Fjarðarpósturinn - 31.05.2007, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 31. maí 2007
Kl. 8 Fánar dregnir að húni.
Kl. 10 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu.
Kl. 10.45 Blómsveigur lagður að minnisvarða um horfna
sjómenn við Víðistaðakirkju.
Kl. 11 Sjómannamessa í Hafnarfjarðarkirkju. Prestur sr.
Gunnþór Þ. Ingason. Sjómannalög leikin fyrir messu.
kl. 12.45 Skólaskipi Fjölsmiðjunnar gefið nafn
Kl. 13 Skemmtisigling fyrir börn, farið verður frá
Suðurhöfninni.
Kl. 13 Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyti, Strandgötu 88.
Kl. 14 Hátíðardagskrá á svæðinu fyrir framan Fiskmarkaðinn.
Kynnir: Rúnar Matthíasson
• Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
• Ávörp
• Sjómenn heiðraðir
• Atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi
• Furðufiskasýning
• Kappróður
• Koddaslagur
• Kararóður
• Kassaklifur
• Listflug með Birni Thoroddsen
• Björgunarsveit Hafnarfjarðar sviðsetur
björgunaraðgerð og sýnir búnað
• Bátasýning frá Fjölmennt í Hafnarfirði.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar sér um gæslu á svæðinu.
Kaffisala á Hrafnistu, allir velkomnir
Út að borða á Sjómannadaginn!
Sjávarréttatilboð á Fjörukránni, A-Hansen og Tilverunni.
SJÓMANNADAGURINN
HAFNARFIRÐI
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
7
0
5
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.
Gámaþjónustan hf. opnar í dag
nýja aðstöðu við Berghellu þar
sem fyrirtæki og einstaklingar
geta losað sig við úrgang á
einfaldan og umhverfisvænan
hátt. Þetta er fyrsta einkarekna
grenndarstöðin í Hafnarfirði og í
raun fyrsta mótttökustöð sorps
því hingað til hafa Hafnfirðingar
farið með rusl í móttökustöð
Sorpu í Garpabæ.
Endurvinnslutunnan
Gámaþjónustan kynnti á
síðasta ári Endurvinnslutunnuna
en í hana má setja allan pappír
heimilisins, bylgjupappa og
pappa, plast, málma og fernur.
Tunnan er losuð mánaðarlega
fyrir 990 kr. Aðferðin byggir á
því að heimilin og starfsfólk
Gámaþjónustunnar skipta með
sér vinnunni við flokkunina,
heim ilin setja fernurnar, málm -
ana og plastið í plastpoka, binda
fyrir og setja með pappírs -
flokkunum. Þegar söfnunar -
bíllinn er losaður er innihaldið
sett á færiband og flokkað í
sundur. Innihaldið er síðan selt
utan til endurvinnslufyrirtækja.
Gámaþjónustan var stofnuð
árið 1983 og eru starfsmenn nú
um 120 og rekur fyrirtækið al -
menna sorphreinsun og flokk un.
Meginhlutverk Gáma þjónustu -
samstæðunnar er að sjá fyrir -
tækjum, stofnunum, sveitar -
félög um og einstaklingum fyrir
lausnum til að losna við hvers
konar úrgang á hagkvæman og
umhverfisvænan hátt.
Ný sorpmóttökustöð opnuð
Hægt að skila rusli á Gámavelli við Berghellu
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Dagana 14. til 23. maí var
þemavinna í 10. bekk þar sem
fléttað var saman ensku, ís -
lensku, dönsku, náttúrufræði,
sam félagsfræði og stærðfræði.
Nem endur unnu saman í hópum
að ákveðnum verkefnum sem
reyndi á sjálfstæð vinnubrögð,
skipu lagningu og samstarf. Hóp -
arnir völdu eitt af eftirfarandi
verkefnum: skipuleggja brúð -
kaup, stofna menningar- og/eða
afþreying ar stað, stofna fyrirtæki
eða verslun, stofna fjöl miðla -
fyrirtæki, skipuleggja útihátíð
og/eða tónleika, stofna skemmti -
garð og stofna íþróttafélag.
Vinna við verkefnin fór fram í
skól anum og utan hans. og
þurftu nemendur að afla upp lýs -
inga víða. Gerðu þau kostnaðar -
áætlanir, skrifuðu nauðsynlegar
umsóknir og og gerðu grein fyrir
verkefninu á íslensku, ensku og
dönsku auk þess sem þau gerðu
módel.
10. bekkingar stofnuðu fyrirtæki
Þemavinna í Öldutúnsskóla
Sigurður Jón Sveinsson, Sveinn Orri Guðmundsson, Magnús Már
Hauksson og Þorgrímur Guðni Bjarnason skipulögðu tónleika
Coldplay.
Bergdís Rún Jónasdóttir, Astrid Erla Benediktsdóttir, Kristín Björg
Björnsdóttir og Unnur Birna Magnúsdóttir skipulögðu 195 millj. kr.
brúðkaup íslensks auðkýfings og konu hans.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n