Fjarðarpósturinn - 16.08.2007, Blaðsíða 1
FHingar sýndu það að liðið
hefur á að skipa bestu liðsheild
frjálsíþróttafélaga landsins er
þeir sigruðu Bikarkeppni FRÍ á
60 ára afmælisári Frjáls íþrótta -
sambands Íslands en sambandið
fagnar afmælinu í dag en sam -
band ið var stofnað 16. ágúst 1947.
Keppt var á föstudag og
laugardag og eftir báða dagana
var FH með 35 stigum meira en
Breiðablik sem lenti í öðru sæti
með 150 stig. Lið Ár manns/ -
Fjölnis hafnaði í þriðja sæti.
Sigraði lið FH bæði í karla og
kvennaflokki og vann því þre -
falt.
Bergur Ingi Pétursson FH
byrjaði síðari daginn á að bæta
eigið Íslandsmet í sleggju kasti
um 2 sm, en hann sigraði með
66,96 metra kasti. Gamla metið
setti hann á móti í Banda -
ríkjunum í byrjun aprí. Bergur
Ingi bætti í leiðinni Bikarmet
Jóns Auðuns Sigurjónssonar FH,
en það var 64,30 m frá árinu
1991. Þetta er þriðja metið sem
Bergur Ingi setur í sleggjukasti á
árinu.
Silja Úlfarsdóttir fyrirliði
kvennaliðs FH sigraði í öllum 5
greinunum sem hún tók þátt í,
100, 200 og 400 m hlaupi, 100
og 400 m grindahlaupi, auk þess
sem hún tryggði sveit FH sigur í
1000 m og 4x100 m boðhlaupi.
Silja var sigursælasti keppandi
mótins en alls sendi FH 36
keppendur á mótið.
Á bikarmóti er ekki árangur í
sekúndum og metrum sem telur
heldur röð efstu manna en þrátt
fyrir það voru margir FH-ingar
að gera sitt besta að sögn Eggerts
Bogasonar hjá FH sem segir
þetta hafa verið skemmtilegasta
keppni sem hann hafi verið með
í. Hann gat líka verið stoltur af
15 ára dóttur sinni Heiði Ósk
sem stökk 5,7 m í langstökki,
jafnlangt og sigurvegari mótsins
en þetta mun vera lengsta stökk
svona ungs Íslendings og ljóst að
hún á framtíðina fyrir sér.
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
30. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 16. ágúst
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
FH bikarmeistari í 17. sinn
Frjálsíþróttaliðið bikarmeistari fjórtánda árið í röð!
Í dag kl. 17
Kynningar -
fundur um
níu hæða hús í
miðbænum
Í dag kl. 17 verður kynn ing -
arfundur í Hafnarborg um
breyt ingar á deiliskipulagi fyrir
miðbæinn vegna byggingar níu
hæða húsa á lóðunum Strand -
gata 26-30.
Fjörugar umræður hafa verið
í bænum um þessar breytingar
og sýnist sitt hverjum. Deilt er
um hæð húsanna, bíla stæða -
mál, skuggavarp, vindáhrif og
gefst fólki kostur á að leggja
fram fyrirspurnir og koma með
ábendingar á fundinum. Frest -
ur til að koma með skriflegar
athugasemdir vegna breytinga
á deiliskipulaginu er til 22.
ágúst. Þeir sem ekki gera
athugasemd við breytinguna
teljast samþykkir henni.
565 2525
Hjallahrauni 13
30%
afsláttur
af sóttum pizzum
Gildir ekki með öðrum tilboðum
Sigurlið FH á Laugardalsvelli á laugardaginn. Sigurður Haraldsson, formaður deildarinnar l.t.v.
L
j
ó
s
m
.
:
M
a
g
n
ú
s
H
a
r
a
l
d
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
M
a
g
n
ú
s
H
a
r
a
l
d
s
s
o
n
Silja Úlfarsdóttir sigrar í 400 m
grindahlaupi.
Þær hlupu 1000 m boðhlaup.
Fleiri myndir á bls. 4