Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Blaðsíða 2
2 FJARÐARPÓSTURINN gTJQBMUfiPÁ Gildir frá fimmtudegi 5. okt. til mið- vikudags 11. okt. Vatnsberinn (20. jan. - 18. feb.) Byrjaðu vikuna á því að fastmóta fram- tíðar áætlanir þínar og stefnu. Þú býrð yfir hæfileikum sem gætu gefið þér mikl- ar tekjur ef aðeins þú kæmir þeim í fram- kvæmd. Hvert sækir hugur þinn? Hvað heillar þig? Hvar líður þér vel? Hvað finnst þér gott? Hvaða tilfinningar eru allsráðandi hjá þér? Fiskarnir (19. feb. - 20. mars) Njóttu vel þess tíma sem er í uppsiglingu. Þetta er sérstakt tímabil sem tileinkast af trúarlegum og andlegum málefnum. Ým- islegt sem hefur verið þér hulið á eftir að “poppa” upp í vitund þína. Ef þú ert á þessu sviði, (flestir fiskar eru það) skaltu taka vel eftir. Bingó! Hrúturinn (21. mars - 19. apríl) Þetta er ekki góð vika til fjárfestinga, ein- hver reynir að pretta þig. Leggðu þig alla(n) fram við að leyfa ástinni þinni að stjana við þig á allan hátt, hátt og lágt. Það er mikill kærleikur í gangi, án allra skilyrða og þú mátt búast við góðum gjöfum gefnar frá hjartanu. Nautið (20. apríl - 20. maí) Nú finnst þér að sú mikla vinna sem þú hefur staði í undanfama mánuði sé loks- ins að skila af sér góðum kostum og breytingar fyl&ja í kjölfarið. Nautið er oft hrætt við að taka stórar ákvarðanir en hlustir þú á innri rödd þína, veistu hvenær tíminn þinn er réttur. Tvíburinn (21. maí - 20. júní) Það er engin tilviljun að þú afþakkar ein- hvern hlut eða aðstoð. Síðar muntu þakka þínum sæla fyrir að hafa ekki þegið þetta boð. Það hefði ekki verið þér til góðs. Svona virkar innsæið. Af hverju gerir maður ýmsa hluti eða gerir ekki, og vita ekki nein rök fyrir því? Krabbinn (21. júní - 22. júlí) Þú virðist hafa fullmikla þörf fyrir að fullkomna eitthvað verk. Vertu viss, að þessi árátta þín orsakar þá innbyrðis spennu sem háir þér, þessa daga. Þetta kemur niður á starfi þínu og í einkamál- unum. Þér verður líka kennt um rifrildi á heimavelli. Ljónið (23. júlí - 22. ágúst) Þú tekur fjármálin föstum tökum og nú skal spara og spara og spara, allavega þessa vikuna. Reikningana verður víst samt að borga, í næstu viku. Astin er það eina sem er treystandi á, og svo nokkrar lottó tölur. 7, 9, 15, 19, 29, 43. Megi heppnin vera með þér. Meyjan (23. ágúst - 22. sept.) Vinna og aftur vinna, hvar endar þetta? Ástvinur kvartar sáran yfir langri fjarveru þinni og vill eyða með þér dýrmætum tíma, sem aldrei kemur aftur. Fjarlægðin gerir nefnilega ekki alltaf fjöllin blá. Stundum verða þau lítil og stundum hver- fa þau í þokuslæðing. Vogin (23. sept. - 22. okt.) Það virðist eitthvað mjög erfitt að finna lausn á aðkallandi vandamáli. Getur ver- ið að enn hefur ekki fundist meinsemdin, svo hægt sé að taka á málinu. Hún gæti verið nær en þú heldur. Oft hættir voginni til að leita langt yfir skammt. Þetta þarf sinn tíma. Sporðdrekinn (23. okt. - 21. nóv.) Það þýðir lítið að vera reið(ur) þó allt gangi ekki eins og “þú” vilt hafa hlutina. Aðrir hafa sína skoðun, sinn vilja og bregðast við á sinn hátt. Þótt reiðin þín sé fljót að gufa upp er ekki víst að aðrir séu eins fljótir að gleyma. Þér finnast fýlu- púkar, leiðindarpúkar. Bogmaðurinn (22. nóv. - 21. des.) Þetta gæti bara orðið sú vikan sem þú átt eftir að minnast alla æfi. Ef þú ert á lausu, stendur ástin við hlið þér. Tilfinningalíf bogmannsins er á sérstaklega viðkvæmu stigi en jafnframt í góðu jafnvægi. Þessi orka gefur þér aukin áhrif og vellíðan, sem skín langar leiðir. Steingeitin (22. des. - 19. jan.) Þú ert laus úr leyðindarmáli, leyst úr áög- um á farsælan hátt, sennilega eitthvert samband, þar sem þú fékkst lítið sem ekkert út úr nema langvarandi þýngsli, sem hvarf þar með. Góð og notaleg vika framundan. Tjáðu ástinni þinni þína eilífu ást. Líttu á björtu hliöarnar. Olís í Hafnarfirði og Garðabæ Þjónustustöð mánaðarins Starfsfólk Olís í Hafnarfirði tekur við viðurkenningunni. Þjónustustöðvar Olís í sept- ember eru tvær, í Hafnarfirði og Garðabæ, en Olís tilnefnir í hverjum mánuði þjónustustöð mánaðarins á höfuðborgar- svæðinu. Af þessu tilefni var slegið upp veislu á stöðvunum og starfsfólki afhent viður- kenningarskjöl og þökkuð vel unnin störf. Við val á þjónustustöð mán- aðarins er tekið tillit til margra ólíkra þátta svo sem þjónustu, framkomu og umgengni um bif- reiðar viðskiptavina. Starfsfólk veit ekki hverjir kanna þessa þætti né hvenær von er á þeim. í Hafnarfirði var starfsmönn- um og viðskiptavinum boðið upp á pitsur af þessu tilefni en í Garðabæ var rjómaterta á boðstólum. Vakt þrjú í Garðablæ stóð sig best af einstökum vökt- um og fékk fullt hús stiga, það er stóð sig óaðfinnanlega. Þetta skilar sér einnig í launaumslög- um starfsmanna þessara stöðva því frammistaða starfsmanna er launatengd. (fréttatilkynning) Helgarsýning á kirkjulist í Strandbergi Um næstu helgi mun kirkjulistakonan Sigrún Jónsdóttir sýna nokkur verka sinna í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarð- arkirkju við Strandgötu í Hafnarfirði. Sigrún er á leið til Seattle í Bandaríkjunum til að setja upp viðamikla sýningu á verkum sínum í Norræna listasafninu þar og verða nokkur þeirra á sýn- ingunni í Strandbergi. Sigrún er ein þekktasta kirkjulistakona landsins, kunn fyrir trúarleg verk sín sem hún vefur, saumar og vinnur í batík. Margir fegurstu messuskrúðar og altarisklæði hér á landi eru unnin af henni auk annarskonar verka sem skírskota þó jafnan til trúarlegra kennileita og tákna. Safnaðarheimilið Strandberg sem í sjálfu sér er mikið lista- verk með glögga trúarlega skírskotun í útliti sínu og gerð utan sem innan er fögur um- gjörð slíkra verka og sýnir Sig- rún hlýjan hug sinn til þess og safnaðar Hafnarfjarðarkirkju með því að velja Strandberg sem sýningarstað. Sýningin verður formlega opnuð á föstudagskvöldið kemur 6. október kl. 18.00. Verður hún opin laugardag til mánudags kl. 14-19.00. Frítt er inn á sýninguna og er hún öll- um opin. Gunnþór Ingason sóknar- prestur Æringi -meinlegur og miskunn- arlaus - skrifar: Heilsu hvað? Bæjarlögmaður telur jörðina Stekk vera eign bæjarins, sagði í síðasta Fjarðarpósti. Akaflega hringir þetta upprunabjöllum í ær- ingjakolli en víst er að þeir sem þiggja af okk- ur skattana, einkum útsvarið, gera það ekki endasleppt þessa dagana: Skattþegar skrönglast í jarðir, skammt þegar kjörskerðing hrekkur. Bæta í bæjarsjóð harðir brátt er hún Ingvarsbúð Stekkur. Dýraverndurfélag Hafnfirðinga vill setja andaða gælubúka sína í “vígða jörð” þ.e.a.s. hefur sótt um grafreit fyrir gæludýr. Allt er gott um það að segja en Æringi setur þó eitt ærið spumingamerki við þessar hugleiðingar: Þau grafa vilja gælin sín sem grætur syrgir flestur. Hani, krummi, hundur, svín, hver skyldi verða prestur? Nokkrar fjallmyndarlegar læonskonur birt- ust glaðbeittar á síðu tvö í 33 tbl. Fjp. Fyrir- sögn: Sala hafin á Kaldárpokanum. Æringi las ekki meir: Ymislegt er okkur kleift, engin sýn til loka. Kúnstugt er að geta keypt Kaldánna í poka! Og á íþróttasíðunni ágætu var frétt um heilsuhlaup. I slíkum heilsugjömingum flæða blóð, sviti og jafnvel tár en heilsu-hvað?: Heilsu-efling, heilsu-kaup, í hlaupi streyma vessar. Segja skokkið heilsu-hlaup jú sælt veri það og blessað... Að lokum: Af tæknilegum orsökum hvarf k úr vísu síðast (þorskakverk, sbr. höfuð af þors- ki, varð óvart þorskaverk). Langar mig að prenta hér vísuna rétta: Kennsla í þurrki á þorskakverk/þyngir augnalokendur./Verð- ur manna fyrsta verk/að vekja sína nent- endur. GAFLARI VIKUNNAR Alltaf bjartsýnn Fullt nafn? Jón Heiðar Allonsson Fæðingardagur? 9.12.1958 Fjölskylduhagir? Giftur Heiðrúnu Janusardóttur æskulýðsleiðbeinenda Bifreið? Nissan Sunny 84 Starf? Starfsmaður á Sjóminjasafn- inu Fyrri störf?, Ýmis störf tengd minjavörslu á Islandj Helsti veikleiki? A erfitt með að segja nei Helsti kostur? Alltaf bjartsýnn Eftirlætismatur? Jólarjúpur a la Heiðrún Versti matur? Á eftir að bragða á honum Eftirlætistónlist? Rokktóniist frá 1965-75 Eftirlætisíþróttamaður? Ian Wright hjá Arsenal Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú mestar mætur? Hlutlaus Eftirlætissjónvarpsefni? Fréttir, íþróttir og flest enskt efni Leiðinlegasta sjónvarpsefni? Sápuóperur Besta bók sem þú hefur lesið? ís- landsklukkan eftir Laxnes Hvaða bók ertu að lesa núna? Saga Hafnarfjarðar Uppáhaldsleikari? Gene Hackman Besta kvikmynd sem þú hefur séð? High Noon Hvað gerirðu í frístundum þín- um? Reyni að slappa af með fjöl- skyldunni Fallegasti staður sem þú hefur komið til? Húsafell Hvað meturðu mest í fari ann- arra? Heiðarleika Hvað meturðu síst í fari annarra? Oheiðarleika Hvern vildirðu helst hitta? Snorra Sturluson Hvað vildirðu helst í afmælis- gjöf? Góða tvíhleypu Hvað myndirðu gera ef þú ynnir 2 millj. í happadrætti? Fara með fjölskylduna til sólarlanda og grynnka á skuldum Hvað myndirðu gera ef þú værir bæjarstjóri í einn dag? Gera Hafnaifjörð að menningarbæ núm- er 1 á Islandi Ef þú værir ekki manneskja, hvað værirðu þá? Belja á Ind- landi Uppáhalds Hafnarfjarðarbrand- arinn þinn? Hafnfirðingur var að gera könnun á kóngulóm og setti eina slíka við hliðina á snigli og sagði svo báðum að hlaupa. Kóngu- lóin hreyfðist ekki og þá komst Hafnfirðingurinn að þeirri niður- stöðu að kóngulær verða hreymar- lausar þegar lappimar slitna af þeim.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.