Fjarðarpósturinn - 10.06.1993, Síða 2
KOMPAN
Veitinga- og
gistiþjonusta
Bræðumir Ingólfur og
Helgi Einarssynir hafa sótt
um 4.000 fermetra lóð í
Mosahlíð, þar sem þeir
hyggjast byggja og reka veit-
inga- og gistiþjónustu. Erindi
þeirra var á síðasta bæjarráðs-
fundi vísað til umsagnar hjá
bæjarverkfræðingi og skipu-
lagsstjóra.
Þakka fatnað
Kvenkynsstarfsmenn á
bæjarskrifstofunum rituðu
nýverið bæjaryfirvöldum bréf
og þökkuðu góðar undirtektir
við beiðni þeirra um fatnað.
Þann 1. júní sl. mættu þessir
starfsmennimir bæjarins í
fyrsta skipti t vinnufatnaði
þessum.
Ekki „Sögutorg"
Bæjanáð lét færa til bókar
á fundi sfrium sl. fimmtudag,
að nafnið „Sögutorg" á torg-
inu framan við Byggðasafnið
og Sjóminjasafnið hefur ekki
verð samþykkt. Torgið heítir
því ekki „Sögutorg“.
300 þús. til
sundlaugarbyggingar
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra sótti nýverið um 300
þús. kr. styrk til sundlaugar-
byggingar í Reykjadal. Með
umsókninni fylgdi bréf for-
eldra fatlaðra bama í Hafnar-
firði, þar sem lýst er stuðningi
við fyrirhugaða sundlaugar-
byggingu. Þar kemur fram, að
a.m.k. 15 hafnfirsk böm noti
þessa aðstöðu. Bæjarráð sam-
þykkti að veita 300 þús. kr. til
verkefnisins og skulu þeir
peningar takast af liðnum „Ó-
viss útgjöld“.
Hraðahindrun
á Lækjarberg
Bæjarráð samþykkti á
fundi sínum í sl. viku teikn-
ingar að hraðahindmn á
Lækjarbergi, en íbúar í hveif-
inu vom orðnir langeygir eftir
slíkum framkvæmdum.
Glaöningur
vikunnar
Eftirtalinn áskrifandi
Fjarðarpóstsins fær
heimsenda ókeypis 16
tomma pizzu að eigin
vali, ásamt einum og
hálfum líter af Coke.
Gildirtil 16. júní
Elf-
Smurþjónustan
Drangahrauni 1, Hf.
Frá afhendingunni, en fremst á myndinni er standur með hluta afafrakstri keppninmr. Taliðfrá vinstri: Vikt-
or D. Bóasson,fiá Istœkni, Bjarni G. Bjarnason, Suðulist, Jóhann Pálsson, Istœkni, Hallmar Halldórsson,
verðlaunahafi, og Jouko Kemppi forstjóri.
Hafnfirðingur hlaut rafsuðuvélina
sem keppt var um hjá Suðulist
Af305 gestum á sýningunni Vor '93, sem reyndu sig við suðutækni á
vegum fyrirtækisins Suðulist, Kaplahrauni 8, var Hafnfirðingurinn
og vélvirkinn Hallmar Halldórsson, Hörgsholti 23, talinn skila
vandaðasta verkinu. Hann hlaut í verðlaun rafsuðuvél að gerðinni
Kemppi Trigger 1000, sem afhent var nýverið í fyrirtækinu ístækni
h.f., að viðstöddum aðalforst jóra Kemppi fyrirtækisins í Finnlandi,
Jouko Kemppi.
Keppendur voru 305, eins og Kemppi, sagði við þetta tækifæri,
fyrr segir, allt frá 12 ára aldri og
upp úr. Það vakti athygli umsjón-
armanna keppninnar, að fagmenn
bám sig ekki betur en ólærðir og
vilja söluaðilar Kemppi rafsuðu-
vélanna auðvitað fyrst og ffemst
þakka það góðum tækjum. Þeir
sögðu tilganginn með keppninni
enda þann að sanna hversu auðvelt
er að rafsjóða með góðum græjum
eins og Kemppi.
Keppnin fór fram í samvinnu
Suðulistar og Istækni h.f., sem er
innflutningsaðili Kemppi tækja og
véla.
Aðalforstjóri Kemppi, Jouko
að fyrirtæki hans væri nú annað
stærsta fyrirtækið á Evrópumark-
aði með hátæknivélar. Hérlendis
nemur markaðshlutdeild Kemppi
um 65%. Fyrirhuguð mun Norður-
landakeppni í rafsuðulist { Finn-
landi árið 1994. Málmsuðufélag
íslands stendur fyrir forkeppni fyr-
ir mótið hérlendis á þessu ári, en
reiknað er með að einn til tveir þeir
bestu hérlendis fari til keppninnar í
Finnlandi.
Margrét sýnir grafík
Sýning á grafíkverkum eftir
Margréti Guðmundsdóttur
stendur yfir í Kænunni, Óseyr-
arbraut 2. Sýningin er opin alla
virka daga kl. 7-18 og um helgar
kl. 9-17, henni lýkur 30. júní.
Margrét var að ljúka burtfarar-
prófi frá Myndlistar- og handíða-
skóla Islands, grafíkdeild, og em
þetta myndir úr lokaverkefni
hennar. Myndimar skiptast í tvo
flokka: „Tilbrigði" og „Tileink-
un“.
Margrét er innanhússarkitekt og
starfaði við það, áður en hún hóf
myndlistamámið. Einnig kenndi
hún nokkur í ár fagteikningu við
iðnskóla.
ÍSLENDINGAR sem reka gisti-
heimili í nágrenni Orlando-
flugvallar í Bandaríkjunum
áttu von á Guðmundi Arna,
bæjarstjóra sl. á þriðjudag. Guð-
mundur hafði óskað eftir gist-
ingu á leið sinni til Treasure Is-
land - eða Fjársjóðseyju á Flór-
ída, en þangað mun Jón Bald-
vin, formaður, einnig ieggja leið
sína.
Ekkert varð úr af för bæjar-
stjórans til Fjársjóðseyju, en í
staðinn hlaut hann ráðherrastól.
Peir undir gafli íhuga, hvort
hann hafi ætlað í fjársjóðsleit til
Flórída. Þeir hinir sömu veðja á,
að bæjarstjórinn verði ekki bú-
inn að sitja lengi í stól heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, þegar
hann sér á ný þörf á för til Fjár-
sjóðseyju.
UNDIR GAFLI eru menn
slegnir yfir því hvernig Guð-
mundur Árni skilur við bæjar-
sjóð. Allt er á bóla kafi í skuld-
um, skv. ársreikningi sem kem-
ur fram eftir helgi. Pá sér ekki
högg á borði á gefnum loforðum
og fyrirheitum, enda er nú bið-
röð á bæjó af mönnum sem eru
að reyna að fá staðfestingar á lof-
orðum um liinar og þessar
framkvæmdir. Góður og gegn
gaflari stakk upp á þeirri lausn
á þriðjudag, að í stað fyrir-
hugaðrar ferðar til Fjársjóðscyju
keyptí bæjarsjóður miða í
Víkingalottói, enda var von á
stórvinningi í gær.
MIKILL mannfjöldi var við
setningarathöfn Listahátíðar í
Kapiakrika sl. föstudag. Undir
gafli sögðu menn, að ekki þyrfti
að undra þátttökuna, því hátt í
400 manns sem leið áttu á
Vinnumiðlun bæjarins, fengu
gefna miða, einnig allir starfs-
menn bæjarins og þeir sem sæti
eiga í nefndum og ráðum. Hver
ætli hafi borgað alla þessa miða,
sem kostuðu kr. 1.000 stk.?
Undir gafli giska þeir á bæjar-
sjóð.
GAFLARIVIKUNNAR: - Gæti hugsaö sér að fá hest í afmælisgjöf
Fullt nafn? Berglind Magnús-
dóttir.
Fæðingardagur? 8. nóvember
1978.
Fæðingarstaður? Landspítalinn
Fjölskylduhagir? Er á lausu.
Bifreið? Fjallahjól (verður
bráðum Porsche)
Starf? Unglingavinnan.
Fyrri störf? Næstum engin.
Helsti veikleiki? Löt við að
hjálpa til heima.
Helsti kostur? Spurðu vini
mína.
Uppáhaldsmatur? Pizza frá
Hróa hetti.
Versti matur sem þú færð?
Fiskur.
Uppáhaldstónlist? Eg er alæta á
tónlist.
Uppáhaldsíþróttamaður? Ég
fylgist illa með íþróttum.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur á? Þoli ekki
stjómmál.
Hvert er eftirlætissjónvarps-
efnið þitt? Hryllingsmyndir.
Hvaða sjónvarpsefni finnst þér
leiðinlegast? Fréttir, veður og
fræðslumyndir.
Uppáhalds útvarps- og sjón-
varpsmaður? Þór Bæring er
uppáhaldsútvarpsmaður, enginn
sérstakur sjónvarpsmaður.
Uppáhaldsleikari? Eddie
Murphy.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Candy Man.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Ligg í leti.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Ásbyrgi.
Hvað metur þú mest í fari ann-
arra? Skemmtilegheit.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Mont.
Hvaða persónu langar þig
mesta að hitta og hvers vegna?
Lenny Kravitz, til að kyssa hann.
Hvaða námsefni líkaði þér verst
við í skóla? Líf- og eðlisfræði.
Hvað myndir þú vilja í afmæl-
isgjöf? Hest.
Ef þú ynnir 2 millj. kr. í
happadrætti, hvernig myndir
þú verja þeim? í föt.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndir þú helst vilja
vera? Forvitinn fær ekki að vita.
Ef þú værir í spurninga-
keppni, hvaða sérsvið myndir
þú velja þér? Blandað efni.
Hvað veitir þér mesta afslöpp-
un? Að fara í reiðtúra.
Hvað myndir þú gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag?
Efla skemmtanalíf unglinga í
Hafnarfirði.
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Það var einu
sinni maður með Aids í sprautu.
Hann gekk að Reykvíkingi og
sagðist ætla að sprauta hann með
Aids nema hann gæfi honum alla
peningana sína. Reykvíkingur-
inn lét peningana af hendi.
Þannig gekk hann manna á milli
þangað til hann hitti Hafnfirðing.
„Láttu mig fá alla peningana
þína eða ég sprauta þig með
Aids“, sagði hann. Hafrtfirðing-
urirtn svaraði: ,Já gerðu það
bara“. Þegar hann hafði verið
sprautaður með Aids sprautunni
hló hann og sagði: „Þama plataði
ég þig. Ég er með smokkinn."
2