Fjarðarpósturinn - 03.11.1994, Síða 12
BLÓMABÚÐIN
*
Blóm &
Gjafavörur
T • . r* r-
Linnei
0971
Bifreiðastöð H a f n a r f j a r ð a r
sími 650 666
TILBOÐSFERÐIR Á LEIFSSTÖÐ
l-4 kr. 3.500 & 5-8 kr. 4.200
Húsaleigubætur samþykktar í bæjarráði
Um óútfylltan vfxil að ræða
-segir Magnús Jón Arnason bæjarstjóri í tillögu sinni um bæturnar
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum í síðustu viku að taka
upp húsl^igubætur til reynslu í
eitt ép. I tillögu sem Magnús
Jón Arnason bæjarstjóri flutti
og samþykkt var segir m.a. að í
rauninm sé ríkisvaldið að biðja
sveitarfélögin að skrifa upp á
óútfylitan víxil. Lögin um
húsaleigubætur séu bræðingur
af verstu gerð og á þeim ýmsir
annmarkar sem gera fram-
kvæmdina flókna og torvelda
mat á áhrifum og kostnaði.
Hvað varðar rökstuðning með
húsleigubótunum kemur fram hjá
bæjarstjóra að þær séu þó spor
fram á við í þeim skilningi að í
þeim er í fyrsta skipti gert ráð fyr-
ir jöfnun aðstöðu milli þeirra sem
kjósa að búa í eigin húsnæði og
þeirra sem annaðhvort kjósa að
gera það ekki eða hafa ekki fjár-
hagslegt bolmagn til þess. Síðan
segir í tillögunni: "Vegna þessa og
þrátt fyrir fjölmarga augljósa ann-
marka á lögunum samþykkir bæj-
ALLT FRAM STREYMIR ENDALAUST,
ÁR OC DAGAR LÍÐA;
NÚ ER KOMIÐ HRÍMKALT HAUST,
HORFIN SUMARBLÍÐA.
20% KYNNINGAR-
AFSLÁTTUR AF NÝJUM
SÉRRÉTTASEÐLI í F|ÖRUNNI
VÍKING^VEISLURNAR I ALCLEYMINGI í
FIÖRUCARÐINUM.
OPIÐ TIL 03.00 UM HELGAR.
FJARAN
J (heytt w}... eHK Mni
STRANDGÖTU 55, HAFNARFIRÐl,
SÍMI 651213/651890, FAX 651891
arráð að taka upp húsaleigubætur
til reynslu í eitt ár."
Magnús Jón telur að eðlilegra
og einfaldara hefði verið að greiða
húsaleigubætur í gegnum skatt-
kerfið með sama hætti og vaxta-
bætur til húsbyggjenda og barna-
bætur til fjölskyldufólks. Um sam-
bærilegar bætur sé að ræða og
megnið af þeim upplýsingum sem
leggja þarf fram séu þar þegar til
staðar.
jU . 'V ‘
■ , .
Þau Þröstur Magnússon og Svanhvít GuíYmundsdóttir frá Hafnarfirði í léttri sveiflu.
Alþjóðlega danskeppnin heppnaðist vel
Það er ekki annað hægt að segja
en að aljijóðlega danskeppnin,
Viking Open, sem haldin var í
Hafnarfirði á laugardag hafi
heppnast vel. Reykvísk pör áttu
góðu gengi að fagna í kcppninni og
í tilefni Sprengidaga
20 % afsláttur af ostabakka
ns - , , . * Fjórir ostar og
'l/ U, I—I I I Q | fl sulta aðeins kr. 575,-
Fjarðargötu 11 Sími: 653940
ekki kom á óvart að heimsmeistar-
arnir í atvinnudönsum sigruðu í
sínunt flokki. Nánar er sagt frá
keppninni á íþróttaopnu og greint
frá gengi Hafnfirðinga.
Einna bestum árangri af hafn-
firskum dönsurum náði parið Eðvarð
Þór Gíslason og Asta Lára Jónsdóttir
eða öðru sætinu í latin-dönsum 12-13
ára og þriðja sæti í standard-dönsum
í sama flokki.
Reykvísk pör voru sigursæl og
sigruðu í átta flokkum af átján sem
keppt var í.
-SJÁ NÁNAR Á BLS. 10
Dröfn hf. hefur sótt um fram-
lengingu á greiðslustöðvuninni.
Sala á
eignum
reynd
Dröfn hf. hefur sótt um fram-
lengingu á greiðslustöðvun sinni
til næstu þriggja niánaða.
Jafnframt eru eigendur
fyrirtækisins að reyna að selja
eignir þess til að létta á erfiðri
fjárhagsstöðu.
Sem kunnugt er af fréttum var
öllu starfsfólki Drafnar sagt upp
um mánaðarmótin er þiggja vikna
greiðslustöðvun rann út. Rúnar
Sigurðsson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins segir að allar líkur séu
á að starfsfólkið fái endurráðningu
en alls er um tæplega 60 manns að
ræða.
Hvað varðar framiengingu á
greiðslustöðvuninni mun sýs-
lumaður taka afstöðu til málsins í
dag, limmtudag. Rúnar er bjart-
sýnn á að framlengingin fáist.
Engar formlegar viðræður eru
hafnar um eignasölu en Rúnar segir
að þreifingar séu í gangi við ýmsa
aðila. Það sem einkum á að reyna
að selja eru eignir við
Strandgötuna.
"Okkar hugmynd er annað hvort
að selja eignir eða leigja þær út ef
sala gengur ekki,” segir Rúnar.
Líkbíllinn
gerður upp?
Byggðasafnsnefnd er nú að at-
liuga hvort leita eigi til Ford-um-
boðsins með styrk til að gera upp
gamla Ifkbflinn sem verið hefur í
vörslu Byggðasafnsins. Bíllinn er
með miklum útskurði eftir Rík-
harð Jónsson.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bimi Péturssyni hjá Byggðasafn-
inu var bíllinn síðast í notkun á ár-
unum 1966-67. Á honum er tré-
kassi að aftan og er útskurður Rík-
harðs á kassanum. Það er talið
nauðsynlegt að gera bílinn upp því
talsvert ryð er komið í hann.