Fjarðarpósturinn - 12.05.2005, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. maí 2005
Víðistaðakirkja
Fjölskylduhátíð á
Víðistaðatúni
hvítasunnudag 15. maí
Útiguðsþjónusta kl. 14.00
Kirkjukór Víðistaðakirkju
syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Trompetleikur
Á eftir verður boðið upp á
grillaðar pylsur.
Leikir, hoppukastali, tennis ofl.
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir
Sóknarprestur
Hafnfirðingar aka oftar á kyrrstæða hluti en
aðrir landsmenn. Skondin niðurstaða. Kannski
erum við Hafnfirðingar svona lélegir bílstjórar,
allavega ráðum við vart við að aka um hringtorg
skammlaust. Við gefum ekki stefnumerki, við
skiptum um akrein á miðju torgi, við fylgjumst
ekki með umferðinni áður en við komum inn á
torgið. Þurfum við sérstakt námskeið? Er það
vegna vankunnáttu að við ráðum ekki við fleiri
hringtorg? Ég elska hringtorg og mín mesta
skemmtun er að fara tvo hringi. En ég hata illa hönnuð hringtorg.
Hreinsunarvika verður í næstu viku, loksins. Sennilega þyrftum
við Hafnfirðingar að hafa allar vikur hreinsunarvikur. Hvers vegna
venst ungt fólk á að henda drasli þar sem það stendur? Eru hinir
eldri svona slæm fyrirmynd? Það skyldi þó ekki vera. Sumir segja
að það vanti ruslafötur víða um bæinn. Það er eflaust rétt en við
höfum enga afsökun fyrir því að henda drasli á götuna, svo einfalt
er það. Þessa dagana eru menn að þrífa fjörurnar, af því að þeir
sjálfir hentu drasli í sjóinn. Kannski ætti að fylgjast betur með þeim
sem henda drasli. Við getum t.d. flautað illilega á þá sem henda
drasli úr bílum sínum. En vart er að búast við að lögreglan taki á
málinu, hún hefur nóg á sinni könnu. Tökum nú höndum saman og
líðum ekki að fólk hendi rusli á almannafæri, látum í okkur heyra.
Bæjaryfirvöld hafa verið allt of lin við fyrirtæki sem eru með allt
í drasli í kringum sig. Þau hafa úrræðin með stoð í lögum og
reglugerðum en beita þeim ekki.
Hafnarförður er eitt fallegasta bæjarstæði landsins. Setjum okkur
það markmið að nánasta umhverfi okkar sé snyrtilegt og tökum til
hendinni með nágrönnunum. Ef enginn fer af stað, hafðu þá
frumkvæðið og bjóddu svo nágrönnunum í kaffi á eftir!
Guðni Gíslason
1. Straumur.
Í upphafi fundar var farið í
skoðunarferð í Straum ásamt
menningar- og ferðamálafulltrúi og
formanni menningar- og ferða-
málanefndar þar sem rætt um
framtíðarnotkun húsanna.
Lögð fram kostnaðaráætlun
unnin 2002 vegna viðhalds og
viðgerðar á eigninni.
Stjórn Fasteignafélags Hafnar-
fjarðar felur forstöðumanni að
vinna útboðsgögn í samráði við
menningar- og ferðamálafulltrúa.
4. Leikskóli á Völlum.
Tekið fyrir að nýju erindi
bæjarráðs varðandi fjögurra deilda
leikskóla á Völlum 3.
Stjórn Fasteignafélagsins leggur
til að skipaður verði starfshópur
með fulltrúum frá fræðslusviði,
Fasteignafélagsinu og Hjallastefn-
unni til að undirbúa byggingu
leikskóla að Bjarkarvöllum 3.
1. Gallup könnun á viðhorfi
Hafnfirðinga til miðbæjarins –
Aðalskipulag.
Rætt um hvort fara eigi út í að
gera viðhorfskönnun meðal Hafn-
firðinga varðandi miðbæ Hafnar-
fjarðar fyrir vinnu við aðalskipulag
fyrir Hafnarfjörð.
Miðbæjarnefnd felur sviðsstjóra
að vinna málið nánar milli funda.
6. Eyrarhraun Vest Mala
120309, Sótt um að afskrá
húsið hjá FMR.
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar sækir
um að rífa húsið. Lagðar fram
umsagnir Byggðasafns Hafnar-
fjarðar dags. 27.10.04. og bréf
Húsafriðunarnefndar dags.
26.10.04. Húsið Eyrarhraun brann
til kaldra kola þann 26.04.05.
Samþykkt á afgreiðslufundi
skipulags- og byggingarfulltrúa.
Umsóknin samræmist lögum nr.
73/1997.
17. Vesturgata 18-24, Niðurrif
húsa
Sótt er með ódagssettu bréfi frá
Ívari Atlasyni f.h. Parket ehf. um
niðurrif eigna í mhl. 02 og 03.
Einnig sótt um að rífa niður eignir í
mhl. 01 skv. meðfylgjandi bréfi
ódags. frá Sigurði Haraldssyni f.h.
Hafnarfjarðarbæjar. Samþykkt á
afgreiðslufundi skipulags- og
byggingarfulltrúa. Umsóknin sam-
ræmist lögum nr. 73/1997.
4. Kaplakriki 121342,
Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu á
deiliskipulagi Kaplakrika vegna
sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir bensín
dags. 26.04.05. Umhverfis- og
tæknisviði er falið að koma
ábendingum fundarins á framfæri
við umsækjanda og hönnuð. Jafn-
framt er erindinu vísað með áorðn-
um breytingum til umhverfisnefnd-
ar og undirbúningshóps umferðar-
mála. Magnús Sigurðsson óskar
bókað: „Er alfarið á móti því að
bensínstöð verði staðsett á þess-
um stað.“
11. Hunda- og kattahald í
Áslandi, bréf
Lagt fram bréf Björns Arnars
Magnússonar Erluási 31, dags.
24.apríl 2005, vegna hunda- og
kattahalds í Áslandi.
Vísað til umsagnar starfshóps
um hunda- og kattahald.
Fundur um skólastefnu
Í kvöld kl. 19.30 í Víðistaðaskóla
verður haldinn opinn fundur um skóla-
stefnu Hafnarfjarðar. Þar verða kynnt
drög að skólastefnunni og fólki gefst
tækifæri á að ræða um þau í umræðu-
hópum og verða tillögur hópanna
kynntar og ræddar í fundarlok.
Burtfarartónleikar Maríönnu
Í kvöld kl. 20.30 heldur Maríanna
Másdóttir flaututónleika í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, Hásölum. Tónleikarnir
eru hluti af burtfararprófi Maríönnu í
þverflautuleik sem hún hefur stundað
við skólann. Aðgangur er ókeypis.
Fjölskylduhátíð
Sörli stendur fyrir fjölskylduhátíð á
Sörlavöllum við Kaldárselsveg á
laugardaginn kl. 13-16. Allir velkomnir.
Bæjarbíó
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
danska gamanmyndin Det tossede
paradis eða Sælueyjan frá árinu 1962 í
leikstjórn Gabriel Axel.
Á eyjunni Trangø í Kattegat eru átök á
milli tveggja stjórnmálaflokka Sælu-
flokksins og Þjóðarflokksins. Sælu-
flokkurinn sigrar kosningar og ákveður í
sigurvímunni að segja skilið við Dan-
mörku og lýsa yfir sjálfstæði Sælu-
eyjunnar Trangø. Ríkisstjórnin áttar sig
ekki á því að kvenráðherra sem sendur
er til að stöðva brölt eyjaskeggja, er
óvarin fyrir töframætti eggjanna sem
hænur eyjarinnar verpa.
Aðalleikarar myndarinnar eru Dirk
Passer, Ove Sprogøe og Gita Nørby.
Þriðjudaginn 17. maí kl. 20 verður
sýnd grín- og söngvamyndin Sommer i
Tyrol í leikstjórn Erik Balling en myndin
var áður sýnd í Bæjarbíói á sjöunda
áratugnum.
Í austurrísku Ölpunum rekur Jósefína
hin fagra gistihúsið Hvíta hestinn.
Yfirþjónn hennar Leopold er örvita af
ást til hennar en kann ekki önnur ráð til
þess að tjá henni ást sína en að senda
henni blóm í tíma og ótíma. Jósefína
heldur að blómin komi frá kvennagullinu
Sigismund sem aftur á móti er spenntur
fyrir ungfrú Klöru. Aðalleikarar mynd-
arinnar eru langt í frá ókunnir gestum
Bæjarbíós þau Dirk Passer ( Karlsen
stýrimaður), Ove Sprogøe (Olsen-
banden) og Lone Herts. Myndin byggir
á samnefndri óperettu Erics Charells og
er á dönsku.
Sýningar í Hafnarborg
Í Hafnarborg verður frá 14. maí til 22.
ágúst sýning í tengslum við Lista-
hátiðina í Reykjavík.
Það eru listamennirnir Wilhelm Sasnal,
Bojan Sarcevic, On Kawara og Elke
Krystufek sem sýna verk sín í Hafnar-
borg, en þau eru öll þekktir samtíma-
listamenn.
Hvítasunnudagur 15. maí
Sameiginleg hátíðar- og
fermingarguðsþjónusta Ástjarnarsóknar
og Hafnarfjarðarsóknar
í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.
Prestar sr. Carlos Ferrer og
sr. Gunnþór Þ. Ingason.
Kórar Ástjarnar- og Hafnarfjarðar-
sóknar leiða söng undir stjórn
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur og
Antoníu Hevesi.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Guðbjörn Jensson stal senunni
á ágætum tónleikum Eldri Þrasta
og Gaflarakórsins. Hann hafði
verið „uppgötvaður“ á skemmt-
un hjá Þröstunum og var fenginn
til að taka fram gítarinn á
tónleikunum. Þar söng hann tvö
lög í „country-blues“ stíl og er
boðið var upp á að syngja með
tóku fjölmargir undir og mátti
glöggt sjá að lögin voru frá tíma
sem margir tónleikagestir mundu
vel. Tónleikarnir voru í
Víðistaðakirkju á miðvikudag.
Sló í gegn á tónleikum
„country-blues“ og tónleikagestir sungu með
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n