Fjarðarpósturinn - 03.11.1994, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 03.11.1994, Blaðsíða 3
FJ ARÐARPÓSTURINN 3 Nefndarálit um endurskoðun sjávarútvegsnáms Fiskvinnsluskólanum breytt f framhaldsskóla Starfræki sjávarútvegsbraut ásamt Stýrimannaskóla og Vélskóla Ein af tillögum nefndar þeirra sem fjallaði um endurskoðun sjáv- arútvegsnáms er að komið verði upp sjávarútvegsbraut á fram- haldsskólastigi. Brautin yrði starf- rækt í Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði ásamt Stýrimanna; skóla Islands og Vélskóla Islands. I tillögunni segir m.a. að námskrá yrði mótuð þannig að námið nýttist nemendum hvort sem þeir hyggja á frekari nám á sjávarútvegssviði eða til undirbúnings náms á há- skólastigi. Fagnám brautarinnar verði að fullu metið til stúdents- prófs. Sigurður B. Haraldsson skólastjóri Fiskvinnsluskólans segir í samtali við Fjarðarpóstinn að hugmyndin um sjávarútvegsbraut sé ágæt og sér lítist vel á hana. "Annað sem kemur fram í skýrslunni er ómótað og á eftir að vinna betur," segir Sigurður. "Og hvað varðar endurskipulagningu og endurskoðun á starfsemi skólans hef ég ekkert nema gott eitt um það að segja. Þetta átti að vera búið að gera fyrir löngu síðan. Það sem ég gagn- rýni helst við þessa tillögugerð sem hér liggur frammi er að við vorum síðastir til að vita af þessu og ég þurfti að afia mér nefndarálitsins í gegnum Fiskiþing." Nefndin sem menntamálaráðherra skipaði í lok síðasta árs setti sér m.a. þá stefnu í tillögugerð að byggð verði upp öflug menntun fyrir sjávarútveg- inn bæði á framhaldsskóla- og há- skólastigi, að nemendum sem stund- uðu þetta nám fjölgaði og að þekking Islendinga á sjávarútvegi verði mark- aðssett á skipulagðan hátt erlendis. Þær tillögur sem fjalla beint um Útskrifuðum nemendum Fiskvinnsluskólans fækkaði úr 26 árið 1991 og niður í 12 í fyrra. Fiskvinnsluskólann eru tvær. Auk framangreindrar tillögu vill nefndin að nám við skólann verði endur- skipulagt og lög um skólann endur- skoðuð í samráði við hagsmunaaðila innan sjávarútvegsins. Sjávarútvegsbraut I greinargerð með tillögu nefndar- innar um að Fiskvinnsluskólinn, Stýrimannaskólinn og Vélskólinn sameinist um sjávarútvegsbraut kem- ur fram að hugmyndin sé að bjóða nemendum sem ljúka grunnskóla- prófi upp á ákveðinn valkost. Þeir gætu þá fengið tækifæri til að fresta endanlegu vali um sérhæfingu í 1-2 ár en vera jafnframt í umhverfi þar sem þeir kynntust hinum ýmsu hlið- um sjávarútvegs og vinnslu sjávar- fangs. Aformað er að í boði yrðu þrjár brautir, skipstjómarlína, vélstjómar- lína og fiskvinnslulína. Verklegur hluti fiskvinnslulínunnar yrði að hluta til staðsettur í Fiskvinnsluskól- anum en að hluta til færi það nám fram í fiskvinnnslufyrirtækjum undir umsjón kennara. Endurskipulagning I greinargerð með tillögunni um endurskipulagningu Fiskvinnsluskól- ans og endurskoðun á lögum hans Meðal Hafnfirðingurinn skoðaður í fjölskyldukönnun Vanafastur í háttum Er lítið samkvæmisljón og fer snemma að sofa Meðal Hafnfirðingurinn er vanafastur í háttum samkvæmt niðurstöðum könnunnar á högum hafnfirsku Ijölskyldunnar sem birt var nýlega. Hann er lítið sam- kvæmisljón og fer yfirleitt snemma að sofa, er kominn í háttinn kl. 23.30 og skiptir þá ekki máli hvort urn mánudags- eða laugardags- kvöld er að ræða. Hann borðar á svokölluðum matmálstímum, fjöl- skylda hans telur fjóra einstak- Fredriksberg sendir jólatré Lagt hefur verið fram bréf í bæjarráði frá Fredriksberg, vinabæ Hafnarfjarðar í Dan- ntörku, um að bæjaryftrvöld þar muni gefa Hafnftrðingum jólatré eins og venja hefur verið undan- farna áratugi. Vinabæjarsamband Hafnarfjarð- ar og Fredriksberg komst á upp úr 1950 og það hefur verið árlegur siður síðan að danski bærinn sendi jólatré hingað. Því verður að venju stillt upp á Thors-plani við hlið Sparisjóðsins. linga og yfirleitt er hann í sinni fyrstu sambúð. Hann telur sig heilsugóðann en samt eru helstu á- hyggjur hans af heilsufari. Þessar niðurstöður má m.a. lesa úr fyrrgreindri könnun sem Fjarðarpóst- urinn fjallaði nokkuð um fyrir þrem- ur vikum. Meðal Hafnfirðingurinn á eigin íbúð, 134 fm að stærð, a.m.k. einn bíl og meðalvinnustundafjöldi hans er tæplega 40 stundir, mismun- andi eftir kynjum því karlamir vinna tæpar 45 stundir að meðaltali en kon- umar 34,5 stundir. Hann sefur um 8,5 stundir á sólarhring og er ívið meira sofið um heljjar en á virkum dögum. Sækir lítið menningar- viðburði Þegar skoðaðar em niðurstöður úr spurningum um menningarmál kem- ur m.a. í ljós að 72% Hafnfirðinga segjast fara sjaldan í leikhús en að- eins 7% oft og 20% stíga aldrei inn fyrir dyr á leikhúsi. Konur fara meira í leikhús en karlar og því eldri sem svarendur em þeim mun oftar fara þeir í leikhús. Um 46% þeirra fara aldrei á lista- sýningar og um 45% sjaldan en 9% segjast gera slíkt oft. Yfir heimingur þeirra fer sjaldan á tónleika og 43% segjast aldrei fara á tónleika. Það er helst að Hafnftrðingar fari í kvik- myndahús því 21% þeirra segjast gera slíkt oft en 67% sjaldan. Hafnfirðingar em áhugasamir um íþróttir eins og sést af þátttöku þeirra í íþróttafélögum. Alls segjast 14% vera þátttakendur í Haukum, 8% í FH og 6% segjast taka þátt í starfi annarra íþróttafélaga í bænum. í öll- um tilvikum em karlar áhugasamari um íþróttir en aldursdreifing er mismunandi eftir félögum. Þannig vex þátttaka í FH eftir aldri en hjá Haukum er því þveröfugt farið, þar er styrkurinn langmestur hjá yngri aldurshópunum. Um 6% svarenda segist taka þátt í stjómmálastarfi og er þátttaka meiri meðal karla og vex með aldri. 5% taka þátt í kirkjustarfi og um 3% svarenda eru í kór í Hafnaifirði. Fallegt bæjarstæði Eins og fram hefur komið áður er hátt hlutfall þeirra sem svara aðflutt- ir til Hafnarfjarðar á síðustu áratug- um. Aðspurðir um ástæður þess að þeir fluttu í bæinn segjast langflestir, eða 36%, að það haft verið vegna framboðs á húsnæði. Um fjórðungur flutti vegna þess hve bæjarstæðið er fallegt og næstum fimmtungur nefnir sambúð við Hafnfirðing sem ástæðu og litlu færri atvinnu. kemur m.a. fram að nefndin styður þá ákvörðun menntamálaráðherra að taka ekki við nemendum til náms í haust. Brautskráningum frá skólan- um hefur ekki fjölgað hin síðari ár og er það ekki í samræmi við þá þróun sem ætla mætti að atvinnulífið hefði þörf fyrir. Nefndin er sammála um að eftir- farandi meginstefna skuli ráða við endurskipulagningu Fiskvinnsluskól- ans: "Skólinn verði fyrst og fremst matvælaskóli með sérstakri áherslu á fiskvinnslu og því verði námskráin tekin til gagngerðar endurskoðunar með hliðsjón af þörfum atvinnulífs- ins. Ljóst er að skólanum er ætlað veigamikið hlutverk sem verkþjálf- unarsetur sjávarútvegsbrautarinnar í Reykjavík. Jafnframt á skólinn að starfa sem sjálfstæður framhaldsskóli fyrir nemendur sem lokið hafa námi á sjávarútvegsbraut..." Nemendum fækkar Með nefndarálitinu fylgja ýmsar tölulegar upplýsingar um nám í sjáv- arútvegi hérlendis. Þar kemur m.a. fram að nemendum hefur fækkað í nær öllum skólum og deildum sem veita þetta nám. Fjöldi nemenda í Fiskvinnsluskól- anum náði hámarki árin 1990-1991 þegar 48 nemendur stunduðu nám þar hvort árið. I fyrra var fjöldi nem- endum hinsvegar 33 sem er með því lægsta frá árinu 1980. Útskrifuðum nemendum fækkaði um helming milli áranna 1991 og 1993. Árið 1991 útskrifuðust 26 nemendur af fískiðnaðardeild en að- eins 12 í fyrra. "Karlsen" kemur ekki Nú mun Ijóst að kvikmyndin "Karlsen stýrimaður" kemur ekki til Hafnarfjarðar en sýning- ar á þessari mynd voru áformað- ar í tengslum við lýðveldisafmæl- ið í bænum. Eftir miklar bréfa- skriftir við kvikmyndayfírvöld í Danmörku er þetta niðurstaða málsins. Aðeins mun eitt eintak vera til af myndinni og ekki tök á að senda það hingað. Kvikmyndin Karlsen stýrimaður var sýnd í Hafnarfjarðarbíói frá jól- um 1958 og fram að hvítasunnu 1959 og er þetta vinsælasta fjöl- skyldumynd sem sýnd hefur verið í bænunt. Búið var að fá vilyrði frá Danmörku unt að myndin kæmi í haust eftir að Erlendur Sveinsson hjá Kvikmyndasafni Islands hafði beitt sér fyrir því með bréfaskrift- um til Studiofilm í Danmörku. I bréfi sem barst frá Danmörku í síðasta mánuði kemur hinsvegar frant að þegar vilyrðið var gefið fyrr í ár höfðu þrjú eintök af mynd- inni verið til. Síðan haft það gerst að tvö þeirra eyðilögðust hjá "- danske provinsbiografer" eins og það var orðað og hið eina sem eftir er mun í svo strangri útleigu í Dan- mörku að ekki eru tök á að senda það til Islands. Mikil eftirspurn er eftir þessari mynd í Danmörku og mun þetta eina eintak sem til vera leigt langt fram í tímann. Tveir grænlensk- ir togarar í höfn Tveir grænlenskir rækjutog- arar voru væntanlegir til Hafn- arfjarðar í gærdag og áttu að landa afla sínum hér. Um er að ræða togarana Ocean Tiger og Ocean Sun sem nýlega komust í eigu danskra útgerðarmanna. Aætlað er að togararnir stoppi hér í tvo daga, taki kost um borð, skipti um áhafnir og sinnt verður tilfallandi viðhaldsverkefnum urn borð. Fríkirkjan Sunnudag 6. nóv. Barnasamkoma kl. 11,00 Opið hús er í safnaðarheimili kirkjunnar sunnudaga kl.20 fyrir unglinga, þriðjudaga kl. 17,00 fyrir 8-10 ára, fimmtudaga kl. 17,00 fyrir 11-12 ára. Æfing bamakórs kirkjunnar miðvikudaga kl. 17:30 í kirkjunni. Séra Einar Eyjólfsson Hafnarf jarðarkirkja Sunnudag 6. nóv. Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Allra heilaga messa kl. 14,00 Altarisganga - minnst látinna Organisti Helgi Bragason. Kyrrðarstund í hádeginu á miðvikudögum kl. 12. Léttur hádegisverður á eftir. Störf með 10 - 12 ára börnum kl. 18,00 þriðjudaga í safnaðar- athvarfinu Suðurgötu. Æskulýðsstarf kl. 20,00 þriðjudaga í Góðtemplarahúsinu. Séra Gunnþór Ingason + I Víöistabakirkja Laugardagur 5. nóv. Sr. Kritján Valur Ingólfsson flytur fyrsta fræðslu- er*ntii sitt af þrem kl. 10,30 í kiirkjunni undir rJfwjlM^i heitinu Heilög messa, helgisiðir og kirkjutónlist, -iltUft? Sunnudagur 6. nóv. Bamaguðþjónusta kl. 11, Guðþjónusta kl. 14. Allra heilagra messa látinna minnst. Flutt verður verkið Heill þér himneska orð. Eins. Sig. Skagfjörð Steingrímsson, Celló: Olöf Sesselja Oskarsdóttir, Organleikur Elías Davíðsson, kór Víðistaðasóknar syngur, Stjórnandi Ulrik Óskarsson Séra Sigurður Helgi Guðmundsson

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.