Fjarðarpósturinn - 19.05.1993, Blaðsíða 2
KOMPAN
Girðingar rifnar
Bæjarráð samþykkti si.
fimmtudag að aðstoða Skóg-
ræktarfélagið við að nfa girð-
ingar á svæði félagsins. Þetta
var gjört í framhaldi af sam-
þykkt aðalfundar Skógrækt-
aifélagsins sem haldinn var
21. apríl sl.
Listaverk á brott
Ibúar á Hraunbrún 2A, 2B,
4 og á homi Garðavegar og
Hraunbrúnar hafa farið fram á
við bæjaryftrvöld að listaverk
á hólmanum í Víðistaðatjöm-
inni verði flutt burtu. Enn-
fremur var þess farið á leit að
komið verðí upp hraðahindr-
un íyrir framan umrædd hús.
Fram kom á síðasta bæjar-
ráðsfundi að unnið er að því
að koma upp hraðahindrun á
þessum stað. Ekkert er bókað
á fundinum varðandi bónina
um listaverkið.
Ókyrrð í höfninni
Hafnarstjóm samþykkti á
fundi sínum 5. maí sl. að láta
fara fram athugun á „meintri
aukinni ókyrrð“ í höfninni,
eins og það er orðað. Sam-
kvæmt heimildum Fjarðar-
póstsíns telja vettvangsffóðir
menn, að uppfyllingar og
endanlegt afnám fjöm við
höfnina orsakai umrædda ó-
kyrrð.
GAFLARIVIKUNNAR: - Vildi hitta Sigga T. undir gafli
Fullt nafn? Gaflarinn.
Fæðingardagur? Góðviðris-
dagur á fyrri hluta aldarinnar.
Fæðingarstaður? Undir súð í
gamla miðbænum.
Fjölskylduhagir? Eg og hún
Stína mín höfum eignast tíu böm,
sem öll búa í Firðinum. Afkom-
endumir teljast í tugum.
Bifreið? Nota nú bara tvo jafn-
fljóta, eða næstum því.
Starf? Grásleppukarl þegar 'ann
gefur.
Fyrri störf? Sjómaður og hafn-
arverkamaður.
Helsti veikleiki? Neftóbakið.
Helsti kostur? Mjúkur á
manninn og viðræðugóður.
Uppáhaldsmatur? Ýsa og
kartöfiur með hamsatólg.
Versti matur sem þú færð?
Pissur og pulsur og hvað það nú
heitir allt þetta mslfæði.
Uppáhaldstónlist? Lögin hans
Friðriks, tónskáldsins okkar.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Hallsteinn og Jóhannes á Borg.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur á? Bjami
læknir og Emil.
Hvert er eftirlætissjónvarps-
efnið þitt? Fréttir og þjóðlegur
fróðleikur.
Hvaða sjónvarpsefni finnst þér
leiðinlegast?Amerískar hasar-
myndir sem em að forheimska
ungdóminn.
Uppáhalds útvarps- og sjón-
varpsmaður? Helgi Hjörvar var
góður, þegar hann las Bör
Börsson.
Uppáhaldsleikari? Gísli Hall-
dórsson.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Fer aldrei í bíóhús.
Hvað gerir þú í frístundum þín-
um? Rabba við karlana undir
gafli.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Hafnarfjörður og hef
lítinn áhuga á öðmm stöðum.
Hvað metur þú mest í fari ann-
arra? Vinnu- og ráðdeildarsemi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Leti- og
eyðslusemi.
Hvaða persónu langar þig
mesta að hitta og hvers vegna?
Sigga T. í Hlíf undir gafli. Til að
reyna að hjálpa honum að finna
gömlu góðu verkalýðshreyfing-
una.
Hvaða námsefni líkaði þér verst
við í skóla? Svona spyr maður
ekki. Það þótti bara gott að geta
sótt skóla.
Hvað myndir þú vilja í afmælis-
gjöf? Islenskt neftóbak og klút, ef
það er ekki til of mikils mælst.
Ef þú ynnir 2 millj. kr. í
happadrætti, hvernig myndir
þú verja þeim? Leggja inn í
bankann til mögm áranna.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndir þú helst vilja
vera? Svoleiðis er, held ég, bara í
bíómyndum.
Ef þú værir í spurningakeppni,
hvaða sérsvið myndir þú velja
þér? Hafnarfjörð fyrri tíma.
Hvað veitir þér mesta afslöpp-
un? Að draga grásleppunetin
mín.
Hvað myndir þú gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag?
Færi á Vor '93 í Kaplakrika.
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Þeir em allir
góðir, en svolítið ýktir a.m.k. þeir
sem sagðir hafa verið af mér.
„ÞETTA VERÐUR mjög
umhverfisvænn gegnumakstur
og það fer enginn þarna ógal-inn
í gegn, án þess að eiga þangað
erindi“. Pannig svaraði
bæjarstjóri fyrirspurn Asu
Maríu Valdimarsdóttur _ á
bæjarstjórnarfundi í gær. Asa
María spurði um fyrirhugaða
tengingu Jófríðarstaðarvegs og
Staðarhvamms við nýja kirkju
Kaþólska safnaðarins. - „Um-
hverfisvænn gegnumakstur“
heitir það sem sagt.
MAGNÚS JÓN ÁRNASON
flutti heilmikla ræðu á
fundinum og hélt uppi merkjum
einkaframtuks og frumhcrja í
viðskiptum og verslun hérlend-
is. Svo ranunt kvað að málflutn-
ingi hans að Jóhann Gunnar gat
ekki orða bundist og kvað þetta
merkan atburð og ánægjulegan.
Magnúsar Jón flutti meira að
segja tillögu um skipan nefndar
til að undirbúa hátíðarhöld á
200 ára afmæli verslunarsög-
unnar á næsta ári. Þá eru 200 ár
liðin frá því Bjarni Sivertsen,
faðir Hafnarfjarðar hóf verslun.
Magnús bætti því við að eigin-
lega vantaði slíka menn í dag til
að rífa upp verslun og viðskipti.
TILLAGA MAGNÚSAR _ var
samþykkt samhljóða, en Árna
Hjörleifs fannst citthvað að sér
vegið. Hann benti á að fram-
takssamir athafnamenn myndu
opna stórt vcrslunarhúsnæði á
200 ára afmælisárinu. ,Já
Bjarnabúð" skaut bæjarstjóri
þá inn í.
J^ista
Fjölbreyttar uppákomur allan júnímánuð
Lifandi listviðburðir á hverju kvöldi
Hádegisverður, kaffi, kvöldverður
og kvöldKaffi með léttum vínveitingum
Opið frá hádegi og fram eftir kvöldi
MENNINGAR- OG LISTASTOFNUN HAFNARFJARÐAR • STRANDGÖTU 34