Fjarðarpósturinn - 01.02.2007, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. febrúar 2007
Björt og falleg 3ja herbergja íbúð í
Setbergshverfi til leigu, stutt í
skóla, almenningssamgöngur og
verslun. Uppl. í síma 898 2691.
Þrítugur karlmaður, reyklaus,
stundvís óskar eftir vinnu í
Hafnarfirði, helst við útkeyrslu.
Er með meirapróf.
Uppl. í s. 896 4434, Magnús.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Húsnæði til leigu
Atvinna óskast
Eldsneytisverð
31. janúar 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 109,4 110,9
Atlantsolía, Suðurhö. 109,4 110,9
Esso, Rvk.vegi. 111,0 112,5
Esso, Lækjargötu 111,0 112,5
Orkan, Óseyrarbraut 109,3 110,8
ÓB, Fjarðarkaup 109,4 110,9
ÓB, Melabraut 109,4 110,9
Skeljungur, Rvk.vegi 111,0 112,5
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Heilsunudd
Heilsunudd og verkjameðferð
Upplýsingar og pantanir í síma 699 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Bæjarhrauni 2, 2.h
HEILSA
Fjárfestu í líkamanum og komdu
þér í gott form með Herbalife.
Heilsuráðgjöf, eftirfylgni.
Ingibjörg, hjúkrunarfr. 691 0938
Starfsmaður
óskast á skurðdeild St. Jósefsspítala við
ræstingu og fleiri störf.
Um er að ræða áhugavert starf sem væri um það
bil 60% af fullu starfi. Laun greiðast samkvæmt
kjarasamningi BSRB og ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Jóhannsdóttir,
deildarstjóri í síma 5550000 eða um netfang
ragnhildur@stjo.is
Eitt af því sem okkur þykir
sjálfsagt er að velja þann stað
sem við viljum búa á - bæinn,
götuna og húsið. Við
veljum búsetuna út frá
þeim gæðum sem við
teljum mikilvægust
hverju sinni á okkar
lífs braut. Þannig var
það þegar við hjónin
keyptum okkur íbúð í
Áslandinu árið 2001.
Útsýnið, nálægðin við
náttúruna og kyrrðin
voru meðal þeirra þátta
sem við lögðum til grundvallar
við val okkar. Á þessum tíma
óraði okkur ekki fyrir þeim
mögu leika að álbræðslan í
Straumsvík myndi hugsanlega
nærri því þrefaldast að stærð inn -
an fárra ára.
Harður raunveruleikinn blasir
nú við. Alcan, erlendi auð hring -
urinn sem hefur það eina mark -
mið að hámarka hagnað sinn,
berst nú með oddi og egg fyrir
því að fá heimild til að stækka
verksmiðjuna í 460.000 tonn.
Engu er til sparað í þeirri baráttu
– tónleikar haldnir, gjafir gefnar,
loforð gefin, stöðugur áróður og
síðast en ekki síst er hótað að
loka verksmiðjunni ef fyrirtækið
fær ekki sínu framgengt. Þetta
eru ósmekklegar aðferðir að
mínu mati. Einhver myndi kalla
þetta frekju og yfirgang. Hvers
eigum við Hafn firð ingar að
gjalda? Eng inn, mér
vitanlega, bað um
þessa stækk un. Hver
vill hafa risa álver inni
í miðju þétt býli?
Ágætu Hafn firð ing -
ar! Hvaða rétt hefur
Alcan til að búa til
ólgu og sundurlyndi í
okkar góða samfélgi?
Hvaða rétt hefur
Alcan til að raska og
menga umhverfi okkar? Hvaða
rétt hefur Alcan til að verðfella
eignir okkar? Hvaða rétt hefur
Alcan til að takmarka og rýra
lífsgæði okkar? Þessum spurn -
ingum og öðrum ámóta verður
hver og einn að velta fyrir sér á
næst unni. Í húfi eru hag mun ir
okkar Hafnfirðinga til skemmri
og lengri tíma. Þann 31. mars
n.k. tökum við örlagaríka
ákvörð un um framtíð bæjar -
félags ins okkar. Ákvöðun sem
mun marka þróun bæjarfélagsins
næstu áratugina. Ákvörðun sem
hver og einn þarf að taka út frá
sinni framtíðarsýn fyrir Hafn -
arfjörð.
Höfundur er félagi í Sól í
Straumi
Hvaða rétt hefur ALCAN til
að rýra lífsgæði okkar?
Sigurður P.
Sigmundsson
Gasfélagið ehf Straumsvík óskar eftir að
ráða starfsmann í almenn störf sem fyrst.
Vinnutími er frá kl. 8-16 daglega.
Viðkomandi þarf að vera
samviskusamur og stundvís.
Umsóknir sendast á Gasfélagið, Straumsvík,
230 Hafnarfjörður eða gasfelagid@simnet.is
Starfsmaður óskast
Sundmenn Sundfélags Hafnar -
fjarðar hafa náð góðum árangri á
alþjóðlega mótinu Euro Meet
2007 í Lúxemborg en mótið er
geysi lega sterkt sundmót, kepp -
endur eru um 800, 79 klúbbar frá
23 þjóðum.
Eftir laugardaginn var SH í 24.
sæti klúbba þrátt fyrir að vera
aðeins með 10 sundmenn á mót -
inu.
Einstakir sundmenn hafa verið
að ná frábærum árangri, Hrafn -
hildur Lúthersdóttir fékk gull -
verðlaun í sínum aldurs flokki
fyrir 200 metra bringu sund og
bætti tíma sinn í 50 metra
bringu sundi. Á sunnudeginum
gerði hún enn betur og setti
Íslands met í 100 m bringusundi í
stúlkna flokki og synti á 1,13.04
mín. en eldra metið átti Íris Edda
Heimisdóttir frá 2000. Hrafn -
hildur bætti tíma sinn um 2,2
sekúndur og með árangrinum er
Hrafnhildur búin að ná lámarki í
B-afrekslið SSÍ.
Örn Arnarson, einn fremsti
sundmaður Íslendinga, hefur
einnig verið að ná góðum árangri
en hann er í miðjum undir -
búningi fyrir alþjóðlegt erlent
mót og er því í þyngri kantinum
þessa dagana.
SH-ingar stóðu stig
vel í Lúxemborg
Hrafnhildur Lúthersdóttir setti Íslandsmet
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Ýsa var það heillin
Leiðrétting
Á forsíðu síðasta blaðs mátti
lesa að þynningarsvæðið minnk -
aði um þriðjung. Þarna átti að
sjálfsögðu að standa að svæðið
minnkaði um tvo þriðju eins og
tölur í fréttinni réttilega gáfu til
kynna. Leiðréttist þetta hér með.