Fjarðarpósturinn - 31.08.1989, Qupperneq 4
EMRMB
pöstunnn
RITSTJORI OO ABNI.: H-tTOA PROPPE
AUGLÝSINGASTJÓRI: ANNA ÓLAFSDÓTTIR
ÍÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON.
DREIFING: HALLDÓRA GYÐA MATTHlASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: FJARÐARPÓSTURINN OG RÓBERTÁGÚSTSSON
ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN PRENTVINNSLA: BORGARPRENT
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ REYKJAVÍKURVEGI 72 OG ER OPIN ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL 10-17. SÍMAR 651745 OG 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN).
Haltur leiðir blindan
„Stækkun" ríkisstjórnarinnar meö tilkomu Borgaraflokksins og
nýrra ráöherra - í og kannski utan embætta - er dæmigerð fyrir þá
óvirðingu sem þjóöinni er sýnd. - Allt stefnir í botnlaus svik stjórnvalda
á loforðum gefnum viö síöustu kjarasamninga. Verðhækkanaalda er
að ríða yfir og að venju eru opinber fyrirtæki og stofnanir þar í farar-
broddi.
Á sama tíma dundar forsætisráðherra sér og lögfróðir stuðnings-
menn hans við að finna út hvernig unnt er að komast hjá því að fara
að lögum um stjórnarráð íslands. Tilgangurinn? Jú, að leiða I valda-
stóla áhangendur flokksbrots, sem mælist varla í könnunum á því
hvað fólkið í landinu - þjóðin - kýs. Orðtakið að haltur leiði blindan, á
hér áreiðanlega best við.
Því má bæta við, að kannski skilurforsætisráðherra þetta innst inni.
Hann er a.m.k. steinhættur að tala um að styrkja ríkisstjórnina með
inntöku Borgaraflokksins. Nú er talað um að stækka hana.
Enginn skárri til að taka við?
Þjóðin er löngu búin að gefast upp á núverandi stjórnvöldum. Það
sýna skoðanakannanir best. Þráseta forsætisráðherra á áreiðanlega
aðrar skýringar en þær, að hann trúi í raun á það sem hann er að gera.
En það eru einnig margir sem segja, að þó þessi ríkisstjórn sé duglaus
og eflaust verri en engin, sé einfaldlega enginn til að taka við þjóðar-
búinu. - Ástandið skáni ekkert þótt nýjir flokkar taki við.
Of margir Framsóknarmenn
í Sjátfstæðisflokki
Ef við lítum á stærsta stjórnarandstöðuflokkinn, Sjálfstæðisflokk-
inn, þá er hann þessa dagana að kynna nýjar hugmyndir og tillögur í
efnahagsmálum. Þær virðast hugnast mörgum en stjórnmálaleg
meinsemd aldarinnar kom skýrt fram, þegarforustumaður þessflokks
útskýrði hugmyndirnar í sjónvarpinu í gærkvöldi. - Tillögur stærsta
stjórnmálaflokksins í landbúnaðarmálunum lágu ekki fyrir. Það er enn
verið að ræða þær í þingflokknum og auðvitað eru menn ekki sam-
mála fremur en fyrri daginn. - I þingflokki Sjálfstæðisflokksins eru
nefnilega meiri Framsóknarmenn en í sjálfu höfuðvíginu. Hér verða
engin nöfn nefnd en fyrsti stafurinn í nafni þriggja þeirra eru: Eggert,
Egill og Pálmi.
Ein þjóð, eitt land, eitt kjördæmi
Eins og Fjarðarpósturinn hefur áður gert að umræðuefni, næst ekki
friður til að stjórna landinu við ríkjandi kjördæmaskipan. - Sífellt auk-
inn hrepparígur og hagsmunapot þingmanna úr öllum flokkum fyrir
sín kjördæmi, eyðileggur meira og stuðlar að vitlausari fjárfestingum,
en tvær ríkisstjórnir Steingríms Hermannssonar til samans.
Við höfum fjölmörg dæmi hér um. Nýjasta dæmið er t.d. kaup Stál-
skipa á togaranum Sigurey. Þeir eru fljótir að gleyma Patreksfirðingar.
Þeir voru í sömu sporum og Hafnfirðingar, þegar þeir keyptu skip frá
Siglufirði árið 1982. Þá grétu Siglfirðingar.
Eina leiðin sem virðist fær til að menn slíðri sverðin, er uppstokkun
kjördæmaskipunarinnar. Að landið verði eitt kjördæmi, að þingmenn
verði að hugsa um hag þjóðarheildar hverju sinni. Það mætti að
ósekju fækka þingmönnum a.m.k. um helming um leið.
Sjö Hafnfir&ingar til Rússlands á vegum „Next stop sovét“;
Gegnum jámtjaldið með
íslensk þjóðlög að vopni
Þrjár hafnfirskar stúlkur og
fjórir piltar úr hafnfirsku hljóm-
sveitinni E-X eru á förum til
Rússlands. Þau fara á vegum sam-
takanna „Next stop sovét“, sem
eru samtök ungs fólks á Norður-
löndunum, sem efla vilja frið í
veröldinni. Tilgangur ferðarinnar
er að kynna menningu ólíkra
þjóða, brjóta niður fordóma og
stuðla að betri og friðsamlegri
samskiptum þjóða á milli. Stelp-
urnar, sem Fjarðarpósturinn
ræddi við í gær, orðuðu það svo að
þær ætluðu að leggja sitt af mörk-
um til að brjóta niður járntjaldið.
Stelpurnar eru Kristín Svan-
hildur Helgadóttir, Helga Lofts-
dóttir og Svafa Árnadóttir. Þær
halda utan með vel undirbúna
söngdagskrá. Hún samanstendur
af þjóðlögum, nýjum og gömlum,
ogklæðastþærþjóðbúningumþar yfir í þrjár vikur innan Sovétríkj-
semþærkomafram. Stákarnireru anna, en um viku tekur að aka frá
Pétur Hallgrímsson, Eyjólfur Kaupmannahöfn í bifreið upp
Lárusson, Davíð Magnússon og Svíþjóð og í gegnum Finnland.
Ragnar Ásgeir Óskarsson. Samtals fara í ferðina 40 manns
Hljómsveit þeirra E-X er upp- frá íslandi.
runnin í Víðistaðaskóla. í Rússlandi verða borgirnar
Ferðalag stúlknanna stendm Leningrad, Kiev og Moskva
heimsóttar, auk þess verður farið
til Tallin í Eistlandi, Riga í Lett-
landi, Vilna í Litháen og Minsk í
Hvíta-Rússlandi. í Rússlandi
verður búið á einkaheimilum.
Hver hópur skipuleggur sína ferð
sjálfur, en í lokin hittast allir hóp-
arnir, eða um 5.000 manns, í
Gorkígarðinum í miðborg
Moskvu.
Við óskum hafnfirska hópnum
góðrar ferðar og vonumst til að
þeim takist að lyfta járntjaldinu,
þó ekki væri nema svolítið.
Reisugildi vegna aðveitustödvar Rafveitunnan
Meira rekstraröryggi og
aukin flutningsgeta
Reisugildi nýrrar aðveitustöðv- ingunni og þakkaði þeim sem þar Flutningsgeta verður með þess-
ar Rafveitunnar var haldið sl. að hafa unnið. Einnig flutti bæjar- um breytingum mun meiri, orku-
föstudag. Nýja húsið er 4.140 stjóri þakkarræðu. töp minni og rekstarröryggi
rúmmetrar og 736 fermetrar að Áætlað er að húsið kosti full- meira, að sögn Jónasar.
grunnfleti. Núverandi aðveitu- búið um 30 millj. kr. Meðtilkomu Hönnuðir að byggingu eru: Er-
stöð er of lítil. spennar og sumir hússins verður einnig breyting á lendur Hjálmarsson, Sigurður
rofar yfirlestaðir, þannig að á sl. flutningi orku til bæjarins. Mun Þorleifsson, Verkfræðiþjónusta
vetri þurfti oft að grípa til diesel- það þá koma frá Hamranesi og Wilhelms V. Steindórssonar og
véla. í gildinu flutti Jónas Guð- fylgir 132 kílóvolta spennu þaðan Jón Gestur Hermannsson. Aðal-
laugsson rafveitustjóri ræðu, þar fyrirferðarmeiri búnaður, sem verktaki við bygginguna er Röst
sem hann gerði grein fyrir bygg- krefst stærra húsrýmis. h.f. í Hafnarfirði.
Jónas Guðlaugsson rafveitustjóri flytur rœðu sína í reisugildinu sl. föstudag.
Merkjasala Krabbameinsfélagsins
Merkjasala Krabbameinsfélagsins fer fram á öllu landinu 1. til 3. september n.k. Krabbameinsfélag
Islands hefur látið útbúa merkin og auglýsir söluna, sem einstök aðildarfélög munu sjá um. Merkið kostar
að þessu sinni kr. 200 og skiptist ágóðinn á milli Krabbameinsfélags íslands og aðildarfélaganna.
Sölusvæði Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar er Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaðahreppur. Hefur
félagið samið við Skátafélagið Hraunbúa um sölu merkisins í Hafnarfirði og Fimleikafélagið Björk um sölu
í Garðabæ og Bessastaðahreppi. Sölulaunum munu félögin verja til eflingar starfsemi sinnar.
Undír gafli hlakkar í nokkrum
andstæðingum meirihlutans í bæjar-
stjórn, enda ku embættismenn
nokkrir hjá bænum klóra sér stíft í
höfuðleðrið þessa dagana. - Ástæð-
an er sú, að svo mikið lá meiri-
hlutanum á að ganga frá lóðaút-
hlutunum á Holtinu að fyrri reglur
um hvernig staðið er að slíku voru
þverbrotnar. Þá var óðagotið
þvflíkt, að fæstir vita hversu mörg-
um lóðum þeir mega búast við, hvar
og því síður hvenær. - Vondar tung-
ur segja, að flýtirinn sé í tengslum
við hræðslu við einhvers konar lok-
un svæðisins vegna mengunarhættu.
- Það myndi aftur á móti þýða að illa
gengi að ná endum saman í bæjar-
sjóði í lok ársins.
Á DÖFINNI í HAFNARBORG:
Innsýn í menningu
íbúa Moldavíu
í Hafnarborg stendur yfir sýning Aðalheiðar Skarphéðinsdóttur,
en hún sýnir teikningar og grafik. Þá er þar enn sýningin Myndlist frá
Moldavíu.
MoldavíaíRússlandihefurver- búningum. Sýningin er á vegum
ið í fréttum síðustu daga vegna M.Í.R. í tengslum við Sovétska
baráttu innfæddra fyrir eigin Daga 1989.
tungu. Það er því fróðlegt að Sýningarnar eru báðar opnar
bregðaséríHafnarborg. Sýningin alla daga, nema þriðjudaga, frá
samanstendur af málverkum, kl. 14 til 19. Þeim lýkur þann 10.
svartlist, vefnaði og þjóðlegum september.
Römm var sú taug
Það gekk ekki áreynslulaust að koma gömlu Kænunni úr Firðinum.
Þegar búið var að losa húsið af grunninum voru fengnir tveir kranar til
að lyfta því. Notað var sem svarar 50 tonna átak, þegar húsið loksins
bifaðist af grunninum. Það var eins og það hefði skotið rótum, svo not-
uð séu orð verkstjóra Ríkisskipa, eða vildi ekki fara úr Firðinum, eins
og fyrri eigendur vildu fremur trúa.
Húsið var flutt í heilu lagi á Ekki sá á því eftir flutninginn.
dekki Esjunnar til Brjánslækjar. Það verðurvígtsemþjónustumið-
Flutningarnir tókust vel og sagði stöð fyrir farþega nýja Baldurs
Atli Michaelsen verkstjóri hjá þann 29. september n.k. og hefur
Ríkisskip, að góður viður væri fyrri eigendum þess verið boðið til
áreiðanlega í húsinu og það vel vígslunnar.
byggt.
230 böm dvöldu
í sumarbúðunum
Sumarstarfinu í Kaldárseli austan Hafnarfjarðar er að Ijúka um
þessar mundir, en þar hafa K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði rekið sumar-
búðir aUt frá árinu 1925. I sumar hafa dvalið þar 230 börn í fimm
drengjaflokkum og þremur stúlknafiokkum.
Undanfarin ár hafa staðið yfir
byggingaframkvæmdir í Kaldár-
seli og er smátt og smátt verið að
taka nýbygginguna í notkun. í
sumar var nýr leikja- og íþrótta-
salur notaður og kom hann í góð-
ar þarfir. Þessa dagana er verið að
leggja kyndingu í nýja húsið. Er
síðan fyrirhugað að halda áfram
við innréttingar.
Til að afla fjár til þessara fram-
kvæmda munu félögin að venju
halda samkomu og kaffisölu í
Kaldárseli og að þessu sinni verð-
ur það sunnudaginn 3. september.
Á samkomunni sem hefst kl.
14.30 mun séra Einar E.yjólfsson
fríkirkjuprestur í Hafnarfirði tala.
Að ræðu hans lokinni hefst kaffi-
salan sem stendur yfir til kl. 23.30.
í fréttatilkynningu frá félögum
hvetja þeir alla, unga sem aldna,
til að koma í Kaldársel n.k. sunnu-
dag og njóta þar góðra veitinga og
skemmtilegrar náttúru og styðja
félögin um leið í starfi fyrir
íslenska æsku.
Tomstundaheimilið
Innritun í tómstundaheimlið Dverg hefst mánu-
daginn 21. ágúst. Um er að ræða hálfsdagsvistun
fyrir eða eftir hádegi. Starfsemin er ætluð börnum
6-11 ára. Athugið að innritun er ekki bundin við
forgangshópa.
Innritun og upplýsingar í síma 50299 alla virka
daga frá kl. 10-16. Eftir 1. september í síma
52893.
ÆSKULÝÐS- OG TÓMSTUNDARÁÐ
HAFNARFJARÐAR
Hafnflrsk hjón mættu á sauma-
námskeið á síðasta vetri. Maður-
inn, sem er arkitekt, var ekki síður
áhugasamur en eiginkonan. í fyrsta
tímanum stóð saumavél eiginkon-
unnar eitthvað á sér. Eiginmaðurinn
brá sér til hennar til aðstoðar og
hafði á orði um leið, að vélin léti
svona af því að pabbi hans hefði ver-
ið með hana í láni.
Morgunhananir á Rás 2 tóku til
fótanna hingað í Fjörðinn sl. mánu-
dag, eftir að hafa lesið í Fjarðarpóst-
inum um eimingartæki Einars Ben á
nýju sýningu Byggðasafnsins. Þar
hittu þeir fyrir Magnús okkar Jóns-
son safnvörð og spurðu hann um
tækin, hvemig þau hefðu verið not-
uð og fleira. Ekki getur um viðbrögð
hlustenda utan Fjarðar við þessu
viðtali morguninn eftir, en Gaflarar
urðu steinhlessa á fyrirspyrjendun-
um að gera sér ekki grein fyrir þeirri
stórfrétt, sem þeir höfðu upp úr
krafsinu. - Þeir urðu nefnilega fyrst-
ir manna til þess að koma að tómum
kofanum hjá Magnúsi varðandi
gamla muni. Magnús baðst afsökun-
ar á fávisku sinni um það hvernig
tækin hefðu verið notuð - og bætti
því við, að hann væri Stórtemplar.
Auglýsingar
g 651745
Starfskraftur óskast
sem fyrst til afgreiðslustarfa hálfan daginn
Upplýsingar í síma 54450
CD
kdKUMNKInn
Miðvangi 41 - Álfaskeiði 115 - Fjarðarkaup
Meira af framboðshugleiðingum
og kosningamálum. Kvennalista-
konur eru sagðar vera komnar á
fulla ferð að koma saman lista fyrir
bæjarstjómarkosningar. Ekkert
hefur fréttst af Flokki mannsins, né
Félagi óháðra, enda af flestum talin
útdauð stjómmálasamtök.
Ólafur Proppé, bæjarfulltrúi
Frjálsa framboðsins, er sagður
undirbúa það að leggjast undir feld
til að finna sjálfstæða stefnu í bæjar-
málunum. Fyrr gerist ekkert á þeim
bæ að sögn gaflara. Ólafur verður
því væntanlega í bráð sammála síð-
asta ræðumanni.
WJLA Án rafmagns
" ^ " erum við illa stödd.
Þeir hyggnu greiða á gjalddaga.
RAFVEITA
HAFNARFJARÐAR
UTSALA
UTSArLA
-UTSAL.
,UTSALA
.UTSALA
ÚTSALAALLUR fatnaður
___^ÚTSALA Á
UTSALA“»"*;
OPIÐ14-18 I EKKERT YFIR
laugard |'n"cÍAI AA KR.1000.
.uÍsaalaa KJARABÓT
UTSALA REYKJAVÍKURVEGI 68
10-14
5