Fjarðarpósturinn - 12.05.2005, Blaðsíða 6
6 Fjarðarpósturinn Fimmtudagur 12. maí 2005
Sögubrot
1993
Í janúar 1993 var gerð
tæknilýsing fyrir dælu- og
hreinsistöðvar í Hafnar-
firði sem var forsenda til-
boðs Hagvirkis/Kletts í
gerð þessara mannvirkja.
Lýsing þessi byggðist í
grundvallaratriðum á til-
lögu frá 1992 um tvær
hreinsistöðvar og tvær út-
rásir við Malir og Óseyrar-
braut. Var unnið að þess-
um tillögum á árunum
1993-94 en lítið varð úr
framkvæmdum.
Ekki var í þessum tillög-
um horft til byggðar fyrir
sunnan Hvaleyrarholtið og
nýju byggðarinnar fyrir
sunnan Reykjanesbraut.
1995
Snemma árs 1995 voru
útreikningar á dreifingu
kólígerla í sjónum við út-
rásarop endurskoðaðir.
Breyttar forsendur og
reikniaðferðir höfðu mikil
áhrif á útreikninga og
varð niðurstaðan sú að út-
rásir þurftu að fara út á
um 20 m dýpi og vera um
2.000 m langar í stað 6-700
m áður.
Þessi breytta niðurstaða
hafði þau áhrif að nú þótti
orka tvímælis að hafa tvær
hreinsistöðvar og tvær
langar útrásir sitt hvoru
megin fjarðarins.
Í júní 1995 var lögð fram
skýrsla um samanburð val-
kosta.
Tillaga A gerði ráð fyrir
hreinsistöð og útrás við
Malir fyrir alla eldri byggð
í bænum og aðra hreinsi-
stöð og útrás við Hrauns-
vík fyrir sunnan Hval-
eyrarholtið fyrir iðnar-
svæðin í Helluhrauni og
framtíðar byggingarsvæði
bæjarins fyrir sunnan Ás-
tjörn.
Tillaga B gerði ráð fyrir
einni hreinsistöð og einni
útrás við Hraunsvík og að
öllu skolpi frá gamla bæn-
um yrði dælt suður fyrir
Hvaleyrarholtið. Bæjarráð
samþykkti 14. júní 1995 að
vinna eftir tillögu B.
1996
Framkvæmdir við gerð
dælu- og hreinsistöðvar
við Óseyrarbraut hófust
síðla árs 1996.
Dælustöð
Dælustöð verður bygg
kverkinni vestan við Norð
Þaðan er skolpi dælt um
lögð er undir Vesturgötu
sjónum að núverandi dæ
eyrarbraut.
Með dælu og þrýstilög
dæla skolpinu óháð land
Dælustöð
Núverandi hreinsi- og dælustöð
verður síðar nýtt sem dælustöð því
ný hreinsistöð verður byggð suður
undir lóð Alcan.
Lögn endurnýjuð
Lögn í Óseyrarbraut er lek
og streymir mikill sjór í hana.
Hún verður öll endurnýjuð og
verða einhverjar truflanir á
umferð þess vegna.
Lágmarksröskun
Við framkvæmdirnar
verður mikil áhersla
lögð á að valda sem
minnstum umferðar-
töfum og röskun.
Við Drafnarslipp
Eini staðurinn þar sem lögnin
verður lögð undir götu er við
spilhús Drafnarslipps. Þar er
Strandgatan nokkuð breið og
verður reynt að trufla umferð
sem minnst en ljóst er að þar
verða þó einhverjar tafir á
umferð.
Hreinsistöð og
Suður undir lóðarm
reist ný hreinsistöð þa
verður hreinsað úr sk
verður skolpinu dælt
20 m dýpi. Þynning ve
sólarljósið brjóta gerl
Haustið 2006 verða
skolp frá Hafnarfjarða
Hafnfirðingar geta þv
fjöruborðinu.
Dælubrunnur
Lítil niðurgrafin dælu-
stöð. Ný lögn í Herjólfs-
götu að dælustöð við
Norðurgarð.
Fráveita Hafnarfjarðar stendur fyrir
framkvæmdunum. Framkvæmdastjóri
hennar er Kristinn Ó. Magnússon.
Verkfræðihönnun er í höndum VST
hf., Strendings ehf. og VSB ehf.
Umhverfis- og mannvirkjahönnun
sér Landslag ehf., Batteríið ehf og Alark
efh. um auk þess sem Siglingastofnun sá
um hönnun á ölduvörnum.
Verkefnisstjórnun er í höndum
Verkþjónustu Kristjáns ehf.
Verktakar eru Keflavíkurverktakar
sem byggja dælustöð við Norðurgarð,
Magni ehf. með framkvæmdir í Vestur-
götu og að Óseyrarstöð, Ístak með
framkvæmdir í Suðurhöfninni og
Borgarvirki ehf. annast grjótvinnslu.
Ráðgjafar og
verktakar
Fráveitulagnir
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n