Fjarðarpósturinn - 12.05.2005, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 12. maí 2005
3ja rétta
kvöldverður:
– frá kr. 1.990,-
2ja rétta
hádegisverður:
– frá kr. 990,-
Ökukennsla
æfingatímar, akstursmat
Ný kennslubifreið - Toyota Avensis
Finnbogi G. Sigurðsson
ökukennari
Sími 565 3068
og 661 8324
Dagana 19.-24. maí (fimmtu-
dag til þriðjudags) verða haldnir
hreinsunardagar í Hafnarfirði.
Þetta er árleg vorhreinsun þar
sem íbúar eru hvattir til að
hreinsa til í görðum sínum og
fyrirtæki að snyrta lóðir sínar.
Það er sameiginleg ábyrgð okkar
að snyrtilegt og aðlaðandi sé í
kringum okkar.
Lífrænn úrgangur tekinn
Á meðan á hreinsunardög-
unum stendur munu starfsmenn
þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarð-
ar fara á milli og taka lífrænan
garðaúrgang frá íbúum. Úr-
gangurinn verður að vera vel frá-
genginn í lokaða poka og trjá-
greinar bundnar saman í knippi
(ekki verða fjarlægðir trjástofn-
ar), að öðrum kosti verða íbúar
að losa sig við úrganginn sjálfir.
Minnt er á að endurvinnslustöð
Sorpu við Miðhraun er opin kl.
12.30-19.30 á virkum dögum en
kl. 10-18.30 um helgar.
Hægt að fá verkfæri lánuð
Á meðan á átakinu stendur
verður hægt að fá verkfæri frá
vinnuskóla Hafnarfjarðar að láni
og er áhugasömum bent á að
snúa sér til þjónustumiðstöðvar-
innar varðandi það, í síma 585
5670.
Skorað á fyrirtæki
Áríðandi er að eigendur og
starfmenn fyrirtækja taki til
hendinni á lóðum sínum og í
grennd við fyrirtækin þannig að
aðkoma að fyrirtækjunum og
nærsvæðin í kring verði snyrtileg
og aðlaðandi. Góð og snyrtileg
aðkoma laðar að viðskiptavini og
er því augljós hagur fyrirtækja.
Gámar fyrir timbur og málma
Í því skyni að auðvelda fyrir-
tækjum að losa sig við úrgang
verða gámar staðsettir á nokkr-
um stöðum fyrir timbur og
málma. Mun bærinn bera kostn-
að af leigu gámana og förgunar-
gjöld af úrganginum.
Félög taki virkan þátt
Starfsmenn bæjarins munu
hreinsa til á opnum svæðum í
bænum en jafnframt verður leit-
að til félagasamtaka um að þau
hreinsi til á opnum svæðum og
útivistarsvæðum, taki svæði í
fóstur.
Höldum bænum snyrtilegum
Það er von bæjaryfirvalda að
íbúar, fyrirtæki og félagasamtök
bregðist vel við og taki duglega
til hendinni þessa daga. Sam-
einumst um að gera bæinn okkar
aðlaðandi og fallegan ásýndar.
„Fallegur og vel hirtur bær ber
íbúunum fagurt vitni og gerir
okkur enn stoltari af því að vera
Hafnfirðingar“, segir í tilkynn-
ingu frá Hafnarfjarðarbæ.
Götuhátíð og grill?
Fjarðarpósturinn birtir gjarnan
myndir af dugmiklum hópum og
skorar á íbúa við einstakar götur
eða hverfi að taka sig saman og
hreinsa umhverfi sitt og tilvalið
er að íbúarnir safnist saman í
lokin og grilli saman.
Allar ábendingar um dugmikla
hópa og götugrill má senda á
ritstjorn@fjardarposturinn.is eða
í síma 565 4513.
Hreinsunardagar
– Skorað á fólk og fyrirtæki að taka virkan þátt
Góð stemmning í götugrilli í Traðarbergi
Loftur hættir
Loftur Magnússon, skólastjóri
Setbergsskóla frá upphafi til-
kynnti starfsfólki skólans á
þriðjudag að hann hyggðist hætta
sem skólastjóri í haust. Loftur
hefur verið við skólastjórn í 34
ár, var yfirkennari í Víðistaða-
skóla en áður kenndi hann í
Öldutúnsskóla. Jafnframt hefur
Sigríður Ólöf Gunnlaugsdóttir,
aðstoðarskólastjóri óskað eftir að
fara aftur í almenna kennslu.
SUMARVINNA
Í boði er sumarvinna fyrir hraust fólk, 18 ára
og eldra hjá Gasfélaginu ehf. í Straumsvík.
Séð er um ferðir til og frá vinnu.
Nánari upplýsingar
eru veittar hjá framkvæmda-
stjóra í síma 555 4290
á milli kl. 15 og 16.30.
Góðir lesendur við sem erum
komin á hinn virðulega aldur er
telst vera eldri borgarar (heldri
borgarar) 67 ára og
eldri, skulum ávallt
minna okkar stjórn-
málaflokka á hversu
stór hluti við erum af
k o s n i n g a b æ r u m
mönnum. Miðað við
að Íslendingar verði
um 300 þúsund árið
2005 þá eru um 46
þúsund 60 ára og eldri
eða 15% af þjóðinni og
67 ára og eldri 31 þúsund atkvæði.
Við skulum nýta okkur þetta afl
sem í þessu atkvæðamagni er. Við
skulum stefna að því að skila
okkur sem best, já allrabest á
kjörstað er kosið verður næst, í
sveitarstjórnarkosningum 2006.
Sumir hafa talað um að eldri
borgarar ættu að bjóða fram sér-
staka lista, ég er því algjörlega
mótfallinn. Við eigum að láta þá er
á miðjum aldri eru skilja það, að
við erum lifandi fólk, með okkar
sérþarfir á vissum sviðum, vissu-
lega. En við eigum einnig að láta
landsfeður skilja það að við erum
afl sem verður að taka tillit til.
Við eigum einnig rétt á því að
stjórnmálamenn skilji að við
erum með mikla reynslu í gegn-
um það líf, er við höfum gengið í
gegnum. Flest okkar eiga börn og
barnabörn og skynja því hvar
skórinn kreppir hjá öllum aldurs-
flokkum, ekki einungis okkar ald-
urshóp.
Við eigum að vera ófeimin að
halda kröfum okkar á lofti fyrir
bættum hag okkur til handa, já
um leið vissulega fyrir bættum
hag þeirra er á eftir koma.
Stjórnmálamenn verða að skynja
að við teljum okkur eiga inni hjá
þessari þjóð ýmislegt. Við erum
ekki nein olnbogabörn
á þessu þjóðfélagi, við
erum sá aldurshópur er
hefur skilað því nútíma
þjóðfélagi er við sjáum
hér í dag.
Því ber sveitarstjórn-
armönnum og ríkis-
valdi að taka tillit til
réttlátra krafna okkar
og þarfa. Við viljum
lægri fasteignagjöld á
húsnæði er við búum í, við viljum
lægri skatta á eftirlaun og ellilíf-
eyri, við viljum getað haldið
heimili sjálf, sem lengst með
reisn. Sem er að mínu mati til
hagsbóta fyrir okkar þjóðfélag.
En það þýðir aftur á móti að því
þyngri verður hjúkrunin er við
þurfum að fara á hjúkrunarheim-
ili. Þar skortir mikið á að þörfum
samfélagsins sé fullnægt.
Það þarf ávallt að vera fyrir
hendi hentugt húsnæði, af stærð
og verði fyrir okkur eldri borgara.
Við skulum stefna að því að
raddir eldri borgara heyrist, svo
eftir verði tekið í næstu sveit-
arstjórnarkosningum. Við eigum
að hafa það markmið, að vera
virkilegt afl á framboðslistum.
Við skulum í næstu kosningum
setja krossinn á þann flokk er við
treystum best til að framfylgja
okkar hugmyndum og óskum. Að
sjálfsögðu er Samfylkingin á
Íslandi, hinn eini sanni flokkur
jafnaðarmanna á Íslandi, sem er
treystandi fyrir atkvæði okkar.
Höfundur er formaður
60+ Hafnarfirði.
Pólitísk hagsmunamál
eldri borgara
Jón Kr. Óskarsson
varaþingmaður
Hann Erling á Lækjargötu 9
hefur ásamt nágranna sínum
marg oft veitt heilleg hjól upp úr
læknum á móts við Dverg. Svo
virðist sem óprúttnir náungar
steli hjólum og hendi þeim svo í
lækinn. Sagði Erling sum hjól-
anna vera í fínu lagi og önnur ver
farin. Geta þeir sem saknað hjól-
anna sinna kíkt við hjá Erlingi.
Hjól úr læknum
Veiddu 4 hjól úr læknum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Þrátt fyrir fjölmargar ábend-
ingar hefur bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar aldrei sýnt áhuga á að
setja bundið slitlag á útivistar-
vegi Hafnfirðinga. Ekki fyrr en
nú þegar þeir gera kröfur til
Vegagerðarinnar í ályktun. Hins
vegar eru fjölmargir aðrir vegir
sem hlýtur að vera bæjarfélags-
ins að setja bundið slitlag á til að
losna við gríðarlegt ryk sem
leggst yfir allt á þurrum góð-
viðrisdögum og hamlar útivist.
Er ekki verið að gera kröfur til
breiðari eða beinni vega, aðeins
ryklausra vega.
Rykugir útivistarvegir
Loksins vilji hjá bæjaryfirvöldum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Kaldárselsvegur sl. sunnudagsmorgunn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n