Fjarðarpósturinn - 04.02.1988, Síða 5
FJARÐARPÓSTURINN
5
grunnskólanna nema í áæltuninni kr.
13.200.000,- og eru skólalóðir með iini í
þeirri fjárveitingu.
Gamlt þverpólilískt bitbein bæjar-
stjómar liggur enn óbrotið til mergjar
inni í áætluninni, en það er
fargjaldastyrkur til
framhaldsskólanemenda sem sækja
nám út fyrir bæinn. Þrátt fyrir nokkra
lækkun undanfarin ár er þessi upphæð
kr. 3.130.000.- i áætlun fyrir 1988.
Til framkvæmda í skólabyggingum eru
ætlaðar kr. 45.300.000.- á árinu. Inni í
þessari upphæð er framlag ríkissjóðs á
árinu að upphæð kr. 7.105.000,-
Veittar eru kr. 30.000.000.- til skóla-
byggingar í Setbergi og á 1. hluti hans að
vera tilbúinn haustið 1989.
Til Engidalsskóla em veittar kr.
15.000.000.- til viðbyggingar, sem gera á
skólanum kleift að taka við nemendum
upp að 12 ára aldri (væntanlega átt við 6
- 12 ára).
Til skólanefndar vegna funda o.íl. eru
áætlaðarkr. 1.184.000.-
MENNINGARMÁL
Undir þessum málaflokki vekur fyrst
og fremst athygli, að bærinn virðist hafa
tekið yfir umsjá og eignarhald á Siggubæ,
en bærinn var í eigu VKF Framtíðarinnar.
Til endurbóta á bænum eru áætlaðar kr.
490.000.-
Þá er gert ráð fyrir rekstri Hafnar-
borgar, menningar- og lista-stofnunar
Hafnarfjarðar. Stofnunin mun opnuð
formlega 1. júní n.k. og rekstur hefjast
upp frá þvi. Til þessa em áætlaðar kr.
2.144.000,-
Ýmsir styrkir em veittir undir þessum
málaflokki og ber þar hæst bygg-
ingarstyrk til Víðistaðasóknar að
upphæðkr. 1.960.000.-og styrktil Kórs
öldutúnsskóla til Ástralíuferðar ,
styrkupphæð kr. 880.000.- Þá er m.a.
styrkur til Leikfélagsins að upphæð kr.
590.000.-
Nefndarlaun byggðasafnsnefndar eru
áætluð kr. 113.000.- og bókasafns-
stjómar kr. 246.000,-
ÆSKULÝÐS- OG
ÍÞRÓTTAMÁL
I þessum málum vekja mest eftirtekt
nýjung eins og starfræksla félags-
miðstöðvar í Skiphóli og framlag til
Sundlaugar í Suðurbæ.
í greinargerð með frumvarpinu kemur
fram að áformað er að heíja starfrækslu
félagsmiðstöðvarinnar í næsta mánuði.
Til rekstursins eru áætlaðar kr.
4.800.000.- áárinu ogtilkaupaábúnaði
og endurbóta á Skiphóli em áætlaðar kr.
4.000.000.-
Til Sundlaugar í Suðurbæ em áætlaðar
kr. 30.000.000.- en skv. kostnaðar-
áætlun er það u.þ.b. helmingur þess
fjármagns sem þarf til þess að koma
mannvirkinu í nothæft ástand en vonir
standa til að það verði siðla árs 1989.
Til undirbúnings að nýju íþróttahúsi á
svæði FH í Kaplakrika eru áætlaðar kr.
2.000.000.-
Styrkir em allnokkrir undir þessum
málallokkum. Þeir em til KFUM og K v/
Kaldársels kr. 375.000.-; til Hraunbúa
kr. 360.000.-; til Skógræktarfélagsins kr.
295.000.-; v/ uppgræðslu í Krýsuvík kr.
150.000.-
Þá má geta framlaga í ferða- og
afreksmannasjóð íþróttamanna samtals
kr. 785.000.-
Til æskulýðsráðs eru áætlaðar kr.
556.000.- og til íþróttaráðs kr. 448.000.-
ELDVARNIR -
ALMANNAVARNIR
Til Slökkvistöðvar og sjúkraflutninga
em áætlaðar kr. 32.587.000, en þess ber
þó að geta að tekjur að upphæð kr.
11.480.000.- koma á móti, en þær em
m.a. greiðslur Garðabæjar og Bessa-
staðahrepps svo greiðslur fyrir
sjúkraflutninga.
Undir þessum lið eru tvær
styrkveitingar til Slysavamadeildarinnar
Fiskakletts að fjárhæð kr. 295.000. - og til
Hjálparsveitar skáta 590.000.-
Til brunamálanefndar em áætlaðar kr.
263.000.-
HREINLÆTISMÁL
Til sorp og ruslahirðu í bænum eru
áætlaðar kr. 23.607.000.- þ.m.t.
gámaþjónustan.
Áætlað er stofnframlag að fjárhæð kr.
1.190.000.- sem renna á til byggðar-
samlag sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, sem hafa mun með höndum
urðun eða vinnslu á sorpi af svæðinu.
Athygli vekur að til meindýraeyðingar
eru áætlaðar kr. 760.000,- Vonandi er
ekki að hefjast einhver viðlíka
rottufaraldur og hér áður, er setti menn
pólitískar stellingar.
SKIPULAGS- OG
BYGGINGAMÁL
Skv. greinargerð með fmmvarpinu em
mikil verkefni framundan á þessu sviði
og er þar tilnefnt deiliskipulag
Hvaleyrarholts og endurskoðun aðal-
skipulags. Reikna má með mikilli
aðkeyptri þjónustu vegna þessara verk-
efna.
Til þessa málaflokks eru áætlaðar í
heild kr. 13.132.000.- þar af til
skipulagsnefndar kr. 507.000,- og til
bygginganefndar kr. 660.000,-
GÖTUR, HOLRÆSI,
UMFERÐARMÁL
Aðal- og íjárfrekustu framkvæmdir ár
hvert hafa fallið undir þennan málaílokk.