Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Blaðsíða 5

Fjarðarpósturinn - 05.10.1995, Blaðsíða 5
FJ ARÐARPOSTURINN 5 Málefni Miðbæjar hf Bærinn hefur keypt óheftan aðgang að bílageymslunni í áliti frá bæjarlögmanni sem lagt hefur verið fram í bæjarráði kemur fram að bærinn hefur greitt fyrir og keypt óheftan aðgang að bílageymslunni undir Miðbæ hf. Þeim afnotarétti hefur verið þing- lýst og telur bæjarlögmaður mjög ólíklegt að gjaldþrot Miðbæjar hf. muni leiða til riftunar á þeim rétt- indum. Þetta álit bæjarlögmanns gengur þvert á álit meirihluta bæj- arstjórnar sem telur að verði félag- ið gjaldþrota séu leigugreiðslur tapaðar og bærinn haFi engan af- notarétt af bílagevmslunni þrátt fyrir þinglýsinguna. Sem kunnugt er af fréttum hyggst meirihluti bæjarstjórnar kaupa bílageymsl- una af Miðbæ hf. til að tryggja hagsmuni bæjarsjóðs en sam- kvæmt áliti bæjarlögmanns er slíkt með öllu óþarfi. Álit bæjarlögmanns var lagt fram í framhaldi af fyrirspum frá Magnúsi Gunnarssyni í bæjarráði nýlega. Magnús vísaði í bókun frá meirihluta bæjarráðs þar sem fram kemur að verði Miðbær hf. gjaldþrota séu leigugreiðslur vegna bílageymslunn- ar tapaðar og bærinn hefði engin af- not af henni. I fyrirspuminni vildi Magnús m.a. fá álit bæjarlögmanns á því hvort hugsanlegt gjaldþrot myndi leiða til riftunar á þinglýstum afhota- rétti bæjarsjóðs. Samþykkt bæjarráðs í janúar1993 1 svari sínu vitnar bæjarlögmaður fyrst í samþykkt bæjarráðs frá janúar 1993 um málið þar sem bæjarráð fagnar hugmyndum um byggingu bílageymslu. Þar segir m.a.: “Bæjar- ráð samþykkir að endurgreiða hluta gatnagerðar- og bílastæðagjalda vegna Fjarðargötu 11-13 vegna byggingar bílageymslukjallara fyrir a.m.k. 100 bifreiðar sem lóðarhafi Miðbær Hafnarfjarðar hf. mun reisa og kosta. Endurgreiðsla er að nafnverði sem svarar um það bil 3.300 þúsund kr. á ári hverju að viðbættum verðbótum og markaðsvöxtum næstu 15 árin. Jafnframt þessu munu bæjaryftr- völd ekki leggja á sérstakt viðbótar- gatnagerðargjald vegna bifreiða- geymslunnar. Greiðsla þessi tryggir þeim sem erindi eiga í miðbæ Hafnarfjarðar óheftan aðgang að bifreiðageymsl- unni...” Fullt gildi Síðan segir í áliti bæjarlögmanns: “Þessi bæjarráðssamþykkt hefur fullt gildi þó samningur um efni hennar hafi ekki verið gerður þar sem for- ráðamenn Miðbæjar JJafnarfjarðar hf. hafa samþykkt efni hennar fyrir sitt leyti með því að taka athuga- semdarlaust við þeim endurgreiðsl- um sem um getur í samþykktinni og viðbótargatnagerðargjald var ekki heldur lagt á vegna bifreiðageymsl- unnar. Samkvæmt ofangreindu hefur bærinn greitt fyrir og því keypt óheft- an aðgang að bifreiðageymslunni fyrir þá sem eiga erindi um miðbæ Hafnarfjarðar og koma bifreiðastæð- in til viðbótar öðrum bifreiðastæðum í miðbænum... Það er því misskilningur þegar því er haldið fram að bærinn hafi bif- reiðageymsluna á leigu. Ef það er vilji bæjaryfirvalda að líta nú svo á að um leigu sé að ræða en ekki keypt- an afnotarétt verður að mínu áliti að taka það skýrar fram en gert hefur verið vegna umræddrar bæjarráðs- samþykktar. Nauðsynlegt er að eyða þeirri réttaróvissu sem ríkir í þessu máli vegna tals undanfarið um leigu... Eg álít það mjög ólíklegt að gjald- þrot Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. myndi leiða til riftunar á þessum þinglýstu afnotaréttindum, enda má öllum vera ljóst að ekki var verið með gjömingum að koma verðmæt- um undan hugsanlegum gjaldþrota- skiptum eða að halla á réttindi félags- ins með öðrum hætti þar sem bæjar- sjóður keypti þennan rétt fullu verði. Réttarstaða bæjarins yrði ekki betri í þessu tilviki þó bærinn öðlað- ist beinan eignarrétt yfir bifreiða- geymslunni. Þess ber að geta í þessu samhengi að með beinum eignarrétti bæjarins yfir bifreiðageymslunni myndu skyldur bæjarins aukast þar sem viðhaldið myndi þá hvíla á hon- um. Úrgangsolía fór í höfnina Úrgangsolía lak úr togurunum Atlantic Princess og Atlantic Queen út í höfnina aðfararnótt þriðjudagsins. Sigurður Hallgríms- son framkvæmdastjóri þjónustu- sviðs hafnarinnar segir að þetta hafi litið mjög illa út í byrjun en á þriðjudagsmorgunn hafi straumar innan hafnarinnar leyst mesta hroðann upp og aðeins hægt að sjá þunna brák á höfninni. Talið er að megnið af olíunni hafi lekið úr Atlantic Princess þegar verið var að dæla úrgangsolíu úr vélarrúmi í safntank og að um mistök haft verið að ræða. Þetta er hinsvegar ekki í fyrsta sinn sem þessir togarar lenda í svona vandamáli. „Úrgangsolía er vandamál hjá skipum sem þurfa að liggja lengi í höfn eins og þessir tog- arar hafa þurft að gerasegir Sigurð- ur. Ekki er vitað hve mikið magn af olíu fór í höfnina en að sögn Sigurðar dreifðist hún um alla höfnina um nótt- ina en virtist að mestu horfm morgun- inneftir. Útgerð þessarar togarar er enn komin í mikla óvissu þar sem út- hafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg er lokið í bili fram í apríl á næsta ári. Er verið að leita verkefna fyrir skipin. ALLAR VIÐGERÐIfí: • Hjólastillingar • I/élastilling • Hemlaprófun • Réttingar • Bílasprautun • Endurskoðun • Shell smurstöð Við erum númer eitt - / Kaplahrauni ■ íað þjóna þér FAGGILT ENDURSKOÐUNARVERKSTÆÐI JkjBÍLASPÍTALINNþ- KAPLAHRAUN11 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMAR 565 4332 og 555 4332 • FAX: 565 4336 þitt eiglð útibú! Med Heimabanka Islandsbanka geturðu sinnt flestum bankaviðskiptum þínum frá heimilinu. Þú getur fært á milli reikninga, greitt gíró- og greiðsluseðla, skuldabréf og víxla, skoðað stöðu reikninga, séð færslur strax og þær hafa verið framkvæmdar, skoðað allar færslur tékka- og innlánsreikninga, prentað út þín eigin reikningsyfirlit, fylgst með stöðu kreditkortareikninga, reiknað út greiðslubyrði lána og kostnað við lántöku og flett upp I þjóðskrá. Líttu inn hjá okkur á Strandgötu I eða Reykjavíkurvegi 60 og kynntu þér þessa merku nýjung. ISLANDSBANKI Strandgötu I og Reykjavikurvegi 60 Sími SSS 4400

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.