Fjarðarpósturinn - 31.08.1989, Blaðsíða 7
FYRIRTÆKINIFIRÐINUM:
Hér hefst nýr þáttur í Fjarðarpóstinum, undir yfirskriftinni
„Fyrirtækin í Firðinum“. Þar munu birtast upplýsingar um ný
fyrirtæki; fyrirtæki sem flutt hafa aðsetur og annað það sem getur
orðið lesendum blaðsins til fróðleiks og þæginda varðandi þjónust-
una í bænum. - Tilgangurinn er ekki síður, að efla verslun og við-
skipti innanbæjar.
Fjarðarpósturinn hvetur fyrirtæki og þjónustustofnanir til að
hafa samband við blaðið, þegar eitthvað það ber við í starfinu, sem
lesendur blaðsins hafa hag af að kynnast.
Nýr bílasali ■ aukið öryggi
Nýr eigandi hefur tekið við Bílasölu Hafnarfjarðar að Dals-
hrauni 1. Það er Valdimar Þorvaldsson. Auk bílasölunnar ætlar
Valdimar að opna bílaþvotta- og bónstöð í kjallara hússins. Auk
þess verður á næstu dögum settur upp öryggisútbúnaður á bíla-
stæðinu, sem hrekja ætti hvern bílaþjóf á brott. Valdimar er hér á
myndinni til hægri, ásamt starfsmanni sínum, Gunnlaugi Viðars-
syni.
Öryggisbúnaðurinn, sem settur verður upp á svæðinu, er þannig
útbúinn, að hver sem fer inn á bílastæðið eftir ákveðinn tíma á
kvöldin fær á sig lýsingu í þúsund einingum. Þá verða upptökuvélar
staðsettar utan á húsinu sem senda stöðugt myndir inn á stöð
öryggisvarða. Hér mun um nýjung að ræða í öryggisgæslu, sem
koma á í veg fyrir að harðsvíraðir koppa-, bílaútvarps- og bílaþjóf-
argeti gert hafnfirskum bílaeigendum í söluhugleiðingum grikk.
Snéri á höfuðborgarveldið
Gallerý Sara, sem er vefnaðarvöruverslun, hefur flutt aðsetur
sitt að Trönuhrauni 6. Verslunin er eins árs um þessar mundir. Eig-
endur eru Ragnheiður Matthíasdóttir, innfæddur Gaflari og Guð-
mundur Brandsson, en þau reka einnig heildverslunina Sissý, sem
sérhæfir sig í vefnaðarvöru og búnaði í líni fyrir sjúkrahús. Ragn-
heiður er hér á myndinni, lengst til hægri, ásamt verslunarstjóran-
um í Söru, Björgu Óskarsdóttur í miðið og Rögnu Einarsdóttur
afgreiðslustúlku.
Ragnheiður hefur á skemmtilegan hátt skotið Reykjavíkurveld-
inu á sviði vefnaðarvöru aftur fyrir Hafnfirðinga. Nú streyma höf-
uðborgarbúar til Hafnarfjarðar eftir nýjustu efnunum, enda aðeins
seld í Söru. Ragnheiður hefur heildsöluumboð frá öllum bestu
framleiðendum í Evrópu, m.a. heimsþekktu fyrirtæki í Hollandi,
sem framleiðir barnafataefni. Hún selur síðan aðeins einni verslun
á hverjum stað á landsbyggðinni vöruna og sér sjálf um söluna á
höfuðborgarsvæðinu í Gallerý Söru.
Ragnneiöur sagði haustlínuna mjög skrautlega. Hún kvaðst
einnig nema mjög vaxandi áhuga fólks, bæði karla og kvenna, á því
að læra að sauma. Gallerý Sara gengst fyrir saumanámskeiðum í
vetur. Ragnheiður sagði í lokin, að frá og með 1. september yrði
Gallerý Sara opin á laugardögum frá kl. 10 til 14.
Myndbandaleigu „startað"
Norðurbæingar hafa eflaust horft lengur og meira á myndbönd í
síðustu viku en gengur og gerist. Þar kemur til opnunartilboð frá
nýrri videoleigu í verslunarmiðstöðinni Miðvangi.
Myndbandaleigan heitir „Vídeó-Start“ og er eigandi hennar
Sigurður Þór Sigurðsson, sem er til hægri á myndinni, ásamt syni
sínum Sigurði Björgvini, sem annast afgreiðslu.
Myndbandaleigan er opin alla daga frá kl. 14 til 23.30, en Sigurð-
ur sagðist kappkosta að hafa ætíð nýjasta efnið á boðstólunum.
Fyrir þá sem aldrei vita hvað þeir vilja, liggur frammi nýjasta
dómplagg um myndir á myndböndum úr DV.
Menntamálaráðuneytið:
Tilnefni fulltrúa
í skólanefndimar
Menntamálaráðuneytíð hefur hvorn skóla fyrir 15. september
sent bæjaryfirvöldum bréf, þar n.k.
sem þess er farið á leit, að bæjar- Þetta er í samræmi við lög nr. 72
stjórn Hafnarfjarðar tilnefni full- um framhaldsskóla frá þessu
trúa í skólanefnd fyirr Flensborg- ári,þar sem ákveðið var að ríkið
arskóla og Iðnskólann í Hafnar- yfirtaki þessa skóla. Það mun ger-
firði. Tilnefna skal þrjá fulltrúa í ast frá og með næstu áramótum.
Húsnæði óskast.
Einbýlishús, raðhús, eða stór
íbúð óskast í Hafnarfirði eða
Garðabæ til leigu. Góð
umgengni hjá góðu fólki.
Vinsamlegast hafið
samband í síma 76539 eða
652501.Jóhann.
Til sölu. Skemmtari Casio
MT 18, billiardborð fimm feta
og Stiga snjósleði með stýri
og bremsum. Upplýsingar í
síma 52691.
Óskast keypt. Eftirtaiin
húsgögn óskast keypt,
gömul eða í gömlum stíl:
1. Lágur stofuskápur
(skenkur) a.m.k.195 cm á
lengd.
2. Hjónarúm eða gaflar af
gömlu hjónarúmi.
3. Náttborð af gömlu gerðinni
með skúffu og skáp.
Húsgögnin mega þarfnast
viðgerðar. Uppl. í síma
52161. Guðrún.
Sjúkrakassar
fyrir heimili, vinnustaði
og íþróttafélög
Kælipokar og aðrar íþróttavörur
Tökum á móti fyrndum
lyfjum til eyðingar
Opið virka daga kl. 9-19
Laugardaga kl. 10-14
Opið annan hvern sunnudag
Upplýsingar um vaktþjónustu á sunnudögum
og helgidögum í síma 51600 (símsvari)
HAFNARFJARÐAR APÓTEK
STRANDGÖTU 34 - PÓSTHÓLF 214 - 222 HAFNARFJÖRÐUR
SÍLR5RLR
HRFnRRFJRRBFtR
Dalshrauni 1, Hafnarfirði
FORD ESCORTXR3 ’81. Eklnn 100
þús. km. RAUÐUR. Verð 350 þús.
BMW 316 ’82. Ekinn 105 þús. km.
Verð 290 þús. VlNRAUÐUR. Bein
sala.
DODGE ARIES '87. Eklnn 45 þús.
km. Verð 790 þús. HVÍTUR. Beln
sala.
TOYOTA CARINA ’82. Eklnn 97 þús.
km. GULLSANS. Verð 250 þús.
Skiþti ódýrarl.
TOYOTA TERCEL 4x4 '83. Eklnn
245 þús. km. BRÚNN. Verð 320 þús.
km. Beln sala.
PORCHE 924 TURBO '79. Ekinn 125
þús. km. GRÁR og DÖKKBLÁR.
Verð 790 þús.
CHEROKEE CHIEF ’75. Ekinn 134
þús. km. Verð kr. 295 þús. BEIGE.
ERUMMEÐ YFIR
700 BÍLA Á SKRÁ.
VANTAR ALLAR GERÐIR
BIFREIÐAÁ PLANIÐ.
652930
©
652931
SILR5RLRI
HRFRRRFJRRRRR
7