlum er nauðsynlegt.
Sigurður Sverrisson.