Fjarðarpósturinn - 16.11.1995, Blaðsíða 1
Rætt við
Kristján
Bersa
-sjá bls. 6
Tillögur heilbrigðisráðherra um breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala
Starfsemin mun lamast
ef þær ná fram að ganga
r
Skíða-
deild
Hauka
-sjá bls. 10
Tónlist-
in er á
uppleið
.v..
I
■sjá bls. 4
-segir Arni Sverrisson framkvæmdastjóri. Tillögunum mótmælt í bæjarráði
Nú liggja fyrir tillögur heil-
brigðisráðherra um breytingar á
starfsemi St. Jósefsspítala sem
ætlað er að draga úr hallarekstri
spítalans. Arni Sverrisson fram-
kvæmdastjóri spítalans segir að
starfsemin muni lamast ef þessar
tillögur ná fram að ganga en þær
eru unnar af sérstökum tilsjón-
armanni sem skipaður var af
ráðherra s.l. sumar. Þá hefur
bæjarráð ályktað um málið og
þar er þessum fvrirætlunum ein-
dregið mótmælt.
Meðal þess sem gert er ráð fyrir
í þessum tillögum er að bráðaþjón-
ustu á lyflækningadeild verði hætt
og að handlækningadeild verði
breytt í fimm daga deild. Arni
Sverrisson segir að stjórn spitalans
hafi farið fram á fund með heil-
brigðisráðherra en ekki fengið enn.
Hann á þó von á að þessi mál
skýrist fyrir vikulokin. "Okkur
sýnst svo að verði þessar fyrirætl-
anir að veruleika muni eiginleg
sjúkrahússtarfsemi lamast á St.
Jósefspítala," segir Árni. "Það telj-
um við að sjálfsögðu alvarlegt mál
en að öðru leyti er erfitt að tjá sig
um málið fyrr en við höfum fengið
fund með heilbrigðisráðherra."
I ályktun bæjarráðs segir m.a. að
það sé af og frá að falla frá þeim
grundvallarforsendum í rekstri
spítalans sem settar voru fram í
bréfi þáverandi heilbrigðisráðherra
í apríl 1994.
-SJÁ BLS.3
Tveir voru
teknir með
fíkniefni
Tveir menn voru handtekn-
ir með fíkniefni í fórum sínum
í Hafnarfiröi á föstudags-
kvöld. I öðru tilvikinu reynd-
ist viðkomandi með tæplega 7
grömm af amfetamíni í fórum
sínum en í hinu tilvikinu var
um örlítið minna magn af
sama efni að ræða.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar í Hafnarfirði hafði sá sem
náðist með tæpu 7 grömmin
ekki komið við sögu lögreglu
áður. I hinu tilvikinu var það
fíkniefnalögreglan sem handtók
manninn en hann hefur oft áður
verið tekinn fyrir fíknieftiamis-
ferli.
Lögreglan segir að þessi mál
tengist ekki innbyrðis en samt
sé ástæða til að hafa áhyggjur af
að tveir menn eru handteknir
sama kvöldið í bænum með
sterk fíkniefni í fórum sínum.
Sögustund íbókasafninu
Alla miðvikudaga milli kl. 10.30 og 11.30 er sögu-
stund í boði fyrir yngstu bömin í Hafnarfirði á bókasafni
bæjarins. Að sögn bókavarðar hafa mæður verið duglegar
að koma með böm sín á þessar stundir en yfirleitt eru um
30 böm á þeim. Auk þess að lesið er fyrir bömin úr
bamabókum mega þau valsa um bamadeild safnsins og
stundum er boðið upp á lestur af snældum eða myndir af
myndbandi.
FASTEIGNASALA
Sími 565 2790
Fax 565 0790
Fagrihvammur
- 2 ÍBÚÐIR. Fallegt 326 fm. einbýli
með innb. bílskúr á frabærum
útsýnisstað. 5 svefnh. SÉRÍBÚÐ á
jarðhæð. Vönduð fullbúin eign.
SKIPTI. Endumýjað 234 fm. einbýli,
kjallari, hæð og ris, ásamt innb. bíl-
skúr. SKIPTI MÖGULEG Á
NÝRRA OG ÓDÝRARA EINBÝLI.
Áhvílandi góð lán. Verð 12,9 millj.
Dofraberg
Nýlegt 210 fm. parhús á tveimur
hæðum, með innbyggðum bílskúr.
Húsið er ekki fullbúið. Góð staðset-
ning. Áhvílandi húsbréf 2,9 millj.
Verð 12,9 millj.
Hraunbrún
GOTT ENDARAÐHÚS, með
innbyggðum bílskúr, alls ca. 232 fm.
Mjög rólegur og góður staður. ÖLL
SKIPTIMÖGULEG. Verð 14,6 millj.
INGVAR GUÐMUNDSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNARSALI - JÓNAS HÓLMGEIRSSON -KÁRI HALLDÓRSSON