Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.02.1989, Blaðsíða 7

Fjarðarpósturinn - 23.02.1989, Blaðsíða 7
Ólafur Proppé. Guðmundur Jónsson. Þetta getur varla verið einleikið. Enn urðu Olafur og Guðmundur hnífjafnir og hvorugur með eina tölu rétta. Einhver vildi kenna veðr- áttunni um, aðrir færðinni. - Við hér á Fjarðarpóstinum höllumst helst að því, að um einskæra óheppni sé að ræða. Við hringdum fyrst í Guðmund. Hann var hálfundrandi á þessari útreið en snéri sig auðveldlega út úr málinu. Hann bað Fjarðarpóstinn einfaldlega að finna næstu tölur fyrir sig og hafði á orði, að þá gæti blaðið engum kennt um nema sjálfu sér, ef hann héldi áfram að hafa enga tölu rétta. Þar sem engan veginn var hægt að skorast undan lét Fjarðarpósturinn þeim talnagleggsta úr sínum hópi það eftir að velja tölur Guðmundar. Þær eru: 8-10-16-17-22-25-28. Þá var að hringja í Ólaf. Hann taldi að kerfið, sem hann hefur notað. hefði sýnt sig að vera lítilsvirkt og ákvað að henda því fyrir róða. Töl- urnar hans eru því allar beint út í loftið, en þær eru: 1-6-10-18-25-27-33. Eins og sjá má eru tvær tölur eins, þ.e. tölurnar 10-25. Það verður fróðlegt að sjá hvernig loftstreymið leikur okkur á laugardagskvöld. Fjarðarpósturinn bíður í það minnsta spenntur eftir því, hver niður- staðan verður varðandi tölurnar hans Guðmundar. brosum/ °g W allt gengur betur • Páska- leikur íDals- nesti Enn segjum við frá eigenda- skiptum á verslun í bænum. Nú hefur verslunin við Dalshraun 13, sem áður hét Gafl-Nesti, skipt um eiganda og nafn. Nýji eigandinn er Sigurður Lárusson og verslunin heitir nú Dals-nesti. Miklar breytingar hafa verið gerðar á innréttingum í Dals-nesti og eins segist Sigurður hafa bætt við vörum, til að mynda mjóikur- og nýlenduvörum. Starfsmenn í Dals-nesti eru 8-9 og er opið virka daga frá kl. 7.30 til 23.30, laugar- daga frá kl. 8 til 23.30 og sunnu- daga frá 10 til 23.30. Sigurður ætlar að taka upp nokkra nýbreytni nú fyrir páskana í samvinnu við páskaeggjafram- leiðanda. Páskaeggjakaupendum verður boðið upp í leik, þannig, að ef þátttakanda tekst að fá þrisvar sinnum sama lit með því að snúa hringplötu, hlýtur hann að launum stórt páskaegg. Einnig verður boðið upp á bónusvinning. Leikurinn hefst um leið og páska- eggin koma á markaðinn, eða laust upp úr mánaðarmótum. Við spurðum Sigurð í lokin, hvort hann hefði skýringu á því af hverju verslanir í bænum skiptu svo oft um eigendur. Hann svar- aði, eins og svo margir aðrir hafa gert: „Þetta er gífuleg vinna, en skemmtileg". Flóamarkaður Óska eftir gömlum borðstofustólum til kaups, ástand skiptir ekki máli. Uppl. í síma 54689 eftir kl. 17.00 Óska eftir að taka íbúð á leigu frá 15. apríl í ca. 8 mánuði. Uppl. í síma 50053. FERMINGAR - FERMINGAR Nú er tíminn til að panta fermingarmyndatökurnar. Passamyndir strax Ljósmyndastofa Hafnarfjarðar Rey kj aví kurvegi 60 - íris S 50232 Sigurður í Dals-Nesti, eu á hringnum sem hann stendur við, verður páskaleiknum komið fyrir. Skrifstofustarf Góðan vélritara vantar í afleysingar nú þegar eða frá 1. apríl. Hálfs dags starf kemur til greina. Upplýsingar hjá bæjarfógeta, sími 652400 eða skrifstofustjóra, sími 51916. Skrifstofan Strand- götu 31,3. hæð, opin daglega kl. 8-17. BÆJARFÓGETI Höíum opnað nýja íiskbúð Ferskur fiskur úr sjó Fiskbúðin Fiskbúrið Hringbraut 4 • S 51517 „m »*« öu Okkar vorugseð' lágmarki Kostakaup er markaður sem stendur undir nafni OPIÐ N MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA KL. 9-18.30 / pjni HAFNARFIRÐI S 53100 MJIW ÓKEYPIS heimsendinga- þjónusta W\WWW<\ ^OPIÐ IPPtostudaga KWTn KL.9-20 0G aVVLAUGARDAGA VNX KL. 10-16 7

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.