Fjarðarpósturinn - 31.08.1989, Síða 1
4US
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
FJflRÐflR
WÉmpösturtnn
■ ■ K ■ r m ■■■■
24. TBL1989-7. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST
VERÐ KR. 70,-
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Eigendur Stálskipa segjast ekki trúa því, að Landsbankinn eda Fiskveiðasjóður setji þau út á klakann:
„Hefðum keypt Otur, en var
ekki gefinn kostur á því“
Áhöfhinni á Sigurey verður boðið að halda störfum sínum. Þingmenn Reykjaneskjördæmis
hvattir til að leggja orð í belg.
Bæjamtari
auglýsinga-
stjóri á ný
Bæjarritari, Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson, hefur tekið
við auglýsingamálum bæjar-
félagsins á ný. Bæjarstjóri
hefur sjálfur annast auglýs-
ingamálin um skeið, en hefur
nú afhent bæjarritara
umsjónina á ný.
Kaup eigenda Stálskipa í Hafnarfirði á Sigurey, togaranum frá Pat-
reksfirði, hafa vakið mikið umtai. Málið hefurþó svo til eingöngu verið
rætt frá sjónarmiði Patreksfirðinga. Minna hefur verið rætt um hags-
muni Hafnfirðinga, en staðreynd er að Hafnfirðingar hafa á skömmum
tíma misst úr Firðinum fimm skip, síðast Otur til Hornafjarðar. Salan
á Otri fór þannig fram, að Hafnfirðingum gafst ekki tækifæri á að
kaupa skipið og sagði einn eigandi Stálskipa, Ágúst Sigurðsson, í
samtali við Fjarðarpóstinn í gærkvöldi, að Stálskip hefðu mjög líklega
keypt Otur á sínum tíma, ef þeim hefði staðið það til boða.
Söluverð Oturs var 245 millj.
kr., en Sigureyjar 257,5 millj. kr.
f>að kom einnig fram í viðtalinu
við Ágúst, að eigendur Stálskipa
hafa frá upphafi verið ákveðnir í
að bjóða núverandi áhöfn Sigur-
eyjar að halda áfram störfum. Sig-
urey er nú að veiðum, en mun
landa í Reykjavík bráðlega, ogþá
fá núverandi eigendur væntanlega
skipið til ráðstöfunar. Eigendur
Stálskipa eru hjónin Guðrún Lár-
usdóttir og Ágúst Sigurðsson,
ennfremur bróðir Ágústar Þor-
steinn Sigurðsson.
Alyktun hafnarstjórnar, sem
birt er í heild á baksíðu, er til
stuðnings því að eigendurnir geti
haldið skipinu, en orðrómur var á
kreiki í gær þess efnis, að Lands-
bankinn og/eða Fiskveiðisjóður
myndu ganga að nýju eigendun-
um vegna þeirra ábyrgða sem
hvíla á skipinu. Ágúst sagði
aðspurður, að hann tryði því ekki
að svo yrði gert: „Við vitum ekki
annað en að við séum viðskipta-
menn Landsbankans. Við höfum
ætíð staðið við okkar skuldbind-
ingar gagnvart þessum aðilum og
Skólamir að hefjast:
Gmnnskólanemendur
eru rúmlega 2.600
Skólarnir eru að hefjast. Kennarar mæta í skólana þann 1. septem-
ber, en grunnskólanemendur eiga að mæta þann 6. september. Rúm-
lega 2.600 grunnskólanemendur hefja skólagöngu í flmm skólum, þar
af hefur Setbergsskóli starfsemi í fyrsta sinn. I Setbergsskóla verða
nemendur á aldrinum 6 til 12 ára.
skiljum ekki ef við verðum sett út
á klakann. Þar verður þá togað í
einhverja spotta."
Ágúst sagði að þeim hefði fyrir-
fram verið kunnugt um að
Byggðasjóður myndi gjaidfella 40
millj. kr. lán til skipsins, en það
gætu Stálskip greitt. Hann sagði
ennfremur: „Vonandi leggja
þingmennirnir í okkar kjördæmi
orð í þennan belg.“
Fjarðarpósturinn leitaði upp-
lýsinga hjá skýrsludeild Fiskifé-
lagsins um landanir Sigureyjar
síðustu ár. Það kom fram að
togarinn hefur aldrei landað á
Patreksfirði á þessu ári. í fyrir-
liggjandi skýrslu um landanir í
janúarmánuði og út apríl kemur
fram að af 851,3 tonna heilarafla
landaði skipið 732,8 tonnum er-
lendis en 118,5 tonnum á mörkuð-
um hér á suðvesturhorninu.
Heildarafli Sigureyjar 1988 var
3.767.8 tonn. Þar af landaði það á
Patreksfirði 2.704,5 tonnum, er-
lendis 785,4 tonnum og á fisk-
mörkuðum 277,9.
Auk grunnskólanna hefja fram-
haldsskólarnir starfsemi um líkt
leyti, þ.e. Flensborgarskólinn,
Iðnskólinn og Fiskvinnsluskólinn.
Umsóknir um skólavist í Flens-
borgarskóla hafa aldrei verið fleiri
en nú, að sögn skólafulltrúa.
Tónlistarskólinn og Náms-
flokkarnir hefja starfsemi
skömmu eftir að hinir skólarnir
hefjast. Þá eru ótaldir ýmsir sér-
skólar í bænum, svo sem dans-
skólar o.fl. Næg tækifæri ættu því
að vera til náms innanbæjar í
vetur.
FH-dagurinn
á sunnudag
Hinn árlegi FH-dagur
verður n.k. sunnudag, 3.
september.
Hér er um uppskeruhátíð
knattspyrnudeildar að ræða
og ástæða til að fagna góðu
gengi. Hátíðin fer fram á
Kaplakrikavelli og verður
svæðið opnað kl. 13.30.
Dagskrá hefst kl. 14ogstend-
ur yfir til kl. 16.
Reyna að bijóta
niður jámtjaldið
Þessar hafnfirsku stúlkur sem eru, talið frá vinstri: Svafa Árna-
dóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir og Helga Loftsdóttir eru á
förum til Rússlands. Fjarðarpósturinn ræddi við þær um ferðina í
gær og er viðtalið að finna í miðopnu blaðsins.
Listi yfir þá sem I Frá reisugildi 1 Nýrþáttur:
fengulóoirá 1 Rafveitunnar 1 „Fyrirtækin í Firðinum"
S.-Hvaleyrarholti ,.u a * -sjabls.2 -sjábls.4 -sjálbls.7