Fjarðarpósturinn - 05.07.2007, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. júlí 2007
Tek að mér þrif í heimahúsum. Er
vön og vandvirk. Uppl. í s. 866
2748 eða 551 1240.
Handboltamaður í FH óskar eftir
herbergi til leigu frá 1. september
til 1. maí. Reykir ekki og er
reglusamur og vandræðalaus,
trygging og fyrirframgreiðsla í boði.
Upplýsingar í síma 4643521 og
8213421 (Kristín Linda) netfang:
midhvammur@emax.is
Hjólinu hennar dóttur minnar var
stolið fyrir utan Eskivelli 23.-24.
júlí sl. Þetta er 24" Trek hjól
ljósfjólublátt og svart. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hjólið eru
vinsamlegast beðnir um að hafa
samband í s. 691 1102.
Hálsmen tapaðist
Mikill sorg er hjá ungum peyja.
Hálsmen með Sjóferðarbæninni á
og nafninu Daniel Ingi gröfnu í
tapaðist. Ef einhver hefur fundið
það er sá sami beðinn um að
hringja i 698 2462.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað-fundið
Húsnæði óskast
Þrif
Eldsneytisverð
4. júlí 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 122,8 122,3
Atlantsolía, Suðurhö. 122,8 122,3
Orkan, Óseyrarbraut 122,7 122,2
ÓB, Fjarðarkaup 120,8 120,3
ÓB, Melabraut 122,8 122,3
Skeljungur, Rvk.vegi 122,8 122,3
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilar
Kvótakerfið hefur verið talsvert
í umræðunni að undanförnu eins
og oft áður. Ráðamenn þjóð ar inn -
ar reyna með ýmsu móti að fegra
þetta kerfi og ráða bót á því með
ýmsum hliðarráðstöfunum, sjálf -
um sér til afsökunar, sem skipta
þó engu máli þegar á
hólminn er komið. All -
ar tilraunir til að mýkja
afleiðingar þessa kerfis
á þær þjóðfélagsstéttir
og byggðarlög sem
mál ið varðar helst, fyrir
utan sægreifana, eru
einsk is verðar. Ég hef
áð ur bent á það að þetta
kerfi er óásættanlegt í
lýðræðislegu þjóð -
félagi. Ég hef bent á að því verður
ekki líkt við neitt annað en fjúda -
lisma miðaldanna þar sem kon -
ungar leigðu út héruð og atvinnu -
greinar til sérvalinna einstaklinga
af aðalsættum til þess að nýta sér
í eigin þágu gegn vægu gjaldi.
Einnig hef ég sem Sjálfstæðis -
mað ur bent á að kerfið er í and -
stöðu við yfirlýsta stefnu Sjálf -
stæðisflokksins. Það skipti þó
sköpum fyrir þjóðina þegar leyft
var frjálst framsal, sala og leiga á
kvótanum. Bankarnir komu því
síðan þannig fyrir að hægt var að
veðsetja kvótann eins og hann
væri eign kvótahafanna. Það var í
upphafi yfirlýst stefna með kvóta -
kerfinu að styrkja sjávarútveginn
sem þýðingarmestu atvinnugrein
þjóðarinnar (þá fyrir tuttugu árum
síðan), og vernda fiskistofnanna. Í
reynd hefur hvorugt gerst. Hlut -
fall sjávarútvegar í þjóðar fram -
leiðslunni hefur lækkað úr 80% í
rúm lega 30%. Það sem gerst hef -
ur er að þeir sem áttu fiskibáta
þegar kerfinu var komið á og
fengu kvóta úthlutuðum hafa
auðgast óheyrilega á kostnað
þeirra sem stóðu undir atvinnu -
grein inni, þ.e.a.s. sjómanna og
fisk verkunnarfólks. Hvers vegna
áttu eingöngu útgerðarmenn (eig -
endur fiskibáta) að njóta kosta
kvóta kerfisins, en ekki það fólk
sem framleiddi verðmætin, sjó -
menn og fiskverkunarfólk? Hefðu
„útgerðarmennirnir“ skapað
þessa atvinnugrein án
sjó manna og fisk verk -
unarfólks? Gerðu
stjórn málamennirnir
sem komu þessu kerfi
á sér grein fyrir þessu
eða ekki? Margir þeirra
sem fengu upphaflega
úthlutað kvóta hafa selt
hann og notað fjár -
mun ina til þess að
hasla sér völl á öðrum
sviðum. Greinin hefur sem slík
ekki notið ávaxtanna. Hvað hefði
fólk sagt ef þeir sem höfðu
verslunarleyfi og áttu verslanir
fyrir tuttugu árum síðan, hefðu
feng ið einkaleyfi á verslun í land -
inu? Það fólk hefði síðan getað
verslað með leyfin, leigt þau og
selt, og auðgast af því ? Þá væri
ég óverðskuldað ríkur í dag.
Kvótakerfið er í reynd kaun á
þjóð ar líkamanum og það ber að
af nema það sem fyrst. Ég útiloka
ekki einhvern aðlögunartíma, en
eingöngu vegna þeirra útgerða
sem fengu ekki úthlutað kvóta
upphaflega en hafa þurft að kaupa
hann eða leigja af miðaldakerfinu.
Við þau stjórnvöld sem upp -
haflega komu þessu kerfi á vil ég
segja á götumáli „sjeim on jú“
(þið eigið skammast ykkar). Nú
liggur í loftinu að vilji sé til þess í
röðum atvinnustjórnmálamanna
að einkavæða orkubúskapinn og
búa þar með til nýtt kvótakerfi. Er
það fólk sem situr á alþingi með
öllum mjalla eða er það bara á
mála hjá „auðvaldinu“? Spyr sá
sem ekki veit.
Höfundur er fv.
ríkisstarfsmaður.
Kvótakerfið kaun á þjóðarlíkamanum
Hermann
Þórðarson
Þú brennir 157% meiru með því að drekka Oolong te
en grænt te. Þetta er vísindalega sannað.
Oprah kynnti teið í þætti sínum í vetur og hrósaði því
mikið. Sendi ýtarlegar upplýsingar í tölvupósti.
50 daga skammtur kostar 3.900 kr.
siljao@internet.is • 557 6120 / 845 5715
Megrunarteið sem virkar
Oolong (Wu-Long) fæst nú á Íslandi
Á síðast bæjarstjórnarfundi
lagði Guðrún Ágústa Guð -
mundsdóttir, fulltrúi VG eftir -
farandi tillögu fyrir bæjarstjórn:
„Í kjölfar niðurstöðu íbúa kosn -
ingar 31. mars síðastliðins
samþykkir Bæjarstjórn Hafnar -
fjarðar eftirfarandi:
1. Gengið verði til samninga
við Landsnet um færslu á raf -
línum í jörð frá Alcan í Straums -
vík og út fyrir byggða mörk
Hafnarfjarðarbæjar.
2. Hafist verði strax handa við
að ganga þannig frá Hamranesi
að ásættanlegt sé fyrir íbúa og
byggð í nágrenninu.
3. Gengið verði til samninga
við Alcan vegna lóðarinnar, sem
ætluð var undir stækkun fyrir -
tæksins, þannig að Hafnarfjörður
verði að nýju eigandi hennar.
4. Gengið verði frá þynn -
ingarsvæðinu í kring um Alcan
með þeim hætti að heilsufars- og
gróðurverndarmörk verði upp -
fyllt við lóðarmörk.
5. Metið verði hvort endu -
skoða eigi aðalskipulag Hafnar -
fjarðar með tilliti til höfnunar á
stækk un Alcan, brottfalls þynn -
ingarsvæða og uppbygg ingar
iðnaðarsvæða.“
Lúðvík Geirsson lagði fram þá
fram svohljóðandi bókun:
„Lagt er til að framkominni
tillögu verði vísað til bæjarráðs
enda liggur fyrir að þessi atriði
og ýmis önnur sem málið snerta
eru þegar til úrvinnslu og sumum
þegar lokið sbr. skipulag Reykja -
nesbrautar og skattamál Alcan
sem skipta miklu fyrir bæjar -
félagið.“
Bæjarfulltrúar D-lista lögðu þá
fram þessa bókun: „Bæjar full -
trúar Sjálfstæðisflokksins styðja
að kannaðar séu nýjar leiðir til
stækkunar álvers Alcan í
Straums vík, sem trygggi hags -
muni Hafnarfjarðarbæjar. Jafn f -
amt er fagnað jákværi afstöðu
bæjarstjóra til lausnar á málinu.“
Málinu var vísað til bæjarráðs.
Kornið Bakarí
óskar eftir starfsfólki
í vaktavinnu
Vinnutími kl. 7-13 og kl. 13-18
Upplýsingar gefur Rut í síma 864 1543
Bakaríið Kornið,
Tjarnarvöllum 15 (við hliðina á Bónus)
Hvað fær fólk til
að gera svona?
Rusli hent á víðavangi
Blaðamaður Fjarðarpóstsins
rakst á þetta drasl sem hafði
verið hent við afleggjara frá
Krýsuvíkurvegi að skógræktar -
svæði. Klippt kreditkort fannst á
öðrum staðnum og var haft
samband við eigandann. Á
hinum staðnum hafði verið hent
hvítum skápum.
Tillögum VG vísað
til bæjarráðs
Bæjarstjóri segir málin þegar í vinnslu
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n