Fjarðarpósturinn - 23.01.1997, Síða 11
Fjarðarpósturinn II
Landmálafél. Fram ályktar um skólamál
Bæjarstjórn endur-
skoði afstöðu til til-
lögu skólanefntlar
Á almcnnum fundi Lands-
málafclagsins Fram um skóla-
mál þann 16. janúar sl. var
samhljóóa samþykkt álvktun
þess cfnis að skora á bæjar-
stjórn að endurskoða afstöðu
sína til tillögu skólanefndar og
forcldraráðs Hafnarfjarðar
um næstu skref til einsetning-
ar grunnskólans í Hafnarfirði.
í tillögu skólanefndar sem
lögð var frani á fundi nefndar-
innar þann 11. desember sl. og
samþykkt einróma, segir m. a. að
nefndin telji nauðsynlegt að á
næsta ári (þ.e. 1997-innsk. FP)
verði byggðar grunnskólabygg-
ingar fyrir u. þ. b. 150 milljónir
króna til viðbótar viðbyggingu
Hvaleyrarskóla. Eigi að einsetja
skólana fyrir tilskilinn tíma þurfi
að byggja fyrir að jafnaði 250
milljónir króna á ári næstu 6
árin.
Ennfremur segir í tillögu
skólanefndar, að nefndin leggi til
að á næsta ári (1997) verði
byggðir fyrstu áfangar til ein-
setningar við Öldutúnsskóla og
Engidalsskóla. Embætti bæjar-
verkfræðings verði falið nú þeg-
ar að undirbúa 600-700 ferm.
viðbyggingar við hvorn þessara
skóla og verði þeim lokið eigi
síðar en í árslok 1997.
Þá leggur skólanefnd til að á
árinu 1998 verði byggður nýr
skóli sem taki nemendur úr
skólahverfum Lækjarskóla,
Öldutúnsskóla og Setbergsskóla.
Undirbúningsvinna vegna hans
heljist í byrjun næsta árs.
Á sama fundi lagði fulltrúi
foreldra fram svohljóðandi bréf
frá foreldraráði Hafnarfjarðar: „í
framhaldi af fundi okkar 9. 12.
1996 vill foreldraráð Hafnar-
fjarðar lýsa yfir stuðningi með
framkomnar tillögur skólanefnd-
arinnar um næstu framkvæmdir í
byggingu skólahúsnæðis í bæn-
um. Það er mat foreldraráðsins
að viðbyggingar við Engidals-
skóla og Öldutúnsskóla séu í
samræmi við vilja meirihluta
foreldra í Hafnarfirði."
j
§ i| ■ jTV
! I • I 1 rP^
|kt;J ij %&£ H 1 'SgJi' ll •
lH-Q-p^ f.
Bókasafnið í Dvergshúsið?
Ekki afráðið enn, segir
bæjarstjórí
Samkvæmt nýsamþvkktri
fjárhagsáætlun þessa árs á að
verja 30 milljónum til kaupa á
stærra húsnæði undir Bóka-
safn Hafnarfjarðar, en safnið
hefur í mörg ár búið við alls-
endis ófullnægjandi húsakost.
Ingvar Viktorsson, bæjar-
stjóri, segir að stutt sé í að
ákvörðun verði tekin um nýtt
húsnæði fyrir safnið, en m. a.
hafi verið iitið til Dvergshúss-
ins við Lækjargötu í því sam-
bandi, þótt ákvörðun hafi ekki
enn verið tekin en stutt sé í
hana.
„Afgefnu tilefni“
„Af gefnu tilefni vil ég að
fram komi að greinin „Grunn-
skólamál í Hafnarfirði - eftir
Guðbjörn Ólafsson" sem birt-
ist í Fjarðarpóstinum fimmtu-
daginn 9. janúar s.l. er ekki
eftirundirritaðan.
Guðbjörn Ólafsson (sign),
kt. 270643-4939,
Miðvangi 25, Hafnarfirði“
AUGLÝSING
um starfsleyfistillögur skv. gr. 71.2 í mengunarvarnarrcglugerð nr. 48/1994
1 samræmi við gr. 70.1. ofangreindrar reglugerðar með breytingum nr. 378/1994 liggja
starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin fyrirtæki frammi til kynningar á skrifstofu tæknideildar (3. hæð)
í ráðhúsi Hafnaríjarðar að Strandgötu 6 frá 15. janúar 1997.
Nr. Nafn fyrirtækis Starfsemi Aðsetur
1. Bílapartar og þjónusta Bílapartasala Dalshraun 20
2. Teiknistofan uppi á lofti Trésmíðaverkstæði Drangahraun 8
3. Þórver hf. Heitloftsþurrkun sjávarafurða Eyrartröð 3
4. Fjarðarstál Stálsmiðja Eyrartröð 6
5. Norðuráll Fiskvinnsla og reykofn Grandatröð 10
6. Bónstöð Magnúsar Bónstöð Hjallahraun 9
7. H. H. þjónustan Bifreiðaverkstæði Hólshraun 7
8. Islenska vagnasmiðjan ehf. Vélsmiðja Hringhella 5
9. Á.M. Sigurðsson, MESA Stálsmiðja 1Ivaleyrarbraut 2
10. Buska ehf. Saltfiskþurrkun IIvaleyrarbraut 2
11. Pólar-ís ehf. Fiskverkun Hvaleyrarbraut 8
12. Þurrkaðar fiskafurðir ehf. Heitloftsþurrkun sjávarafurða Hvaleyrarbraut 26
13. Daníel Gunnarsson Jarðvinnuverktaki Kaplahraun 7b
14. Finestra ehf. Álsmiðja Kaplahraun 9
15. Bílamálun Jónasar Karls Bílasprautuverkstæði Kaplahraun 14
16. Valurinn ehf. Fiskverkun Kaplahraun 18
17. Fura hf. Brotamálmsvinnsla Markhella 2
18. Holræsahreinsunin Rekstur holræsabifreiða og flutningur á spilliefnum Melabraut 15
19. Sandblástur Gísla Björnssonar Sandblástur Skútuhraun 2a
20. G.P. kranar ehf. Útgerð þungavinnuvéla Skútahraun 2a
21. Ólafur og Gunnar ehf. Trésmiðja Skútahraun 2a
22. Skotíþróttafélag Hafnarljarðar Skotvöllur í Kapelluhrauni
Rétt tíl að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
2. Ibúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar.
Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og sendast heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar,
Heilsugæslustöðinni Sólvangi, pósthólf 440, 222 Hafnarfirði, fyrir 15. febrúar 1997.
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðarsvœðis
Vöruflutningar
Hafnarfiröi
Við tökum á móti vörum og smápökkum til flutnings
hvert á land sem er.
Afgreiðsla Vöruflutningamiðstöðvarinnar í Hafnarfirði
er staðsett hjá EIMSKIP í Óseyrarskála.
Daglegar ferðir á alla helstu þéttbýlisstaði landsins.
Hröð og örugg þjónusta.
Við spörum ykkur tíma, fé og fyrirhöfn.
Vöruflutningamiðstöðin hf.
Óseyrarskála 220 Hafnarfirði Símar: 565 2166