Fjarðarpósturinn - 29.03.2007, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. mars 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Er það ráðstjórn að vilja að íbúar fái fyrr að
koma að mótun hugmynda að framtíðarsýn
bæjarins? Ekki er svo ef marka má orð forseta
bæjarstjórnar sem segist fylgja beinu lýðræði!
Er eðlilegt að hafa stjórnmálamenn í vinnu
sem leyna skoðunum sínum á mikilvægum
málefnum bæjarfélags síns? Ég segi nei.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eru haldnir
„ábyrgðarfælni“ og það er mikil óánægja með
þessa ábyrgðarfælni meirihluta bæjarstjórnar. Ég
er hins vegar alveg sammála forseta bæjarstjórnar að bæjarbúar vilji
taka meiri þátt í ákvarðanatöku í bænum. Samfylkingin boðaði
íbúaþing sem m.a væri skref í þá átt. Þetta var kosningaloforð fyrir
5 árum. Aðeins eitt íbúaþing var haldið og fyrir síðustu kosningar
var kosningu um álver lofað. Er þá efndum um aukið íbúalýðræði
lokið? Ekki voru efndirnar miklar á síðasta kjörtímabili.
Ég er ekki andstæðingur meirihluta eða minnihluta bæjarstjórnar,
ég er tilbúinn að styðja alla til góðra verka en það truflar mig að
landsmálaflokkarnir séu að blanda sér í bæjarmálefni Hafnarfjarðar.
Ég hef áður sagt að bæjarfulltrúarnir eru allir jafnaðarmenn í besta
skilningi þessa orðs. Almar vill greiðslur til eldri borgara, Ellý vill
einkaskóla og svona mætti nefna um hvern og einn. Flokkadrættir
eiga því ekki heima í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Hvernig sem kosningin á laugardaginn fer, þá situr eftir að
stjórnkerfi Hafnarfjarðar er orðið óljóst og engin skilgreining til á
stórum og litlum málum. Aldrei hefur t.d. verið kosið um
aðalskipulag sem er grundvöllur að framtíðaruppbyggingu bæjar -
ins. Enn á ný skora ég á bæjarstjórn að samþykkja að taka upp vott -
að gæðakerfi við stjórnun bæjarins og framkvæmdir á hans vegum.
Guðni Gíslason
www.hafnarf jardark i rkja. is
Víðistaðakirkja
Pálmasunnudagur 1. apríl
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00
Skemmtileg og fjölbreytt stund
fyrir alla fjölskylduna.
Að þessu sinni eru gestir sunnudaga skólans
beðnir að ganga inn um hægri hliðardyr og
upp þar sem sunnudaga skólinn fer fram
v/fermingar athafnar í kirkjunni.
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30
Fermingarguðsþjónusta kl. 14.00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð
Trompet: Eiríkur Örn Pálsson
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Pálmasunnudagur 1. apríl
Fermingarmessur kl. 10.30 og 14
Prestar: Sr. Þórhallur Heimisson og
sr. Gunnþór Þ.Ingason.
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
Kór: Kór Hafnarfjarðarkirkju.
Kirkjuþjónar: Jóhanna Björnsdóttir og Einar Örn
Björgvinsson.
Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla kl. 11
Ekið frá kirkjunni kl. 10.55
Æskulýðsstarf - Mánudaga kl. 20
Barnastarf T.T.T. (10-12 ára) - Þriðjudaga kl.17-18.30
Krakkakirkja (7-9 ára) - Fimmtudaga kl.17-18.30
Ungbarnamorgnar - Fimmtudaga kl.10-12
Fullorðinsfræðsla - sjá heimasíðu.
Ræðukeppni ITC
Ræðukeppni verður hjá Tjáningar -
samtökunum ITC þriðjudaginn 3.
apríl n.k. kl. 20.15 í Vonarhöfn sem er
í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
Skemmtileg keppni. Allir velkomnir.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
The man who knew to much (’56),
spennumynd í leikstjórn Alfred Hitch -
cock.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
mynd Roman Polanski; Rosemary’s
Baby frá árinu 1968. Hjónakornin
Rosemary og Guy Woodhouse flytja
inn í íbúð í fremur illa þokkaðri bygg -
ingu í New York. Nágrannarnir eru
grunsamlegir og Rosemary, sem er
ófrísk, fer að heyra dularfull hljóð og fá
martraðir og grunar þá um að hafa illt
í huga gagnvart ófæddu barni henn ar.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í
Bæjarbíói, Strandgötu 6.
Kynningarfundur um álver
Síðasti kynningarfundurinn vegna
fyrirhugaðrar stækkunar álversins í
Straumsvík verður haldinn í Hafnar -
borg í kvöld kl. 19. Á fundinum munu
fulltrúar ólíkra sjónarmiða koma þeim
á framfæri. Fundinum verður sjón -
varpað beint á Stöð 2.
Fundur um turn í miðbænum
Forstigskynning á breyttu deili -
skipulagi á Strandgötu 26-30 verður
haldinn í Hafnarborg mánudaginn 2.
apríl kl. 17. Tillagan felst í að í stað
fjögurra hæða íbúða- og þjón ustuhúss
komi allt að 10 hæða hús.
Vilja gefa
starfsmanna -
húsið í
Krýsuvík
Fjölskylduráð samþykkti að
leggja til við bæjarráð að
svokallað Starfsmannahús í
Krýsuvík verði afhent Krýsu -
víkur sam tökunum til eignar og
umráða.
Actavis kaupir
Lyfjaþróun
Opnar nýjar leiðir í
þróun nefúðalyfja
Actavis hefur keypt íslenska
lyfja þróunarfyrirtækið Lyfja -
þróun hf., sem sérhæfir sig í
þró un nefúðalyfja. Með kaup -
unum öðlast Actavis þekkingu
á þróun á nýjum lyfjaformum
sem félagið býr ekki yfir í dag.
Lyfjaþróun sérhæfir sig í
þróun á nýjum nefúðalyfjum
og hefur fjögur verkefni í
þróun. Félagið var stofnað
1991. Hjá því starfa 13 manns.
Búist er við að fyrstu lyfin
komi á markað á árinu 2010,
en félagið hefur ekki selt lyf á
Íslandi. Þóra Björg Magnús -
dóttir er framkvæmdastjóri
félags ins.
Kaupverð er ekki gefið upp.
Óperukór
Hafnarfjarðar
fær milljón
Bæjarráð varð við styrk -
beiðni Óperukórs Hafnar fjarð -
ar og samþykkti að styrkja
kórinn um eina milljón kr.
vegna uppsetningar á óperunni
Cavalleria Risticana eftir Mas -
cagni. Óperan verður
frumsýnd í Íslensku óperunni
annan í páskum en á sjöunda
tug kórmeðlima úr Óperukór
Hafnarfjarðar taka þátt í sýn -
ing unni ásamt rúmlega fjör tíu
manna hljómsveit Ís lensku
óperunnar.
Elín Ósk Óskarsdóttir,
stjórn andi kórsins, sem fagnar
tutt ugu ára starfsafmæli sínu í
ár, syngur hlutverk Santuzzu.
Aðrir einsöngvarar eru Jóhann
Friðgeir Valdimarsson, Ólafur
Kjartan Sigurðarson, Hörn
Hrafns dóttir og Þórunn Stef -
áns dóttir.
www.hagurhafnarfjardar.is
Ástjarnarsókn
Fermingarguðsþjónusta í Hafnarfjarðarkirkju
kl. 10
Laugardagurinn 31. mars
Foreldramorgnar þriðjudaga kl. 10 - 12
Barnakórsæfi ngar miðvikudaga kl. 16.30 - 18
Safnaðarstarf í samkomusalnum
Messa í samkomusal Hauka að Ásvöllum.
Páskadagur 8. apríl
www.astjarnarkirkja.is