Fjarðarpósturinn - 15.06.1988, Page 1
Undirritun samninganna
í Reykjavík 4. júlí n.k.
Gleðilega þjóðháb'ð
Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, er á föstudag. Fjarðarpósturinn
óskar öllum lesendum sínum gleðilegrar hátíðar. Dagskrá hátíðar-
haldanna í Hafnarfirði er á bls. 3, en þau eru í umsjón Æskulýðs-
og tómstundaráðs að þessu sinni.
það unnt m.a. vegna staðsetning-
ar bílageymsla, sem verða inni í
landinu.
Tvær leiðir eru til við kynningu
á nýju samþykktinni. Annars veg-
ar er að breytingin verði metin
minni háttar og þá verði málið
kynnt. Hins vegar, ef breytingin
er metin meiri háttar, þarf sex
vikna auglýsingatíma og síðan
tveggja vikna bið. Jóhannes sagði
að ætlunin væri að kynna málið
rækilega fyrir bæjarbúum, hvor
leiðin sem yrði fyrir valinu.
íbúðabyggð
viðenda
Suðurgötu
Verið er að vinna að skipu-
lagi á svæði við enda Suður-
götu, þ.e. við Ásbraut. Fyrir-
hugað er að úthluta það lóð-
um fyrir íbúðabyggð.
Ætlunin mun að þarna
verði íbúðasvæði fyrir 20-30
íbúðir og að unnt verði að
hefja framkvæmdir á svæðinu
fljótlega.
íslenska álviðræðunefndin átti fund með fulltrúum
fjögurra stórfyrirtækja í áliðnaði í London í gær. Fund-
arefnið var bygging nýs hundrað þúsund tonna álvers við
Straumsvík með þátttöku þessara fjögurra fyrirtækja, en
eitt af því er Alusuisse. Samningar um undirbúning
verða undirritaðir í Reykjavík 4. júlí n.k. og er reiknað
með að nýja álverið geti haflð starfsemi í byrjun árs
1992.
Eins og skýrt hefur verið frá
voru það þrjú stórfyrirtæki, sem
náð höfðu samkomulagi um að
hefja undirbúning að byggingu
nýs álvers við Straumsvík. Síðar
gerðist það, að Alusuisse, eig-
andi ISAL, vildi einnig fá að vera
með og hefur álviðræðunefndin
átt nokkra fundi vegna þess síð-
ustu vikur. Það fékkst síðan
endanlega útkljáð á fundinum í
London í gær, að þessi fjögur stór-
fyrirtæki virðast ætla að ná saman
um viðbótarframleiðsluna.
Undirbúningurinn mun miðast
við að fyrst verði reist 90-110 þús-
und tonna álver, sem síðar yrði
stækkað um hérumbil annað eins.
ÍSAL er að stærðargráðunni 88
þúsund tonn, þannig að heildar-
framleiðslumagn áls við Straums-
vík yrði allt að 300 þúsund tonn,
þegar framkvæmdum lýkur.
Reiknað er með, að um 500
manns fái vinnu við hið nýja álver.
merkar
symngar
-sábls.3
Dúxinn
Flensborg
-sábls.2
Það eru fyrirtækin Austria-
Metall frá Austurríki, Granges
frá Svíþjóð og hollenska fyrirtæk-
ið Aluminet Beheer, auk Alusui-
sse sem hér eiga hlut að máli.
Áður en Alusuisse lýsti áhuga sín-
um á að verða eignaraðili að nýja
álverinu höfðu hin fyrirtækin þrjú
náð samkoulagi um stofnun
undirbúningsfélags strax í sumar.
Nýja samkomulagið, með aðild
Alusuisse, gerir ráð fyrir minna
formlegum samningi um sérstak-
an starfshóp að undirbúningnum.
í íslensku álviðræðunefndinni,
sem kom frá London seint í gær-
kvöldi, voru þeir Jóhannes
Nordal, sem er formaður, Guð-
mundur G. Þórarinsson, auk þess
Halldór Kristjánsson lögfræðing-
ur iðnaðarráðuneytisins og Garð-
ar Ingvarsson.
Fjarðarpósturin ræddi við Hall-
dór símleiðis til London í gær um
það leyti sem samningaviðræðun-
um lauk. Hann sagði að íslendin-
garnir væru mjög ánægðir með
niðurstöðuna, þeir hefðu ekki
búist við svo góðri og skjótri
niðurstöðu í málinu.
Stórhýsið var
samþykkt sl.
mánudag
Skipulagsnefnd bæjarins samþykkti á fundi sínum sl. mánudag stór-
hýsið nýja á lóð steinullarhússins við Lækjargötu. Var samþykktin
gerð með fyrirvara um að ekki komi fram andmæli af hálfu íbúa, en
samþykktinni verður vísað til Skipulagsstjómar ríkisins. Að sögn
Jóhannesar Kjarval skipulagsstjóra verður málið kynnt bæjarbúum
fljótlega, þó ekki sé ákveðið með hvaða hætti það verður gert.
Leyfð nýting á lóðinni, sam- sögn Jóhannesar er þó ekki um
kvæmt samþykktu skipulagi, er hærra hús að ræða, en leyfilegt er,
2.200 fermetrar, en nýja húsið einvörðungu er samþykkt meira
mun verða 3.700 fermetrar. Að nýtingarhlutfall. Sagði Jóhannes
A\\s
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
FJflRÐflR
21.TBL. 1988-6. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ
VERÐ KR. 50,-
Samningar um undirt>úning aö nýju álveri viö Straumsvík tókust í London í gær
A\k
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266