Fjarðarpósturinn - 04.02.1988, Blaðsíða 8
8
FJARÐARPÓSTURINN
uppi í Mosfellsbæ auk þess sem
tímarnir hér við Strandgötu eru
alltof stuttir. Lið sem ætlar sér að
vera klassalið, þarf að æfa minnst
l'A tíma i senn, fimm sinnum í
viku.
Hvað er til ráða?
Það þarf minnst eitt hús eins og
skot til að bjarga málunum. Svona
hlutir eiga ekki að þurfa að taka
langan tíma, þetta er bara spurning
um vilja.
Viltu spá einhverju um röð liðanna
á íslandsmótinu?
Það er mjög erfitt. Við stefnum
að sigri, það er engin spurning en
það verður mjög erfitt og við þurf-
um áfram sama stuðning áhorf-
enda ef það á að takast.
Er handboltinn í ár, betri eða verri
miðað við undanfarin ár?
Handboltinn er miklu jafnari
núna, það er fleiri góð lið. Ég veit
ekki hvort bestu liðin núna eru betri
en toppliðin fyrir fáeinum árum en
breiddin er almennt miklu meiri
núna. Sérstaklega er mikið af ung-
um liðum og framtíðin er því björt
og næsti vetur verður meiriháttar,
þegar atvinnumennirnir koma
heim frá Vestur-Þýskalandi. En á
heildina litið tel ég handboltann í
vetur mun betri en undanfarin 5-6
ár.
Á að styðja við bakið á þeim leik-
mönnum sem koma heim úr at-
vinnumennsku?
Mér finnst það bara allt i lagi.
Þetta tíðkast um allan heim og af
hverju ekki hérna líka. Ef einhver
félög geta borgað leikmönnum og
sjá fram á að aðsókn eykst fyrir
bragðið, þá finnst mér það alveg
sjálfsagt.
Snúum okkur að landsliðinu. Ertu
ánægður með árangur landsliðsins
á mótinu í Svíþjóð?
Já, ég held að annað sé ekki
hægt. En þegar maður sér hversu
litlu munar á að komast hærra að
þá verður maður kannski dálítið
svekktur. Fjórða sæti í móti þar
sem átta bestu þjóðirnar eru að
spila er engu að síður stórkostlegur
árangur.
Getur landsliðið aldrei átt tvo góða
leiki í röð?
Það er bara bull. Það skeður að
vísu oft í vináttuleikjum en t.d. í
„VIÐ STEFNUM AÐ SIGRI“
— segir Þorgils Óttar, fyrirliði FH
og landsliðsins.
Blm. Fjarðarpóstsins náði tali af
Þorgils Óttari Mathiesen, fyrirliða
FH og landsliðsins eftir sigurleik
FH-inga gegn ÍR í 1. deild karla (34-
23) síðastliðið sunnudagskvöld og
lagði fyrir hann nokkrar spurning-
ar. Þorgils Óttar, sem nýlega var
valinn í heimsliðið í handknattleik,
varð fúsiega við þeirri beiðni að
svara nokkrum spurningum og fara
svör hans hér á eftir.
Ertu ánægður með byrjun FH-inga
á seinni hluta íslandsmótsins?
Já, já. Þetta er að vísu rétt komið
í gang en ég held að við séum ágæt-
lega undirbúnir. Reyndar var Óskar
Helgason meiddur og ég fjarver-
andi með landsliðinu en við erum
búnir að ná vel saman á æfingum
að undanförnu og erum á réttu róli.
Er nægileg breidd í liðinu?
Hún er þokkaleg. Við erum með
ungt lið og keyrum mikið á sama
mannskapnum en það má ekki
mikið út af bera t.d. ef leikmenn
meiðast.
Hvernig er FH-liðið ’88 í saman-
burði við íslandsmeistara FH 1985?
Liðið í dag er ekki orðið eins
sterkt og það var þá. FH-liðið ’85
lék fyrst og fremst mun betri varn-
arleik, heldur en við gerum í dag.
FH-liðið ’88 spilar ekki síður vel
saman eins og það gerði ’85 en í lið-
inu þá voru kannski fleiri afgerandi
einstaklingar.
Áttirðu von á góðu gengi FH-inga á
þessu móti?
Nei, ég átti svo sem ekkert von á
því. Maður gerir sér aldrei grein fyr-
ir því í byrjun tímabils hvernig
þjálfunin tekst til en hún hefur
greinilega tekist mjög vel til og það
er fyrst og fremst að þakka mjög
góðum þjálfara. Okkar sterkasta
vopn er sóknarleikurinn, þar sem
liðið nær mjög vel saman, sérstak-
lega hraðaupphlaupin. Aftur á
móti er varnarleikurinn ekki nægi-
lega góður ennþá og hann þarf að
laga. í lok fyrri umferðar var varn-
arleikurinn kominn í þokkalegt lag,
t.d. gegn Víking og Val en menn
hafa aðeins slakað á og þurfa nú að
bæta við sig í vörninni.
Verður íslandsmótið einvígi FH og
Vals?
Það er gefið mál að FH og Valur
verða að berjast um titilinn en það
getur verið að Víkingur og jafnvel
Breiðablik komi inn í dæmið en þá
þarf annaðhvort FH eða Valur að
fara að tapa stigum.
Ertu ánægður með frammistöðu
stuðningsmanna ykkar í vetur?
Já, ég er mjög ánægður með
stuðninginn frá fólkinu. Fólkið tek-
ur mjög fljótt við sér þegar það er
spilaður góður bolti sem það kann
að meta og þá skiptir ekki máli við
hverja er spilað, eins og t.d. i kvöld
á móti ÍR. Það er góð aðsókn þrátt
fyrir að IR sé í botnbaráttunni og
við reynum líka að spila fyrir áhorf-
endur enda erum við sóknarlið.
Er aðstaðan nógu góð?
Nei. Húsnæðisvandamálið er al-
gjör skandall og af þeim sökum
þurfum við að æfa einu sinni í viku
Heimsliðið í handknattleik 1988. Þorgils Óttar fyrir miðju í fremri röð — í góðum félagsskap.