Fjarðarpósturinn - 31.08.1989, Síða 8
Það var fjölmenni í hinu nýja og glæsilega húsnæði Kænunnar,
þegar húsið var formlega opnað sl. föstudag. Hafnarstjóri, Guð-
mundur Árni Stefánsson, færði eigendum Kænunnar, Elsu Aðal-
steinsdóttur og Ingvari Árnasyni, ljósmynd af Hafnarfjarðarhöfn í
tilefni dagsins og er myndin hér að ofan tekin við það tækifæri.
Nýja Kænan mun bjóða upp á kaffi og kökur og heitan mat í
hádeginu. Þá hefur verið komið upp grillaðstöðu og verður húsið
einnig leigt út til funda- og skemmtanahalds á kvöldin og um
helgar.
Hraunborgaimót 10. og 11. sept.
Kiwanisklúbburinn Hraunborg gengst fyrir knattspyrnumóti allra
aldursflokka og beggja kynja dagana 10. og 11. september n.k.
Allir þátttakendur verða heiðr- með þátttöku 400-500 manns á
aðir og síðan hlýtur það félagið, mótinu, en Hraunborgarmenn
sem vinnur fleiri leiki farandbikar hyggjast gera mótið að árlegum
til varðveislu. Einnig verður besti viðburði í lok knattspyrnuvertíð-
dómari heiðraður. Reiknað er ar.
Rólegt sumar hjá slökkviliðinu:
Bókhaldsbruni
vio Kúagerði
Af skýrslum slökkviliðsstjóra fyrir mánuðina júní og júlí má lesa að
fremur rólegt hefur verið hjá slökkviliðinu þá mánuðina. IJúnímánuði
voru sjö útköll vegna elda, sem allir voru smávægilegir. I júlímánuði
voru útköll vegna elda aðeins fjögur.
Ferðum vegna boða frá við- brenna suður af „Kúagerði". Par
vörunarkerfum fjölgar sífellt. reyndist um íkveikju að ræða á
Oftast er um bilanir að ræða. bókhaldi fyrirtækis. Þetta var til- ■
í júnímánuði kom tilkynning kynnt til „Brunavarna Suður-
frá flugvél urn að bíll væri að nesja“.
Ungverjar undirbúa
uppsetningu húsa
Framkvæmdum miðar vel á grunni á næstu vikum.
svæði Stálfélagsins á Hellna- Verksmiðjan var keypt notuð
hrauni. Til landsins eru komnir frá Frakklandi, en hún var fram-
nokkrir Ungverjar sem annast leidd í Ungverjalandi. Ungverj-
munu uppsetningu á sjálfu verk- arnir eru frá framleiðsluaðilum.
smiðjuhúsinu, sem risa mun af
Önnumst alla almenna
verktakavinnu, jarðvinnu,
sprengingar, byggingar-
framkvæmdir, vélaleigu
og hönnun.
HAGVIRKI
Böggunarstö&in líklega í Gufunes eöa á GrafaHiolt:
Möguleiki á að önnur stöð
veroi reist í Hafnarfirði
Borgaryfirvöld hafa átt viðræð-
ur við landeigendur í Gufunesi og
á Grafarholti vegna hugsanlegrar
staðsetningar sorpböggunar-
stöðvar þar. Varðandi fyrirhug-
aða staðsetningu böggunarstöðv-
ar á Hellnahrauni þá hefur komið
til umræðu, að hér verði reist önn-
ur stöð, „myndarleg gámamót-
tökustöð“, að sögn Ogmundar
Einarssonar framkvæmdastjóra flutningi urðunarsvæðisins á Álfs-
Sorpeyðingar höfuðborgarsvæð- nes er staðsetning í Gufunesi, við
isins. hlið Áburðarverksmiðjunnar,
Endanleg afgreiðsla málsins eða á Grafarholti talin líklegust.
hvað varðar urðun í Álfsnesi býð- Samkvæmt heimildum Fjarðar-
ur nú afgreiðslu borgarráðs á póstsins ræða menn nú þann
samningi borgarinnar við Kjal- möguleika, að í Hafnarfirði verði
arneshrepp. Staðsetning böggun- staðsett önnur stöð, en væntan-
arstöðvarinnar hefur ekki verið lega minni. Hún myndi þá einnig
rædd við Hafnfirðinga, en með geta þjónað Suðurnesjum.
Hafnarstjóm Hafnarfjaröar vegna Sigureyjar:
Byggðasjóóur lióki til, meó atvinnu
í Hafnarfjarðarbyggð aó leióarljósi
Hafnarstjórn sendi frá sér eftir-
farandi ályktun í gær í tilefni af
kaupum Stálskipa á togaranum
Sigurey:
„Hafnarstjórn Hafnarfjarðar
fagnar komu ísfisktogarans Sigur-
eyjar til Hafnarfjarðar og þeirri
fyrirætlan útgerðarinnar Stál-
skipa h.f., að selja aflann hjá Fisk-
markaðnum h.f. í Hafnarfirði.
Hafnarstjórn lýsir yfir áhyggj-
um sínum af stöðu útgerðar og
fiskvinnslu í bænum, eftir að
ísfisktogarinn Otur var seldur fyr-
ir nokkrum vikum til Hornafjarð-
ar, auk þess sem fleiri skip og bát-
ar hafa verið seldir úr bænum að
undanförnu.
Því eru vonir til þess, að með
komu Sigureyjar til Hafnarfjarðar
verði unnt að sporna gegn því erf-
iða ástandi sem við blasir í
atvinnumálum byggðarlagsins.
Væntir hafnarstjórn þess, að
opinberir sjóðir, svo sem Byggða-
sjóður, liðki til fyrir málum þess-
um með atvinnu í byggðinni
Hafnarfirði að leiðarljósi.“
Stefnt á tindinn
Ákveðnin skein úr svip stelpnanna á æfingu hjá Björkunum
nýverið. Þar var hver vöðvi auðsjáanlega undir ströngu eftirliti og
aga og hrein unun að sjá, hversu langt stelpurnar hafa náð.
Fjarðarkaup, stórmarkaður
Grundarkjör, stórmarkaður
Verslunin Arnarhraun, Arnarhrauni 21
Hringval, Hringbraut 14
Kastalinn, Hverfisgötu 56
Biðskýlið Hvaleyrarholti
Söluturninn, Hvaleyrarbraut 3
Söluturninn, Suðurgötu 71
Söluturninn, Hringbraut 14
Olís við Hafnarfjarðarveg, Garðabæ
Söluturninn Gissur Gullrass, Strandgötu 30
Bensínstöð ESSO, Lækjargötu 46
Biðskýlið, Flatahrauni
Fjarðarnesti, Bæjarhrauni 4
Dals-Nesti, Dalshrauni 13
Bílastöð Hafnarfjarðar, Reykjavíkurvegi 58
Nesti, Reykjavíkurvegi 54
Skalli, Reykjavíkurvegi 72
Söluturninn, Miðvangi 41
Turninn, Strandgötu 11
Söluturninn, Reykjavíkurvegi 3
Söluturninn, Hellisgötu 18
Verslun Þórðar Þórðarsonar, Suðurgötu 36
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31
Matvöruverslunin Framtíðin, Vesturbraut 12
Kaupfélagið Miðvangi, stórmarkaður
Olís, Vesturgötu 1
Bókabúð Böðvars v/Reykjavíkurveg
Hraunver við Áifaskeið