Fjarðarpósturinn - 10.06.1993, Qupperneq 1
SVMARHÚS
STOFNAÐ 1975
HJALLAHRAUNI 10
HAFNARFIRÐI
SIMI 51070
FJflRDflR
17. TBL. 1993 - 11. ARG.
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ
VERÐ KR. 100,-
SVMARHÚS
STOFNAÐ 1975
HJALLAHRAUNI 10
HAFNARFIRÐI
SÍMI51070
Skyndileg brottför bæjarstjórans í ráðherrastól kom f opna skjöldu og kallaði á hörð viðbrögð bæjarfulltrúa Alþýðuflokks:
Bæjarstjóri gangi fyrst frá ársreikningi
Pað var uppi fótur og fit, þegar bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
fréttu, um svipað leyti og alþjóð, að bæjarstjóri, Guðmundur Arni
Stefánsson, væri að yfirgefa bæjarstóraembættið til að taka sæti í
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Ekki eru liðnar nema nokkrar vikur
frá því að bæjarstjóri lýsti því yfir opinberlega að hann væri ekki á
förum úr starfi sínu sem bæjarstjóri Hafnfirðinga og að hann myndi
leiða flokk sinn hér í næstu bæjarstjórnarkosningum.
Samkvæmt heimildum Fjarðar-
póstsins er mikil ólga í herbúðum
Alþýðuflokksins í bænum vegna
þessa máls. Menn leita nú logandi
ljósum að eftirmanni Guðmundar
og hafa margir verið nefiidir, bæði
innan bæjarstjómarflokksins og
utan. Eftir það sem á undan er
gengið varðandi stöðu kvenna í
kjördæminu hefur, samkvæmt
heimildum Fjarðarpóstsins, komið
fram ákveðin krafa frá kvennaarmi
flokksins, að í bæjarstjórastólinn
setjist kona. Þar em nefndar til
stöðunnar Valgerður Guðmunds-
dóttir, bæjarfulltrúi, en Jóna Osk
Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjóm-
ar.
Þeir Alþýðuflokksmenn sem
tíðindamaður Fjarðarpóstsins
ræddi við í vikunni vom allir á því,
að skyndileg ákvörðun Guðmund-
ar Áma hafi komið mönnum mjög
svo í opna skjöldu. Menn benda á,
að aðeins sé tæpt ár eftir af kjör-
tímabilinu og staða fjármála bæj-
arsjóðs vægast sagt erfið. Einn
viðmælenda blaðsins sagði m.a.,
að hann liti á það sem grundvallar-
kröfu, að Guðmundur Ámi skilaði
af sér ársreikningum bæjarsjóðs
fyrir síðasta ár, áður en hann hyrfi
svo skyndilega af vettvangi. Hann
hlypi ekki undan þeim. Nýr bæjar-
stjóri tekur því ekki við strax.
Svo til allir núverandi bæjarfull-
trúar Alþýðuflokksins hafa verið
nefndir sem áhugamenn um bæj-
arstjórastólinn. Þrír bítast harðast
um embættið, þ.e. Tryggvi Harð-
arson, Ingvar Viktorsson og Jóna
Osk Guðjónsdóttir.
Af nöfnum manna utan bæjar-
stjómarflokksins má nefna Ársæl
Guðmundsson, hagfræðing. Al-
þýðuflokksmenn munu þó vel-
flestir einhuga um, að gáfulegra sé
í stöðunni að sækja nýjan bæjar-
stjóra úr röðum bæjarfulltrúa, sér-
staklega í ljósi stöðu bæjarsjóðs og
þar sem svo skammt sé til næstu
bæjarstjómarkosninga.
Ársreikningar bæjarsjóðs 1992 lagðir fram n.k. þriðjudag:
Heildarskuldir 1.940 millj. kr.
- Hafa hækkað um 455 millj. kr. milli ára. 25-30% af heildarskatttekj-
um, um 1.600 millj. kr., fara nú beint í afborganir og vexti.
í ársreikningum bæjarsjóðs fyrir árið 1992, sem lagðir verða fram á kvæmdir eru
bæjarstjórnarfundi n.k. þriðjudag kemur m.a. fram, samkvæmt
heimildum Fjarðarpóstsins, að heildarskuldir bæjarsjóðs eru komn-
ar í rúmlega 1.940 millj. kr. Hafa þær hækkað á milli ára úr kr.
1.485 milljónum í kr. 1.940 milljónir, eða um 455 millj. kr. Svo-
nefnd nettóskuldastaða er orðin tæplega 800 millj. kr. og er nú svo
komið að 25-30% af heildarskatttekjum bæjarsjóðs, um 1.600 millj.
kr., fara beint í afborganir og vaxtabyrði lána bæjarsjóðs.
Samkvæmt heimildum Fjarðar- sjóðs á þessu ári mjög „krítísk".
póstsins er fjármálastaða bæjar- Gífurlega kostnaðarsamar ffarn-
Engin andmæli komu
fram hjá héraðsdómi
Nauðasantningar Hagvirkis Kletts h.f. voru staðfestir fyrir hér-
aðsdómi sl. mánudagsmorgun. Það var Gunnar Aðalsteinsson hér-
aðsdómari sem tók málið til staðfestingar. Þrátt fyrir fyrri yfirlýs-
ingar gerði Ragnar Hall, bústjóri þrotabús Fómarlambsins, engar
athugasemdir. Hið sama var að segja um fulltrúa ríkissjóðs.
Samningar höfðu náðst milli þrotabússtjóra Fómarlambsins og
forráðamanna Hagvirkis Kletts h.f., og ntun þrotabú Fómarlambs-
ins ganga að sömu kjömm og aðrir kröfuhafar í búið, sem þegar
höfðu samþykkt frumvarpið að nauðasamingingum.
gangi, svo sem
bygging nýs safhaðarheimilis og
tónlistarskóla í miðbænum. Gefin
hafa verið loforð um fjárframlög
vegna fyrirhugaðs stórhýsis í mið-
bænum, sem er þó allsendis óljóst
hvað verður úr vegna almennra
efnahagsörðugleika. Það virðist
því vemlega kreppa að.
Hvað varðar bæjarbúa beint, þá
eiga þeir von á skattaálagningar-
seðlum um mánaðarmótin júlí,
ágúst, sem líklega gleðja fáa. Þá
kemur til endurreikningur á skatta-
álögum vegna ársins 1992. Ut-
svarsálaging bæjarsjóðs var þá í
leyfðu hámarki, þ.e. 7,5%. Inn-
heimtuprósenta staðgreiðslu hefur
numið 39,85%, en til að ná inn
7,5% sem bæjarsjóður lagði á bæj-
arbúa, þurfa þeir að standa skil á
40,3% til 40,4%. Bæjarbúar munu
því þurfa að standa skil á umtals-
verðum fjárhæðum til bæjarsjóðs á
sama tíma og t.d. Reykvíkingar
sleppa á sléttu eða fá endurgreiðsl-
ur.
Hópur landkrabba fékk að skoða alvörukrabba ogfleiri botndýr um
borð í Fjörunesim uni helgina. Er myndin birt í tilefni af sjómanna-
deginum sem var sl. sunnudag.
Krabbar og landkrabbar
Sjómannadagshátíðarhöldin um síðuslu helgi fóm vel fram og að
viðstöddu fjölmenni eins og undanfarin ár. Fimni aldraðir sjómenn
vom heiðraðir, þar á meðal bræður. I róðrakeppninni hlutu Götu-
strákar að þessu sinni Eyjapeyjabikarinn, en samtals kepptu sjö
sveitir. Áhöfnin á Sjóla sigraði fótboltakeppnina annað árið í röð.
Þá var boðið upp á ýmsa aðra skemmtan, m.a. björgun úr sjó,
sern áhöfnin á þyrlu Landhelgisgæslunnar sýndi, skemmtisiglingu
bama, listflug og tónleika fyrir unglinga. Mikið fjölntenni var síðan
á sjómannahófi á Hótel Sögu að kvöldi sjómannadagsins.
Sjómennimir sem heiðraðir vom em Aðalsteinn Þorbjöm Þórðar-
son, Einar Jón Jónsson, Júlíus Sigurðsson og bróðir hans, Þorlákur
Sigurðsson, einnig Símon Marinósson.
I róðrakeppninni sigraði sveit Hrings í flokki sjómanna, en Götu-
strákar vom með besta tímann og hlutu Eyjapeyjabikarinn. Götu-
stelpur sigmðu í kvennaflokki. Áhöfnin á Venusi sigraði í reiptogi
og í netabætningum sigraði Jónas Jósteinsson, skipverji á Venusi.
Hafnfirðincjur hlaut
rafsuðuvélina sem
keppt var um
Hin eina sanna
Randver treður upp
eftir 15 ára hlé
-Sjá bls.3
Nönnukot, stpfnað
um útgáfu á Astar-
Ijóðum aldarinnar
- Sjá 5
Sjá bls. 2