Fjarðarpósturinn - 31.08.1989, Síða 3
Það er Eyrún Gunnarsdóttir sem afhendir hér á myndinni Gísla Jónssyni, formanni Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar, ágóðann. Hjá henni standa þœr Matthildur Ragnarsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir. Auk
þeirra þriggja stóðu að hlutaveltunni: Matthildur Sigurðardóttir, Ásgeir Helgi Magnússon og Marta Þórðar-
dóttir.
Krakkamir taka frumkvæöið:
Fyrstu tekjur Krabbmeinsfélagsins
Krabbameinsfélag Hafnar-
fjarðar, sem hélt fund til að
endurvekja félagið nýverið, fékk
þann 3. júlí sl. fyrstu tekjur færðar
á bók. Tekjurnar voru gjöf frá
nokkrum börnum, sem gera sér
grein fyrir mikilvægi félagins. Þau
færðu formanninum, Gísla Jóns-
syni, ágóðann þann 3. júlí sl.
Með hlutaveltunni söfnuðust
kr. 2.242. Það er stór upphæð frá
krökkunum í hugum félaga í
Krabbameinsfélaginu, enda segja
þeir f fréttatilkynningu: „Þetta
mjög svo ánægjulega framtak
barnanna, eru fyrstu tekjur
Krabbameinsfélags Hafnarfjarð-
ar, eftir að það var endurvakið í
maí sl. Starfsemi þess hafði legið
niðri í 25 ár og enginn sjóður né
félagatal fyrir hendi.“ -
Fjarðarpósturinn sendir
krökkunum kveðjur og hamingju-
óskir fyrir mjög svo gott frum-
kvæði.
Gunnar Valdimarsson. Hugborg Umarsaottir.
Hvort sem þið trúið því eða ekki, þá gekk Gunnar Valdimarsson enn
á ný af hólmi með sigri. Ekki aðeins það, heldur vann hann á ný með
eina tölu rétta - og meira að segja sömu töluna, þ.e. 3. Við þökkum
Esteri Láru þolinmæðina og þátttökuna.
Við hringdum fyrst í Gunnar. Hann hló „ægilega" og kvaðst enn á ný
ætla að láta reyna á „taptölurnar", sem hafa ætíð leitt hann til vinnings.
Þær eru því: 3-6-9-12-13-15-26.
Ester Lára tók tapinu létt en hafði á orði, að kannski gengi illa að fá
tilnefndan arftaka til að vera með. Ester hafði rétt að mæla. Arftakinn
hafði þó á reiðum höndum þann sem hún taldi eiga mest og best erindi
í leikinn. Það er Hugborg Ómarsdóttir, nemi í Flensborg og starfs-
stúlka á Hrafnistu.
Það var fyrst þegar við fórum heim til Hugborgar og hún upplýsti
hver væri næsti nágranni hennar að við uppgötvuðum að þarna var vel
til fundið. AðTúnhvammi 7 býr Hugborg, en að Túnhvammi 5 Gunnar
Valdimarsson.
Hugborg var heldur ekki í neinum vandræðum með tölurnar, sagði
þær sambland af þessu öllu, sem Happfirðingarnir nefna, þ.e, afmælis-
dagar, happatölur fjölskyldunnar o.s.frv. Tölurnar eru: 2-7-12-15-25-
28-33.
MEIRA FYRIR M NNA VERD
Húsbyggjendur!
Smíða handrið, hring-
stiga og allar gerðir
af stigum.
Framleiði einnig
hliðarfellihurðir
Gerifösttilboð
JARNSMIÐJA
Jónasar Hermannssonar
! Kaplahrauni 14, Hafnarfirði
Sími 54468 (símsvari)
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ LEITA LENGRA
Q) ðRUNDARKJQRSBÚPIRNAR
Sækið eldci
vatnið yfír
lækinn,
því við önnumst
allar viðgerðir
á kæliskápum,
fiystikistum
og skápum.
Kæliskápa-
þjónustan
Reykjavíkurvcgi 62
að baki hússins • sími 54860
Furugrund 3 Kópavogi, sími 46955
Stakkahlíð 17 Reykjavík, sími 38121
Reykjavíkurvegur 72 Hafnarfirði, sími 53100
Opið á sunnudögum í Hafnarfirði frá kl. 11.00-18.00
W$>
C08756744
„HAPP“-
firðingar
vikunnar
i
3