Fjarðarpósturinn - 16.03.1995, Síða 4
4 FJARÐARPÓSTURINN
Hljóðbækur
eru fyrir alla
Blindrafélagið hefur um
árabil gcfið út svokallaðar
hljóðbækur fyrir ahnennan
markað, má þar nefna íslend-
ingasögur, barnabækur,
spennubækur og bækur al-
menns efnis.
Nú hefur blindrafélagið
stofnað sérstakan Hljóðbóka-
klúbb, sem mun gefa út 6-8
bækur á ári. Þeir sem gerast fé-
lagar í klúbbnum er þó ekki
skylt að kaupa allar bækumar,
þær má afþakka með fyrirvara
eða panta aðrar í staðinn. Þá
sendir Hljóðbókaklúbburinn frá
sér fréttasnældu til félaga sinna
með kynningu á hverri útgáfu-
bók og upplýsingum um aðra
starfsemi klúbbsins.
Fyrsta bók klúbbsins er fyrra
bindi af hinni kunnu skáldsögu
Góði dátinn Svejk eftir Jaroslav
Hazek í þýðingu Karls Isfelds.
Það er hinn góðkunni leikari
Gísli Halldórsson sem les, en
hann las einmitt þessa sögu í út-
varpið fyrir nokkrum árum við
frábærar undirtektir. Seinna
bindið kemur síðan út síðar á ár-
inu. Þeir sem gerast stofnfélagar
I klúbbnum fá valið efni af upp-
lestri Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi úr eigin verkum.
Hljóðbækur eru ekki eitthvert
sérfyrirbæri sem eingöngu er
ætlað blindum eða sjónskertum.
Hljóðbækur henta vel fyrir alla.
Þeir sem hafa komist í kynni við
hljóðbækur eru yfirleitt sam-
mála um að þær geri þeim
kleyft að njóta góðra bóka í
auknum mæli og við ýmsar þær
aðstæður sem lestur er erfiður
eða óframkvæmanlegur.
Bækur Hljóðbókaklúbbsins
og aðrar útgáfubækur Blindra-
félagsins eru hljóðritaðar við
fullkomnar aðstæður og snæld-
unum er haganlega fyrirkomið í
þar til gerðum pakkningum,
sem eru á ytra borði áþekkar
prentuðum bókum og fara vel í
bókahillum.
Þeir sem hafa áhuga á að ger-
ast félagar í Hljóðbókaklúbbn-
um geta gert það í síma 568
7333.
Ovenjuleg Guðsþjónusta
Sunnudaginn 19. mars
verður í Hafnarfjarðarkirkju
kl. 14:00 sýnt leikverkið
„Samtal við Guð”. Verkið
mun korna í stað venjulegrar
Guðsþjónustu, þ.e. ritningar-
lestrar og predikunar.
Fram koma Jón Hjartarson,
Edda Heiðrún Backmann. Mar-
ía Sigurðardóttir, Ragnheiður
Tryggvadóttir og Guðbjörg
Arnardóttir. Þá syngur Barna-
kórinn undir stjórn Brynhildar
Auðbjargardóttur
ÍTíítifcluþjómríi
PWtrkt
uppa
SPARISJOÐUR
HAFNARFJARÐAR