Fjarðarpósturinn - 31.05.2007, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 31. maí 2007
Ungt reglusamt reyklaust par
óskar eftir lítilli íbúð á leigu.
Uppl. í s. 662 1120.
26 ára viðskiptafræðingur,
reyklaus og reglusamur, óskar
eftir 1-2ja herbergja íbúð til leigu.
Vinsamlegast sendið upplýsingar og
fyrirspurnir á netfangið
andrimar@andrimar.com eða
hringið í farsíma 858 8009.
Garðvinna- sumarvinna. Mig vantar
einstakling sem getur unnið við að
viðhalda hreinsun á beðum og aðra
létta garðvinnu. Kannski nokkra tíma
á viku. Verður að hafa komið nálægt
garðvinnu. Uppl. í síma 899 4507.
Til sölu á góðu verði! AEG
frystikista 150 l, 80 x 65 x 87 cm.
Fólksbílakerra með loki, lítil en
rúmgóð. Uppl. í síma 897 2747.
Til sölu vel með farið, vínrautt
reiðhjól fyrir ca 6-9 ára.
Upplýsingar í síma 565 4775
eftir kl. 17.
Kisinn minn hann Lubbi er týndur.
Lubbi er grár skógarköttur með
hvítum blettum, loðinn að upplagi
en er nýrakaður fyrir sumarið og
virkar því frekar mjór. Lubbi á heima
við Austurgötu.
Abyssiniu köttur týndist á
kosningadag í Fjóluhvammi,
rauðbrúnn yrjóttur feldur með
svartri rák eftir rófu. Hans er sárt
saknað. Fundarlaun í boði.
Sími 862 9555.
Uppl. hjá Steina í síma 696 4418.
Heimilisþrif óskast einu sinnu í
viku. Uppl. í s. 696 8236.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Til sölu
Þrif
Tapað-fundið
Húsnæði óskast
Atvinna
Eldsneytisverð
30. maí 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 121,1 120,8
Atlantsolía, Suðurhö. 121,1 120,8
Orkan, Óseyrarbraut 121,0 120,7
ÓB, Fjarðarkaup 119,1 118,8
ÓB, Melabraut 121,1 120,8
Skeljungur, Rvk.vegi 122,9 122,6
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Það skal vanda sem
lengi skal standa
Húsaviðgerðir,
múrvið gerðir og málun
Múrarameistari
Málarameistari
sími 896 4900
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
TIL LEIGU
3ja herbergja íbúð
Glæsilega 3ja herbergja íbúð til leigu á besta
stað í Hafnarfirði í nýlegu lyftuhúsi.
Verð 126.000 á mánuði. Laus fljótlega.
Upplýsingar á tölvupósti soffia@femin.is
Vantar
þjóna í sal og dyraverði á
veitingahúsinu A.Hansen
Upplýsingar gefur Unnur í síma 6911422.
Fyrsti dagur skólagarðanna er
á morgun föstudag. Opið verður
milli kl. 13 og 18 og eru allir sem
vilja vera með beðnir um að skrá
sig þennan dag. Því fyrr sem
grænmetið kemst niður í garðana
þeim mun betri verður
uppskeran segir starfsfólkið hjá
skólagörðum Hafnarfjarða r -
bæjar. Þátttökugjald kr. 3.000
greiðist við innritun. Garðarnir
eru á Víði stöðum, efst á Öldu -
götu, neð an við Lyngbarð og í
Mosa hlíð.
Í sumar eiga börn á aldrinum
8-12 ára, fædd 1995-1999, kost á
að starfa í skólagörðunum.
Hvert barn fær úthlutað tveimur
reitum, einn fyrir grænmeti og
einn fyrir kartöflur. Samhliða
starfinu er stefnt að því að efla
umhverfisvitund barnanna með
fræðslu sem og skoðunarferðum.
Þá verður staðið fyrir ýmsum
uppákomum.
Eldri borgarar geta líka fengið
garða
Vert er að benda eldri borg -
urum bæjarins á að þeim stendur
til boða afnot af ræktunarreitum í
görðunum eftir því sem aðstæður
leyfa.
Skólagarðarnir
opnaðir á morgun
Í öllum hasarnum í kringum
álkosninguna gat oft að líta orðið
sjónmengun sem á að lýsa því
sem hrellir mannsaugað. Arki -
tektúr og skipulag bæja er eitt -
hvað sem virðist ekki
liggja vel við Íslend -
ingum. Sárafáir landar
hafa náð að hasla sér
völl á því sviði sem
einhverju nemur.
Fæstir þeirra reyna að
nýta okkar þjóðlegu
einkenni, burstabæinn,
í sinni hönnun, en
nokkrir virðast hafa
hrifist af hermanna -
braggastílnum og má m.a. sjá
honum bregða fyrir í ráðhúsi
Reykja víkur. Mikið er um
„blokkir“, stór sambýlishús, í
Valla hverfinu og geta flest þeirra
flokkast undir sjónmengun. Svo
mikið er víst að ekki gleður útlit
þeirra augað. Þau eru flest byggð
í hinum sovéska skókassastíl, en
það hentar víst best fyrir fjár -
magnseigendur í þessum
„bransa“ sem ekki eru mikið að
hugsa um fagurfræðileg sjónar -
mið en því meira um að hámarka
ágóðann af sínum fjárfestingum
á sem hagkvæmastan og ódýr -
astan máta. Það sama gildir um
hönnun gatna og vega á okkar
heimasvæði. Við höfum fengið
miklar háðsglósur fyrir hring -
torgin enda auðvelt að gagnrýna
þau. Í fyrsta lagi eru þau allt of
mörg og flest svo þröng að stórir
bílar eiga í erfiðleikum með að
komast um þau. Það er því
algeng sjón við þessi hringtorg,
brotnir kantar og steinar og
hellur út á akbrautum sem er
auðvitað stór hættulegt og getur
vald ið skemmdum á farar tækjum
og slys um á fólki. Mér finnst
einnig undarleg sú ráðstöfun að
setja trjágróður í hring torg in.
Trén byrgja útsýni, safna að sér
rusli og ef hér kemur ein hvern -
tíma alvöru vetur aftur þá safnast
í þau snjór sem getur lokað ak -
brautum. Gangstéttir eru sjald -
séðar á Völlum því gang andi
fólki er ætlað að fara um mal -
bikaða gangstíga sem ekki eru
alltaf í tengslum við ak brautirnar.
Gott fyrir fölk sem er úti að
ganga sér til heilsu -
bótar, en vond sam -
g ö n g u m a n n v i r k i .
Þetta er einna verst á
a ð a l s a m g ö n g u æ ð
hverfissins Ás braut -
inni, einkum á svæð -
inu milli Kirkju torgs á
móts við Bónus, að
Fléttutorgi síðasta
hring torgi fyrir Krýsu -
vík, enn sem komið er.
Eng in öryggissvæði eru við
Ás brautina (slétt svæði utan við
braut ina báðum megin þar sem
hægt er að leggja bílum sem
bila), aðeins grjóthrúgur sem
venjulegir bílar komast ekki upp
á og sumsstaðar eru gjótur utan
brautarinnar allt að tveggja metra
djúpar, sem eru auðvitað stór -
hættulegar ef bílar aka út af. Auk
þess eru akbrautirnar svo mjóar
að ef stór bíll bilar á þessari
braut, þá lokast brautin, því aðrir
bílar komast ekki framhjá.
Þessar grjóthrúgar beggja vegna
brautarinnar eru forljótar auk
þess sem þær munu safna í sig
alls konar rusli og illgresi er fram
líða stundir. Í þessu grjót -
hrúgusafni er því enginn sparn -
aður, ef það var ætlunin, því það
mun kosta sitt að hreinsa þetta
drasl upp í framtíðinni. Væri
ekki betra að nota grjótið í
landfyllingar sem nú eru svo vin -
sælar hjá skipulagsyfir völd um,
eða þó miklu frekar í varnar -
garða, t.d. á Hvaleyrinni, til þess
að verjast ágangi sjávar? Ég held
að það sé nauðsynlegt að moka
þessum grjóthrúgum í burt sem
fyrst og útbúa malbikuð öryggis -
svæði beggja vegna brautarinnar
ef tryggja á öruggar samgöngur í
Vallahverfinu til frambúðar. En
hver á að gera það? Hver ber
ábyrgðina?
Höfundur er íbúi á Völlum.
Vond hönnun á Völlum
Hermann
Þórðarson
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Ragnar Ingi Sigurðsson
skylm ingamaður úr FH sigraði
um helg ina á World Cup satel -
litemót í Helsinki. keppendur
voru frá sex þjóðum. Eftir tvær
umferðir af riðlakeppni var
Ragnar í öðru sæti. Ragnar Ingi
keppti á móti Svíanum Johan
Classon í áttamanna úrslitum og
endaði leikurinn 15-3. Í undan -
úrslitum keppti Ragnar Ingi við
Norðurlandameistarann frá 2006
Mika Roman frá Finnlandi og
sigraði 15-4. Í úrslitum áttust svo
við Ragnar og Finninn Olli
Mahlamaki og vann Ragnar
nokkuð sannfærandi 15-7.
Eftir sex mót í World Cup
satellitemótaröðinni er Ragnar
enn með forystu og aðeins tvö
mót eru eftir. Næsta mót fer fram
á Íslandi 9. júní nk.
Ragnar Ingi fékk gull í Helsinki
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Verslum í Hafnarfirði!
.. . færðu ekk i bes tu þ jónus tuna þar?