Fjarðarpósturinn - 19.05.1993, Side 9

Fjarðarpósturinn - 19.05.1993, Side 9
Námsferð til Cuxhaven 15.-23 apríl sl.: „Alveg sérstakir vinir“ Tíu nemendur úr þremur hópum sem stundað hafa þýskunám í Námsflokkum Hafnarfjarðar fóru snemma morguns þann 15. apríl sl. ásamt kennara sínum, Maríu Eiríksdóttir, í námsferð til Cux- haven, vinabæjar Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Ætlunin var að bæta við þýskukunnáttuna í Cuxhaven-Voikhochschule. Flogið var til Amsterdam og var sérstök tilfínning að sjá allan gróð- urinn, en hér heima var hvít breiða yfir öllu. í Amsterdam tókum við þrjá bílaleigubíla og keyrðum til Cuxhaven. Ferðin þangað gekk vel að undanteknum 100 km sem fóru í „smá-krók“. Eftir langa en skemmtilega bilferð komum við á hótelið kl. 9 að kvöldi. Þar tóku á móti okkur Rolf Peters, Jurgen Donne og bræðumir Bem og Mik- ael Glenz. Við vorum í skólanum alla daga til hádegis, nema sunnudag. Kenn- arinn okkar var Mikael Glenz. Kennslan byggðist mikið á að æfa okkur í að tala þýskuna, þó mál- fræðin væri tekin aðeins með. I fyrstu byijaði Mikael að spyrja okkur um daginn og veginn og þar á meðal hve mörg böm við ættum. Þegar allir áttu tvö til þijú böm varð hann mjög undrandi og spurði hvort allir Islendingar ættu svona mörg böm . Sagði hann að flestir Þjóðverjar létu sér nægja eitt til tvö. Hann tók síðan fyrir hin ýmsu efni, svo sem að lesa á mat- seðil, að spyrja til vegar og lesa af korti. Allir höfðu mikið gagn af þessu námi, þó það væri einungis í sex daga. Móttakan í Cuxhaven var með ólíkindum því þeir vildu allt fyrir okkur gera. Má þar fremstan nefna Rolf Peters sem eyddi miklum túna með okkur og sýndi okkur margt. Hæst ber heimsókn í Gall- ery Artica til Möller-hjónanna, en þar fengum við að skoða vinnu- stofu listamannsins. Þau hjón höfðu mikinn áhuga á öllu sem viðkom Islandi og fengu okkur að lokum til að syngja íyrir sig eitt ís- lenskt lag. Við heimsóttum líka Kunstler-Haus, en þangað koma listamenn frá ýmsum löndum og dvelja í lengri eða skemmri tíma. Rolf Peters fór einnig með okkur á flóamarkað, í heimsókn í íþrótta- klúbb og kom því í kring að við fengum að skoða dósaverksmiðj- una Schamalbach Lubecca. Bem Glenz og Jurgen Donner fóru með okkur í skoðunarferð þar sem við byrjuðum á að fara í kaffi á hótelið See-Pavillion sem er í eigu Donn- Greinarhöfundw, Emelía Dóra, flutti þakkarávarp fyrir hönd hóps- ins í la’öldverðarboði. ers, fórum að Alte Liebe, Kugel- bakke, keyrðum um höfhina, fór- um niður að strönd að ógleymdu því að ganga um göngugötuna. Sérstaka athygli okkar vakti sá mikli munur sem er á flóði og fjöm þama, en á íjöm er hægt að fara út í eyjuna Newark sem er tólf kílómetra frá landi, fótgangandi eða á hestvangi. Við vomm boðin í kvöldverð á See-Pavillion og þar fengum við að skoða myndband um Cuxhaven sem er mjög^ eftirsóttur ferða- mannastaður. A sl. ári komu t.d. 3,6 milljónir ferðamanna en íbúar bæjarins em aðeins 55.000. Er víst oft mikil örtröð yfir hásumarið. A laugardagskvöldinu var á- kveðið að fara á „pöbbarölt" með Bem Glenz og vinkonu hans Sa- brine. Þá var borðað, drukkið og mikið sungið en íslensku söngtext- amir höfðu ekki gleymst heima. Seinna bauð Bem okkur heim til sín og var það ógleymanleg kvöld- stund. Fyrir allar aldir þann 23. apríl var síðan haldið heim á leið eftir stórskemmtilega og ógleymanlega dvöl í Cuxhaven. Keyrt var til baka til Amsterdam og flogið það- an heim. Allir vom ánægðir með dvölina. Þó svo að fólk hefði lítið sem ekkert þekkst fyrir þessa ferð þá er óhætt að segja að hópurinn hafi náð einstaklega vel saman og emm við nú öll alveg sérstakir vin- ir Cuxhaven. - Emelía Dóra Guðbjartsdóttir Hópurinn í heimsókn hjá þeim Möller-hjónum í Gallery Artica, en þar fengu þau að skoða vinnustofu listamannsins. Þau hjónin hafa mikinn áhuga á Islandi og öllu því sem íslenskt er og tóku því Islendingunum afbragðsveg, eins ogfram kemur í greininni. WÓNUSIA Starfsfólk EIMSKIPS leggur metnað sinn í að veita góða alhliða flutninga- þjónustu. Þar gildir einu hvort leiðin liggur á sjó eða landi, um strendur íslands eða fjarlæga heimshluta. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ KÆNAN Heimilislegur veitingastaóur Fiskihlaðborð alla sunnudaga Fjörug bryggjustemmning Harmonikkuleikur Omflm Tilboe t*riggja mánaða kort í Iíkamsrækt og tíu tíma Ijósakort HRES IJKAMSRÆKT OG UOS MiW<UUM4VCUilAvt(UIWU»»»SHU2: I?

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.