Fjarðarpósturinn - 04.10.1990, Side 5
EJflRDflR
Döstunnn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÍÐA PROPPÉ'
AUGLÝSINGASTJÓRI: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR
IÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR OG ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
INNHEIMTUSTJÓRI: SIGURÐUR GlSLI BJÖRNSSON
PRENTVINNSLA: GUÐMUNDUR STEINSSON OG BORGARPRENT
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ BÆJARHRAUN116,3. HÆÐ, PÓSTFANG 220 HAFNAR-
FIRÐI. OPIÐ ER ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 651945 (SlMSVARI EFTIR LOKUN) OG
651745. FJARÐARPÓSTURINN ER AÐILIAÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA.
Álver eða ráðherrastólar
Það kemur væntanlega fram á næstu sólarhringum, hvort hags-
munum þjóðarinnar er hætta búin vegna stjórnmálamanna, sem telja
pólitíska hagsmuni sína skipta meira máli en atvinnuöryggi og hags-
munir heilu byggðarlaganna, og reyndar landsmanna I heild.
Fjarðarpósturinn hefur ítrekað lýst skoðunum sínum á langvarandi
deilum innan ríkisstjórnar og á alþingi vegna staðsetningar nýs
álvers. Þrátt fyrir góð tilþrif innan ríkisstjórnarinnar með Alþýðubanda-
lagsmenn I fararbroddi, að reyna að klúðra málinu hefur það ekki enn
tekist. Nú er að sjá hvort þeim tekst það á lokastiginu?
Alþýðubandalagið og álver
Það ervissulegaábyrgðarhluturaðtaka þátt I ríkisstjórnarsamstarfi
með Alþýðubandalaginu, eins og það hefur hagað sér I álversmálum
undanfarinn áratug. Þeir sem muna atgang Hjörleifs Guttormssonar
gagnvart Alusuisse og hvernig honum tókst næstum því að eyðileggja
samningamöguleika okkar um ófyrirséða framtíð hvað varðar stóriðju
og sölu á raforku, ættu að vera búnir að setja aðvörunarljósin í gang,
miðað við umræðu dagsins I dag.
Alþýðubandalaginu er engan veginn treystandi I þessu máli, því í
herbúðum þeirra eru margir Hjörleifar. Það var meiriháttar kraftaverk
hvernig Sverri Hermannssyni, arftaka Hjörleifs í iðnaðarráðherrastóli,
tókst að vefja ofan af vitleysunni sem Hjörleifur Guttormsson var bú-
inn að koma þeim málum í. Vonandi hafa ráðherrarnir vit á að láta
ríkisstjórnina fremur deyja drottni sínum en að leggjast í vitavonlaus-
ar samningaviðræður, sem geta aðeins orðið ómæld „Hjöll“ án ár-
angurs.
Ábyrgð eða ábyrgðarieysi
Upplýsingar um stöðu húsnæðismála í Firðinum og hið nýja stjórn-
kerfi í félagslega íbúðakerfinu, sem fram koma í viðtalinu við Grétar
Þorleifsson í miðopnu, vekja óneitanlega ugg. Vandinn er gífurlegur,
eins og fram kemur. Hátt í 300 fjölskyldur eru á biðlista og á sama tíma
virðist húsnæðiskerfið í rúst. Ný lög, reglugerðir að ótöldu umburðar-
bréfi, sem félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur atorkað
að senda frá sér, hefur gert slíkan usla, að enginn virðist lengur vita
hvað snýr upp og hvað niður í ringulreiðinni.
Það eru einnig ógnvekjandi staðreyndir, að frumhlaup og hroka-
gikksháttur einstakra bæjarstjórnarmanna í Hafnarfirði, hafi orðið til
þess að eyðileggja þá möguleika sem gott samstarf bæjaryfirvalda við
verkalýðshreyfinguna hefði getað leitt af sér til hagsbóta fyrir þá sem
verst eru settir. Einkahagsmunir og pólitískt pot hefur haft forgang á
bæjarskrifstofunum. Aukið sjálfstæði og aukin áhrif verkalýðshreyf-
ingarinnar í húsnæðismálum á timum þjóðarsáttar hljóma sem háðs-
yrði af vörum bæjarstjórnarmeirihlutans hér eftir.
Það er a.m.k. hverjum manni Ijóst, eftir lestur viðtalsins við Grétar
Þorleifsson, að í jafnaðarmannastefnu bæjarstjórnarmeirihlutans eru
sumir miklu jafnari en aðrir. Allt tal um ábyrgð bæjarstjórnarmeirihlut-
ans á störfum húsnæðisnefndar er hreint ábyrgðarleysi í Ijósi þess
hvernig staðið hefur verið að málum gagnvart meirihluta húsnæðis-
nefndar.
Grétar Þorieifsson, forustima5urveikalý6shreyfingariimar íHafnarfirði ogfwmaðurhúsnæiisnefndaR
1
jAlþýðuflokkurinn aö slitna úr tengslum við uppruna sinn“
„Burtséð frá öllu öðru, þá er jafnaðarstefnan mín pólitíska lífsskoðun. Ég tel vinnubrögð AJþýðuflokks-
ins í Hafnarfirði í málefnum Húsnæðisnefndar alls ekki eiga neitt skylt við þá stefnu. Hún bendir mildu frek-
ar til ráðríkis og einstaklingshyggju“, sagði Grétar Þorleifsson m.a. í viðtali við Fjarðarpóstinn. Tilefnið er
barátta nefndarínnar við bæjaryfirvöld um sjálfstæði og ávkörðunarrétt, m.a. til að fá hæfan forstöðumann.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, og þá sérstaklega bæjarstjórí, hafa látið stór orð falla m.a. á bæjar-
stjómarfundum í garð Grétars og Sigurðar T. Sigurðssonar, fulltrúa verkalýðshreyfingarínnar í nefndinni.
Þeir hafa m.a. verið kaUaðir hryðjuverkamenn og sagðir hafa myndað hræðslubandalag við Sjálfstæðis-
flokk og Alþýðubandalag um meirihluta í Húsnæðisnefnd. „Þetta eru barnaleg ummæli, sem dæma sig
sjálf, og eiga enga stoð í veruleikanum“, sagði Grétar. „Þetta persónulega skítkast er hins vegar komið á
það stig, að ég tel fulla þörf á að koma réttu máli á framfæri, þó ég sé ekki mikið fyrír að reka deUumál í fjöl-
miðlum.“
Grétar greinir svo frá aðdrag-
anda þessa stóra deilumáls: „Al-
þýðuflokkurinn á rétt á tveimur
fulltrúum af sjö í Húsnæðisnefnd.
Flokkurinn ákvað strax, að annar
þessara aðila yrði formaður nefnd-
arinnar. Þetta var gert, án nokk-
urs samráðs við aðra tilnefningar-
aðila. Það kom fljótlega í ljós í
nefndinni, að engin samstaða var
um þessa einstrengingslegu
ákvörðun. Ég var erlendis þegar
þessi deila kom upp og kom henni
því ekki af stað, eins og fullyrt
hefur verið. Þegar ég kom heim
var allt í hörðum hnút og ég hóf
þegar tilraunir til að leysa hann
með viðræðum við bæjarstjóra og
fleiri aðila. Öllum málamiðlunum
var því miður hafnað og því kom
til kosninga á fyrsta fundi nefnd-
arinnar.
Ég ákvað ekki að gefa kost á
mér í þennan slag fyrr en ég hafði
reynt til þrautar að miðla málum.
Það kom síðan í ljós, að fulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags studdu framboð mitt.
Allt tal um „hræðslubandalag" og
annarleg vinnubrögð er því al-
gjörlega út í hött.
Alþýðuflokkurinn
kom deilunni af stað
Við Sigurður lýstum því yfir
strax í upphafi, að hlutverk nefnd-
arinnar í heild væri að útrýma hin-
um hrikalega vanda, sem við er að
glíma í húsnæðimálum fjölda
fólks í Firðinum og myndum við
beita okkur fyrir mjög nánu sam-
starfi við bæjaryfirvöld. Eftir
þessu höfum við unnið síðan og ég
get sagt það nú, að þessi stefna
hefur sem betur fer orðið ofan á.
Þannig hefur nefndin unnið ein-
huga að tillögugerð til úrbóta á
öllum þeim sviðum sem við höfum
fjallaðum.
Það var Alþýðuflokkurinn sem
kom deilum af stað með því að
krefjast þess, að tvö atkvæði hans
í nefndinni réðu gerðum hinna
fimm fulltrúanna. Þessi krafa náði
einfaldlega ekki fram að ganga.“
- Því hefur verið haldið fram,
að þú hafir Sigurð T. í vasanum,
og jafnvel einnig aðra verkalýðs-
leiðtoga í bænum. Hvað viltu
segja um það?
„Jú, þetta er ein fullyrðingin,
sem lýsir því kannske best, hve
Alþýðuflokkurinn talar af mikilli
vanþekkingu um verkalýðshreyf-
inguna. Alþýðuflokkurinn er að
mínu viti að slitna mikið úr tengsl-
um við uppruna sinn.
í ASI-félögunum í Firðinum
eru nú um 3200 fullgildir félagar.
Ég kem frá félagi sem telur rúm-
lega 200 af þeim hópi. Samstarf
félaganna í Firðinum byggir á ára-
löngum grunni, sem komst á undir
forustu Hermanns Guðmunds-
sonar, sem var okkar forustumað-
ur um áratuga skeið. Hann, ásamt
öðrum forustumönnum, byggði
upp það skipulagsform sem
verkalýðshreyfingin býr við enn
þann dag í dag. Reyndar er það
kerfi farið að riðlast víða um land,
illu heilli, en hér í Firðinum hefur
það haldið og hefur samstarfið
verið að aukast frekar en hitt með
sífellt nánara samstarfi félag í
kjarasamningum og fleiru. Ef ein-
hver aðili ætlaði að fara að stjórna
með tilskipunum, eins og „Gorbi
gerir nú í Sovét“ þá yrði sá aðili
ekki langlífur sem framámaður.
Það hefur komið í minn hlut, nú
um nokkurra ára bil, að vera í
forsvari fyrir Fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna hér í bæ. Ég hef
notið þess í því starfi, hve trúnað-
artraust og samstarf félaganna er
gott. Vissulega erum við ekki allt-
af sammála um hlutina, en við
setjumst þá niður og ræðum málin
og komumst að sameiginlegri
stefnu, sem við stöndum síðan
saman um sem einn maður.
Nokkuð sem aðrir ættu að at-
huga“.
Hurðaskellir
°g yfirgangur
- Hvað með deiluna varðandi
sjálfstæði Húsnæðisnefndarinn-
ar?
„Alþýðuflokkurinn í Hafnar-
firði hefur lýst því yfir, að vegna
fjárhagslegrar ábyrgðar bæjarins,
verði bærinn að hafa sterk ítök í
nefndinni. Þetta er fyrirsláttur, að
mínu viti. Það á einungis að bæta
sér upp áfallið frá formannskjör-
inu.
Hið rétta í þessu máli er það, að
nýju lögin draga verulega úr
skuldbindingum bæjarins. Þannig
var það samkvæmt eldri lögum,
að bærinn þurfti að leggja fram
10% af framkvæmdum hvers árs
og fékk það ekki endurgreitt.
Hins vegar þarf bærinn að kaupa
skuldabréf af Húsnæðisstofnun,
sem fást endurgreidd á 15 árum
með vöxtum og verðbótum. Því
dregur stórlega úr útgjöldum
bæjarins.
Éf menn hefðu viljað ræða
málin, hefði jafnvel mátt gera
samkomulag við verkalýðsfélögin
í Firðinum um samstarf á breiðum
grundvelli um húsnæðismálin,
jafnvel endurkaup lífeyrissjóð-
anna á verulegum hluta skulda-
bréfanna. Ég er þess fullviss, að
hægt hefði verið að ná góðu sam-
starfi, ef menn hefðu opnað við-
ræður í stað þess að skella hurðum
og vera með yfirgang.
Annað í þessu máli er, að marg-
ir halda, að bærinn reki starfsemi
Húsnæðisnefndar. Þetta er
alrangt. Húsnæðisnefnd hefur
sjálfstæðar tekjur af verkefnum
hverju sinni og sækir enga pen-
inga í bæjarsjóð og bærinn leggur
ekkert fram.“
Hefndarráðstöfun
eftir formannskjörið
Varðandi sjálft aðaldeilumálið,
ráðningu forseta bæjarstjórnar,
Jónu Óskar Guðjónsdóttur, í
Grétar Porleifsson
stöðu forstöðumanns Húsnæðis-
nefndar, sagði Grétar: „Ég vil
skipta því máli í tvo þætti. Annars
vegar er þáttur Alþýðuflokksins,
sem ákvað, að ná sér niðri á
nefndinni með þessari ráðstöfun,
eftir tapið í formannskjörinu. Þau
vinnubrögð sem þar voru viðhöfð
eru með eindæmum.
Að kröfu bæjarstjórans var
Láru Sveinsdóttur, skrifstofu-
stjóra stjórnar verkamannabú-
staða sagt upp störfum. Ég vil sér-
staklega benda á það, að þegar
Lára var ráðin var henni synjað
um að vera áfram í Eftirlauna-
sjóði bæjarins, þar sem hún væri
farin að starfa í félagslega kerfinu
og teldist því ekki lengur starfs-
maður bæjarins. Það er aldeilis
viðhorfsbreyting nú, þegar allt
kapp er lagt á að tryggja yfirráð
bæjarins yfir þessum starfsmönn-
um.
Húsnæðisnefnd auglýsti eftir
forstöðumanni og auk þess skrif-
stofumanni í hálft starf. Nefndin
var sammála um að gera þær kröf-
ur til umsækjenda, að þeir upp-
fylltu skilyrði um staðgóða þekk- sínum. Ég vil nota þetta tækifæri
ingu á rekstri, tölvuvinnslu og til að bjóða nýráðna starfsmenn
hefðu auk þess góða framkomu.
Sex af sjö nefndarmönnum
greiddu þessu atkvæði. Auglýs-
ingin var samin í samráði við
bæjarstjóra, sem gerði aðeins at-
hugasemdir við orðalag og var því
breytt að hans tillögu.
Fáum dögum eftir að auglýsing
Húsnæðisnefndar birtist, ákvað
Alþýðuflokkurinn að auglýsa
sömu stöður á nýjan hátt, en þá
voru allar kröfur til umsækjenda
felldar niður.
Eftir að umsóknarfrestur rann
út fól Húsnæðisnefnd þeim
Tryggva Harðarsyni og Magnúsi
Gunnarssyni að fara yfir umsókn-
irnar og velja úr aðila, sem upp-
fylltu áðurnefnd skilyrði. Þeir
lögðu síðan fram 12 nöfn, sem
þeir voru sammála um, að kæmu
til greina. Auk þess lagði Tryggvi
fram nafn Jónu Óskar Guðjóns-
dóttur og taldi hana hæfasta í
starfið að sínu mati. - Sem sagt 12
plús 1.
Magnús lýsti sig hins vegar and-
vígan þessu mati Tryggva. Áfram
unnu þeir Magnús og Tryggvi og á
næsta fundi lagði Magnús fram
rökstudda tillögu um að Pétur
Árnason yrði ráðinn þar sem hann
uppfyllti skilyrði nefndarinnar og
hefði mikla starfsreynslu í rekstri.
Tryggvi ítrekaði hins vegar enn
nafn Jónu Óskar, með sama rök-
stuðningi og fyrr.
Ummæli Tryggva
dæma sig sjálf
Við Sigurður T. Sigurðsson
ákváðum, þegar staðan var orðin
slík, að þar sem við töldum okkur
fullvissa um að bærinn ætlaði að
hundsa faglegt mat á umsækjend-
um, að mótmæla þessum vinnu-
brögðum með bókun, þar sem við
frábáðum okkur ábyrgð á slíku,
en lýstum jafnframt stuðningi við
faglega og rökstudda tillögu
Magnúsar um Pétur Árnason. Við
töldum mjög mikilvægt, að fá
reyndan mann á sviði fjármála og
bókhalds, þar sem um mikla
ábyrgð er að ræða, enda ársveltan
á bilinu 700 til 1.000 milljónir, ef
áætlanir ganga eftir. Ég legg mikla
áherslu á, að ég vil ekki koma ná-
lægt stjórnun þar sem fjármál eru
í ólestri.
Við Sigurður fengum miklar
ákúrur af hálfu bæjarstjórnar-
meirihlutans fyrir þessa afstöðu
okkar og Tryggvi lýsti með bókun
afstöðu okkar út í hött. Hann
sagði jafnframt að sitt mat á Jónu
Ósk væri byggt á faglegum grund-
velli. Þessi ummæli Tryggva
dæma sig sjálf. Það sjá það allir,
að þegar bæjaryfirvöld sjá ástæðu
til að sníða auglýsingu sína að um-
sækjenda, enn ekki starfinu, þá
eru faglegu vinnubrögðin orðin
léttvæg.
Hin hliðin á málinu er mannlegi
þátturinn. Við stöndum frammi
fyrir orðnum hlut. Meirihluti
bæjarstjórnar hefur ráðið nefnd-
inni starfsmenn. Ég hlýt að leggja
ofurkapp á það, að starfsemin
gangi, án stöðvunar. Lára Sveins-
dóttir er hætt störfum, verkefnin
eru óhemjumikil og þola ekki bið.
Ég vona því að nýir starfsmenn
nái hið fyrsta valdi á störfum
velkomna til starfa og vænti þess
sannarlega að samstarfið verði
gott.
Ég vil einnig þakka Láru sam-
starf okkar, en við unnum saman
mikið starf fyrir nokkrum árum,
þegar ég var formaður stjórnar
verkamannabústaa, en hún skrif-
stofustjóri.“
Ráðherra í listdansi
i kringum sjálfan sig
- Þið Sigurður T. deilduð hart
á félagsmálaráðherra í umræddri
bókun ykkar í húsnæðisnefnd.
Hver er þáttur ráðherrans, Jó-
hönnu Sigurðardóttur, í málinu?
„Félagsmálaráðherra sendi frá
sér aldeilis furðulegt umburðar-
bréf, þar sem hún túlkar nýsett lög
á vægast sagt vafasaman hátt. I
þessu bréfi fer ráðherra á kostum
og reyndar minnir þetta mig á
listdans, þar sem menn snúast
marga hringi um sjálfa sig. Ráð-
herra segir í bréfinu, að Hús-
næðisnefndir eigi að senda fund-
argerðir til sveitarstjórna til kynn-
ingar. Ég vil vekja sérstaka at-
hygli á þessu. Ráðherra segir
ekki, að sveitarstjórn eigi að sam-
þykkja fundargerðir Húsnæðis-
nefnda. Þannig er ráðherra að
gefa ákveðið sjálfstæði nefndanna
í skyn, að sjálfsögðu innan þess
ramma sem sveitarstjórn og
Húsnæðisnefnd ákveða með
framkvæmdamagni.
Síðan kemur rúsínan í pylsu-
endanum. Ráðherra segir nefni-
lega í næstu setningu, að sveitar-
stjórnir eigi að ráða starfsmenn og
ákveða launakjör þeirra. - Sjálf-
stæði nefndanna lifði ekki lengi.“
Afsögn vissulega
flögrað að mér
- Hvernig telur þú, að samstarf
við Jónu Ósk gangi í nefndinni,
þar sem hún er í raun æðsti yfir-
maður kjörinna nefndarmanna
sem forseti bæjarstjórnar, en ráð-
in sem starfsmaður nefndarinnar,
þ.e. undirmaðursömu manna? Þú
og fleiri nefndarmenn hugleidduð
að segja af ykkur, m.a. vegna
þessarar staðreyndar?
„Ég get að sjálfsögðu ekki litið
á Jónu Ósk sem forseta bæjar-
stjórnar, þegar hún er að störfum
hjá Húsnæðisnefnd. Hún hefur
sem starfsmaður sínar skyldur og
trúnað við nefndina, þannig að ef
upp kemur ágreiningur milli
bæjaryfirvaida og nefndarinnar
þá hlýtur hún sem starfsmaður að
verða að starfa samkvæmt ákvörð-
un meirihluta nefndarinnar
hverju sinni og gæta hagsmuna
hennar. Vissulega gætu komið
upp vandamál, ef þessari trúnað-
arskyldu verður ekki framfylgt,
en ég vil nú ekki gefa mér það
fyrirfram.
Varðandi afsögn vil ég segja
þetta: Það hefur vissulega flögrað
að mér að segja af mér, sérstak-
lega með tilliti til þess skítkasts
sem við fulltrúar verkalýðsfélag-
anna höfum fengið framan í
okkur. Ég leit hins vegar þannig á
málið, að við mættum aldrei
gleyma aðalatriðinu, það er fólk-
inu sem býr við neyð. Nú eru 285
fjölskyldur á biðlista, þegar búið
er að úthluta öllu sem við höfum
til ráðstöfunar á þessu ári. Fjöld-
inn hefur aukist um 175 fjölskyld-
ur á fjórum árum og í mörgum til-
fellum er ástandið slíkt hjá þessu
fólki, að manni rennur til rifja og
vildi kaupa íbúðir í hundraðavís
til að greiða úr málum, en slíkt er
að sjálfsögðu óskhyggja.
Ábyrgð okkar í nefndinni er
mikil og ábyrgð bæjaryfirvalda er
einnig mikil. Eg tók að mér þessa
ábyrgð, þegar ég gaf sjálfviljugur
kost á mér. Ég er því staðráðinn í
að láta engan bilbug á mér finna,
þrátt fyrir rógburð og barnalega
framkomu ráðamanna. Ég veit,
að ég hef góðan stuðning manna,
sem líta á þessi mál af skynsemi og
vilja þoka málum til betri vegar,
og eftir því mun ég vinna.“
„Miklir menn erum
við Hrólfur minn“
- En hvað með þína eigin
flokkspólitísku stöðu?
„Flestir vita sjálfsagt, að ég hef
verið krati frá því elstu menn
muna. Ég hef gegnt mörgum trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn allt frá
stjórnarstörfum innan flokksins
og í varamennsku í bæjarstjórn.
Ég hef nú látið af þessum störfum
öllum, bæði vegna eigin ákvörð-
unar og fyrir tilstuðlan annarra
innan flokksins, sem ekki hafa
haft áhuga á störfum mínum.
Ein ástæða þess, að menn í Al-
þýðuflokknum lögðust gegn veru
minni i Húsnæðisnefnd er sú, að
menn sögðu, að ég hefði sagt mig
úr flokknum. Þetta fullyrtu jafn-
vel menn, sem vissu miklu betur.
Einn framámaður í flokknum
sagði meira að segjaviðmig, aðég
yrði að taka út mína refsingu fyrir
þetta. Já, miklir menn erum við
Hrólfur minn.
Hið sanna í málinu er þetta:
Fyrir tæpum þremur árum varð ég
sannanlega var við, að Alþýðu-
flokkurinn vann gegn mér á þingi
Alþýðusambandsins, með því að
leggjast gegn því að ég yrði valinn
til trúnaðarstarfa, sem staða mín
innan verkalýðshreyfingarinnar
allt að því krafðist. Ég fór nú samt
fram og vann þær kosningar, án
aðstoðar kratanna. Þegar þetta lá
fyrir og einnig vegna þess, að
þetta var alls ekki eina dæmið um
vinnubrögðin, þá ákvað ég að
senda flokknum bréf og segja mig
úr honum. í framhaldi af bréfinu
voru þeir Hörður Zophaníasson
og Haukur Helgason, góðir félag-
ar mínir úr flokknum, fengnir til
þess að ræða málin við mig. Þeim
viðræðum lauk með því, að bréfið
var aldrei lagt fram og úrsögnin
kom því ekki til framkvæmda.
Hafi menn enn verið í vafa um
það, hvort ég væri í flokknum eða
ekki, þá ætti bæjarstjórinn, Guð-
mundur Árni, að geta staðfest
það, því ég ritaði honum tvö bréf í
júní, erlendisfrá, þarsemégmeð-
al annars lýsti stuðningi við mörg
góð verk flokksins á síðasta kjör-
tímabili og lýsti áhuga mínum á að
starfa innan flokksins.
Þessum bréfum hefur enn ekki
verið svarað og kannske hafa þau
aldrei verið lögð fram.
Q
CC
O
*
>-
m
Kannski svíður sumuin
að kjósa mig
Reyndar fékk ég upphringingu
til útlanda frá bæjarstjóra, rétt
eftir kosningar, þar sem hann fór
þess á leit, að ég gæfi kost á mér til
formennsku í brunamálanefnd.
Ég hafði ekki mikinn áhuga á því,
en féllst á það eftir ítrekuð til-
mæli. Hann nefndi engar aðrar
hugmyndir um ráðstöfun á mér til
nefndarstarfa fyrir flokkinn. Eftir
þetta símtal hef ég það fyrir satt,
að bæjarstjóri hafi haft það eftir
mér: „að ég sæktist ekki eftir öðru
en formennsku í brunamála-
nefnd“. - Ég sóttist bara ekki eftir
neinu embætti. Það er málið.
Það er skrítið, að enn hefur
ekki verið boðað til fundar í
brunamálanefnd, kannske er svo
lítið að gera í þeirri nefnd, eða
kannske svíður sumum, að kjósa
mig þar til formennsku. Ég bara
veit það ekki.
Það sem snertir mig verst í þess-
ari orrahríð er það, að menn eru
farnir að blanda óviðkomandi
persónum í málin. Þannig veit ég,
að Alþýðuflokksmaður skýrði frá
því á fundi hér í bæ, að ég hefði nú
þegar tryggt stjúpdóttur minni
íbúð íkerfinu. Slíkurmálflutning-
ur er ósvífinn í mesta lagi og snert-
ir þá, sem ekki eiga það skilið,
miklu verr en mig.“
Grétar sagði að endingu: „Ég
vil að lokum þakka Fjarðarpóstin-
um, eina blaðinu í Hafnarfirði,
sem hefur sýnt því áhuga, að
heyra önnur viðhorf en flokks-
pólitískra gæðinga."
K
EFNIOG ÁHÖLD TIL AD:
Bora, negla, saga, pússa, festa,
skafa, mála, vökva, moka, girða,
lýsa, raka, tengja...
BYKO
W
VIÐ REYKJANESBRAUT
00
*
o
30
0
s
S I M I
5 4 4 1 1