Fjarðarpósturinn - 10.06.1993, Side 5
Penni Sofusar:
Nönnukot, ný kaff istofa Nönnu Hálfdánardóttur:
----------------------------w
Útvarp Hafnarf jöröur:
Listahátfðarútvarp f júní
Bœjarstjórinn okkar er besta
skinn
en bágt á hann reyndar
drengurinn.
A5 leiðrétta rœðu svona þú
sérð
sem líkja mœtti við
magnylgerð.
En betri er líkingin líklega þín
að líkja uppbyggingu við
vítamín.
Og auðvitað núna verð ég að
votta
að víst myndi Sverrir nú
glaðlega glotta.
Lok, lok og læs
Fagrar konur úr Framtíðinni
fóru og lokuðu sjálfa sig inni.
Það er sem ég sé,
aðSigurðurT.,
hafi hlegið hátt að þessu sinni.
Útvarp Hafnarfjörður verður
með Listahátíðarútvarp út júní-
mánuð. Útvarpað verður alla
virka daga frá kl. 17 til 19. Jafn-
framt verður bráðlega útvarpað
á kvöldin beint frá klúbbi Lista-
hátíðar í Hafnarborg þar sem
ýmsir tónlistarmenn leika fjöl-
breytta tónlist.
I Listahátíðarútvarpi verður
dagskrá Listahátíðar kynnt með
viðtölum við listamenn og starfs-
Nanna til vinstri, ásamt frœnku sinni, Jenný Lind Valdimarsdóttur, í hinni nýju og vistlegu kaffistofu Nönnu- menn hátíðarinnar, leikin tónlist
f,otl ’ ' ffá tónleikum hátíðarinnar og ný-
afstöðnu lúðrasveitarmóti.
Þá verður og fylgst með hverju
einu af því sem er að gerast í bæn-
um. Senditíðni Útvarps Hafnar-
fjarðarerFM91,7.
selt bl«f-
lesið blað
Hyggst gefa út „Astarljóð aldarinnar", ef vel gengur
Nönnukot, er heiti á nýrri heimilislegri kaffistofu í miðbænum.
Nönnukot er í litla gamla húsinu að Mjósundi 2, sem er beint fyrir
ofan húsið sem Brunabótafélag íslands var í við Strandgötuna. Eig-
andi kaffistofunnar Nönnukots er Hafnfirðingurinn Nanna Hálf-
dánardóttir, en hún og fjölskylda hennar hafa gert kraftaverk á
húsinu, endurnýjað og lagfært, en þó leyft öllum gömlu innviðunum
að halda sér. Nanna er gift Sigurði Jónssyni, fyrrverandi lögreglu-
þjóni í Hafnarfirði, núverandi starfsmanni Skýrsluvéla ríkisins.
Nönnukot er hið vistlegasta og
má lesa sögu hússins úr gömlum
innviðum, svo sem þröskuldum
þar sem óteljandi fótspor fyrrum
íbúa hafa markað för sín. Nanna
ætlar að reka kaffistofuna „upp á
heilbrigðið“ segir hún. Þama verð-
ur kellt upp á könnuna á gamla
mátann, kaffið er heimabrennt og
malað. Auk kaffis verður boðið
upp á te og alvörusúkkulaði. Aðrar
drykkjavömr verða sannkallaðir
heilsudrykkir, án aukefna og fullir
vítamína. Allt meðlæti verður
þjóðlegt og heimabakað svo sem
kleinur og flatkökur.
Auk þess að reka kaffistofuna
ætlar Nanna að selja minjagripi og
taka í umboðssölu heimagerða
muni fyrir bæjarbúa sem stunda
heimaiðju. Nanna kvaðst aðspurð
hafa fengið hugmyndina að
Nönnukoti á ljóðakvöldi í Kram-
búðinni í Reykjavík. Hún er ljóð-
elsk og hefur m.a. safhað gífurleg-
um fjölda áður óbirtra ástarljóða,
sem hún hyggst gefa út í bók. Ætl-
un hennar er, ef einhver hagnaður
verður af rekstri Nönnukots, að
nýta afraksturinn til útgáfu ljóða-
bókarinnar, sem kæmi væntanlega
til með að heita: „Ástarljóð aldar-
innaf‘.
Nönnukot er reyklaust hús, en
þeir sem reykja geta annað hvort
reykt utandyra, þar sem einnig
verður aðstaða til að setjast niður í
sumar, eða fengið hjá Nönnu
nikótín-tyggjó og/eða plástur. Þá
býður Nanna listamönnum að
sýna verk sín í Nönnukoti, sem
tekur alls um 30 manns í sæti. Hún
er einnig tilbúin að leigja húsnæð-
ið undir fundi og samkomur. Hús-
ið er eign bæjarsjóðs og fékk hún
það til afnota gegn því að halda því
við og lagfæra, sem hún hefur
vissulega gert skammlaust. Hún
hyggst síðar setja upp eldhús í
kjallara hússins og býður í fram-
haldi af því upp á meiri þjónustu,
t.d. heita súpu og smárétti.
Til að byrja með verður opið í
Nönnukoti alla daga frá kl. 14 til
23. Að lokum má geta þess„ að
Nanna hefur geftð út sjómanna-
kort með ljóði eftir sjálfa sig um ís-
lenska sjómanninn. Kortið er
myndskreytt af Rósu Ingólfsdóttur
og er það til sölu í Nönnukoti.
Glæsilegur sumarfatnaöur
Ný sending af unglingafatnaöi
DALAKOFINN
Linnetsstíg 1 - sími 54295
Guðjón, lengst til hœgri, ásamt Ólafi Torfasyni, eiganda Garðakaups,
sem afhendti fyrsta viðskiptavininum, Sigrúnu Ingólfsdóttur, blómvönd.
Hópferðabílar
BUS SERVICE
Kristján Willatzen
Breiöás 1-210 Garöabæ
tS 658507 658505 - Fax 650330
STÓRAR OG
LITLAR RÚTUR
p er verkefni
ekki vandamál!
Meö samstarfi og
samnýtingu
þekkingar og reynslu
náum viö árangri
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Stærsta samstarfsverkefni sveitarfélaga á íslandi
Guðjón í Garðabæinn
Guðjón Sveinsson sem starfað
hefur í áratugi í Fjarðarkaupum
flutti sig um set og gerðist versl-
unarstjóri í nýrri stórverslun
Garðakaups í miðbæ Garðabæj-
ar, en verslunin opnaði 28. maí
sl.
Guðjón segir markmið Garða-
kaups verða að halda vöruverði í
lágmarki og veita góða þjónustu,
enda sé Garðakaup stórmarkaður í
alfaraleið í miðjum Garðabænum
og stutt ffá Hafnarfirði og Reykja-
vík, er haft eftir honum í fréttatil-
kynningu sem barst Fjarðarpóstin-
um með ósk um birtingu.