Fjarðarpósturinn - 31.08.1995, Page 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Flotkvín keypt af breska hernum í Skotlandi
Er bjartsýnn á
að lausn finnist
-segir Eiríkur Ormur Víglundsson framkvæmdastjóri
Eiríkur Ormur Víglundsson
framkvæmdastjóri Vélsmiðju
Orms og Víglundar segir að hann
sé bjartsýnn á að lausn finnist hvað
varðar staðsetningu flotkvíarinnar
í Hafnarfirði. Hvað varðar skyndi-
lega komu kvíarinnar til bæjarins
segir Eiríkur að þeir liafi keypt
hana á uppboði hjá breska hernum
í bænum Roside í Skotlandi og
þurftu að flytja hana strax á brott.
Verð sem þeir gáfu fyrir kvína var
mjög hagstætt og reiknar Eiríkur
með að þeir geti komið henni í
gagnið fyrir um 100 milljónir kr. og
sé þá allt talið með. Ný kostar
svona kví um 120 milljónir kr.
Sem kunnugt er af fréttum er þetta
ekki sú kví sem vélsmiðjan ætlaði sér
upphaflega að kaupa. Eiríkur segir að
þeir hafi verið í þröngri stöðu þar sem
báðar þær kvíar sem þeir ætluðu sér
að kaupa hafi verið seldar. "í dag
voru ekki margir kostir eftir fyrir
okkur í Evrópu,” segir hann.
Sem kunnugt er af fréttum gáfu
forráðamenn vélsmiðjunnar út yftr-
lýsingu við komuna um að ef þeir
fengju ekki aðstöðu fyrir kvína í
Hafnarfirði myndu þeir flytja hana og
alla sína starfsemi úr bænum. Eiríkur
segir að þeir séu ekki með neinar hót-
anir nú enda orðið varir við að velvilji
sé til að leysa málið hér innanbæjar.
Unnið við flotkvína í Hafnarfirði
Flotkvíin er nokkuð komin til ára
sinna, hún var byggð 1944 en endur-
byggð fyrir fjórum árum síðan. Hún
er töluvert minni en sú kví sem upp-
haflega átti að kaupa en getur tekið
nær alla togara hérlendis upp.
Áhyggjur af mengun
Eyjólfur Eyjólfsson skrifstofu-
stjóri Fiskmarkaðarins segir að flsk-
verkendur við Suðurbakka hafnarinn-
ar hafi töluverðar áhyggjur af því að
mengun fylgi starfsemi flotkvíarinnar
í Hafnarfirði. “Við viljum ekki að hún
sé staðsett í grennd við okkur af þess-
um sökum enda yrði það alls ekki í
samræmi við þrifalgt umhverfi sem
þarf að vera í loingum matvælafram-
leiðslu, “ segir hann. “Hinsvegar ber
á það að líta að erfitt er að setja sig
upp á móti atvinnuskapandi tækifær-
um eins og staðan er á vinnumarkað-
inum hér í bænum nú.”
Bæjarráð ályktar um St. Jósefsspítaia
Skorað á ráðherra
að tryggja reksturinn
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir
Bæjarráð fjallaði um vanda St.
Jósefsspítala á fundi sínum í síð-
ustu viku. Samþykkt var ályktun
þar sem skorað er á heilbrigðis-
ráðherra að trvggja rekstur spít-
alans svo hann geti starfað áfram
í samræmi við forsendur þær sem
gert var ráð fyrir þegar Hafnar-
fjarðarbær og ríkissjóður keyptu
spítalann. Jafnframt var bæjar-
stjóra falið að fylgja málinu eftir.
Sem kunnugt er af fréttum Fjarð-
arpóstsins eru um uppsafnaðan
rekstrarvanda upp á 40 miljónir kr.
að ræða og leiðrétta þarf rekstrar-
grundvöllinn um 10-15 milljónirkr.
á ári.
Alyktunin sem samþykkt var
hljóðar svo: “Bæjarráð Hafnar-
fjarðar skorar eindregið á heilbrigð-
isráðherra að tryggja rekstur St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði sam-
kvæmt þeim forsendum sem upp-
haflega var gert ráð fyrir, þegar
Hafnarfjarðarbær og ríkissjóður
keyptu spítalann, þ.e. að þar yrði
áfram rekið deildarskipt sjúkrahús
sem sinnti m.a. bráðavaktþjónustu.
Bæjarráð minnir einnig á bréf
heilbrigðisráðherra frá 29. apríl
1994 þar sem skilgreind er nánar
starfsemi lyflækningadeildar
sjúkrahússins.
Til að St. Jósefsspítali geti sinnt
hlutverki sínu og þjónustu ber
nauðsyn til að tryggja fjárhagslega
stöðu hans og leysa þann uppsafn-
aða vanda sem nú íþyngir rekstri
hans.
Bæjarráð skorar á heilbrigðisráð-
herra að hann beiti áhrifum sínum
til að á fjárlögum 1996 verði tekið á
fjárhags- og rekstrarvanda St. Jós-
efsspítala með viðunandi hætti.”
Starfsstúlka óskast
Fjanöarpósturinn uill ráöa stanfsstúlku til að annast reikn-
ingagerð og innheimtu.
Þarf aö hafa góöa framkomu, en uera
ákueðin og skipulögð.
Nokkurrar töluukunnáttu krafist.
Um er aö ræöa hlutastarf.
Upplýsingar á skrifstofu Fjaröarpóstsins, Bæjarhrauni 16.
FJARÐARPÓSTURINN
fréttablaö Hafnfirðinga
OkJkur vantar
til
í landssöfnuninni
3. september
konurog . .
börrineyð
skráning í síma
eitt númer fyrir allt lanclid
RAUÐI KROSS ISLANDS
HAFNARFJARÐARBÆR
Frá grunnskólum
Hafnarfjarðar
Skólabyrjun
Föstudagur 1. september
Nemendur mæti sem hér segir:
kl. 09:00 7. og 10. bekkir (f. '83 og '80)
kl. 10:00 6. og 9. bekkir
kl. 11:00 5. og 8. bekkir
kl. 13:001. og 4. bekkir
kl. 14:00 2. og 3. bekkir
(f. '84 og '81)
(f. '85 og '82)
(f. '89 og '86)
(f. '88 og '87)
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði
SKILTAGERÐ AV.
DALSHRAUNI 14, SÍMI 565-2035
□ Hurðarskilti □ Póstkassar
□ Krossaskilti □ Krossar
□ Barmmerki o.m.fl.
-Fjarkennsla í 55 ár -
Hlemmi 5, II. hæð, 105 Reykjavík.
Sími: 562 97 50. Bréfsími: 562 97 52.
Rafpóstur:brefask@ismennt.is
Vefsíða: http//rvik.ismennt.is/~brefask
Afgreiðslan er opin frá 10 til 15 alla virka daga.
Símsvari tekur við skilaboðum utan afgreiðslutíma.
Póstsendum hvert sem er.