Fjarðarpósturinn - 14.02.2008, Qupperneq 2
„Keltar“ á dansleik
á Fjörukránni
Á föstudagskvöldið kemur í fyrsta
sinn fram nýstofnaða hljómsveitin
Keltar en uppistaðan í henni eru
félagar úr Pöp um. Í hljómsveitinni eru
Hilmar Sverr is son, Vignir Ólafsson,
Hlöðver Guðna son, Georg Ólafsson
og Her mann Ingi Hermannsson.
Hljómsveitin leikur í Fjörukránni á
föstudagskvöld en Rúnar Þór og
hljómsveit leikur fyrir dansi á
laugardagskvöldið.
Fróðleiksmolar á
Byggðasafninu
Á morgun, föstudag kl. 20 flytur
Sverri Þór Sævarsson, sagnfræðingur
fyrirlestur sem hann nefnir, Sjónarhóll -
saga kvikmyndasýninga í Hafnarfirði.
Fjallað verður um kvikmyndasýningar
á sjötta og sjöunda áratug tuttugustu
ald ar þegar Reykvíkingar og aðrir
lands menn flykktust til Hafnarfjarðar til
að fara í bíó. Fór það orð af kvik -
myndahúsum Hafnarfjarðar að þar
mætti nálgast fjölbreytt úrval af góð -
um kvikmyndum, oft af listrænum
toga.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands Fávitann eftir
samnefndri skáldsögu Fyodor Dosto -
evskys.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
mynda safn Íslands tékkneska kvik -
myndina Ástir ljóshærðrar stúlku
(Lásky jedné plavovlásky) frá árinu
1965 í leikstjórn Milos Forman.
Táningsstúlkan Andula vinnur í skó -
verk smiðju í tékkneskum smábæ,
Zurc, þar sem meirihluti íbúanna eru
konur. Í landi þar sem framleiðsla í
þágu ríkisins skiptir meira máli en
velfarnaður manneskjunnar, hyggjast
stjórnvöldin bæta kynjahlutfallið með
því að koma fyrir flokki hermanna í
bænum. Stúlkunum bregður í brún
þegar hermennirnir reynast vera
miðaldra karlmenn, sem stefnt er til
móts við þær á grátbroslegum dans -
leik í bænum.
Sagnakvöld í Straumi
Í kvöld, fimmtudag kl. 20-22 verður
sagnakvöld í Straumi við Straumsvík.
Lovísa Ásbjörnsdóttir, jarðfræðingur
segir frá Hrauninu og Hraunafólkinu,
Aðalheiður Guðmundsdóttir, íslensku -
fræð ingur segir frá æsku sinni í
Straumi og Haukur Halldórsson,
Reykja nesgoði fjallar um dísir, álfa,
rost unga og jólasveina á Reykjanesi
og verður sýning á Edduheimum opin.
9. Þytur flugmódelfélag,
flugvallarsvæði
Tekið fyrir að nýju. Lögð fram
umsögn skipulags- og byggingar -
sviðs frá 30.janúar sl.
Bæjarráð felur skipulags- og
byggingarsviði að leggja fram
tillögu að hentugtu svæði í
samráði við félagið hið fyrsta.
12. Samtök aldraðra bsf.,
lóðaumsókn fyrir fjölbýlishús
Lagt fram erindi Samtaka
aldraðra bsf. dags. 24.janúar 2008
þar sem óskað er eftir lóð fyrir
fjölbýlishús, 40-60 íbúðir.
Bæjarráð vekur athygli á að
þegar hefur verið samþykkt að
auglýsa lóð sem hentar íbúðum af
þessari tegund.
13. Flatahraun 13, lóðar stækk -
un
Tekið fyrir að nýju. Lögð fram
umsögn skipulags- og byggingar -
sviðs.
Bæjarráð samþykkir erindið en
tekur jafnframt undir umsögn
skipulags- og byggingarsviðs og
leggur til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam -
þykkir að úthluta Grjóthálsi ehf lóð
í samræmi við fyrirliggjandi gögn
og nánari skilmála sem skipulags-
og byggingarsvið setur.
14. Atlantsolía, lóðaumsókn
Völlum 7
Tekið fyrir að nýju. Lögð fram
umsögn skipulags- og bygg -
ingarsviðs.
Bæjarráð synjar erindinu eins
og það liggur fyrir enda ekki gert
ráð fyrir bensínstöð á deili skipu -
lagi svæðisins.
15. Manning ehf, umsókn um
lóð á Völlum fyrir Pylsubarinn
Tekið fyrir að nýju. Lögð fram
umsögn skipulags- og bygg -
ingarsviðs.
Bæjarráð vísar því fram -
kvæmda ráðs að skoða möguleika
á stæði fyrir pylusölu á lóð við
sundmiðstöðina á Völlum.
22. Saga FEBH í 40 ár,
útgáfustyrkur
Lagt fram erindi Félags eldri
borgara í Hafnarfirði dags. 28.
janúar 2008 þar sem óskað er eftir
styrk vegna útgáfu bókar um 40
ára sögu félagsins.
Bæjarráð samþykkir að veita
styrk að upphæð kr. 750.000 sem
takist af fjárveitingu bæjarráðs til
styrkveitinga.
2. Framtíðarhafnarsvæði.
Tekin til umræðu framhald þró -
unar framtíðar hafnarsvæðis
Hafn arfjarðar.
Hafnarstjórn samþykkir að fela
framkvæmdanefndinni, sem
annaðist frumkönnun á fram -
tíðarhafnarsvæði hafnarinnar, að
vinna áfram að málinu í samræmi
við ákvarðanir hafnarstjórnar.
Í henni eru Eyjólfur Sæ munds -
son, formaður, Ingvar Viktorsson
og Ólafur Ingi Tómasson.
4. Flutningur flotkvíar,
slippur, Óseyrarbraut 31 ofl.
Lögð fram 21. fundargerð verk -
fundar um flutning flotkvíar frá
Háabakka.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir
verk fundi fyrr um morgun 6.
febrúar.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. febrúar 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Er íslenska efnahagskerfið að hrynja? Danir eru
duglegir að spá því en íslenskir sérfræðingar vísa
því á bug og benda á góðar afkomutölur íslenskra
fyrirtækja og á þá staðreynd að hlutabréfaverð
hafi aðeins fallið um þá miklu hækkun sem varð
á þeim sl. tvö ár. Aðeins?
Hafnarfjarðarbær kemur illa út úr léttri könnun
Vísbendingar sem þó ber að taka alvarlega enda
er könnunin unnin upp úr uppgjöri bæjarins fyrir
árið 2006 þar sem kemur fram að við erum
gríðarlega skuldseig, skuldum 1,8 sinnum tekjur þess árs og rekstrar -
niðurstaðan var neikvæð. Í ár á að framkvæma fyrir 6,7 milljónir kr.
sem ekki verður tekið upp úr vasanum og kallar á lántökur. Það er
glæsilegt að framkvæma mikið en hættulegt þegar farið er hraðar en
efnahagurinn leyfir og verður sennilega til þess að veikja fjár -
hagslega stöðu bæjarins. Það vekur athygli í einkunnagjöf
Vísbendingar að á meðan Hafnarfjörður er í næst neðsta sæti
sveitarfélaganna 38 er Kópavogur í 6. sæti en ekki eru mörg ár síðan
Kópavogur var kominn á válista hjá Félagsmálaráðuneytinu en
sveitarfélagið hefur rétt verulega úr kútnum síðan á meðan Hafnar -
fjörður situr í frekar vondum málum.
En Hafnfirðingar greiða ekki fyrir breikkun Reykjanesbrautarinnar
frá Kaldárselsvegi og suður fyrir Hellnahraun, það gerir ríkissjóður
og við fögnum vegabótunum. Brautin verður lækkuð um allt að 3
metra ofan Hvamma til að bæta hljóðvist og mislæg gatnamót verða
sett við Krýsuvíkurveg þaðan sem tenging verður sett við
Hvaleyrarholtið sem margir hafa eflaust beðið lengi eftir.
Umferðarteppur á annatímum í gegnum Garðabæinn hamla okkur en
á því verður vonandi ráðin bót í nánustu framtíð - með stokki!
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 17. febrúar
Sunnudagaskólinn kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri
Guðsþjónusta kl. 13.00
Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Samvera með fermingarbörnum og foreldrum
Í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagur 17. febrúar
Messudagur Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju
Guðsþjónusta kl. 11
Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason
Kantor: Guðmundur Sigurðsson. Kór: A Capella
Kvenfélagskonur lesa ritningarorð, leiða bænir og gegna
kirkjuþjónustu. Léttur hádegisverður í boði Kvenfélagsins í
Strandbergi eftir Guðsþjónustuna.
Sunnudagaskóli í Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma.
Fermingarfræðsla laugardag 16. febrúar
Börn úr Lækjarskóla kl. 10-11
Börn úr Hvaleyrarskóla kl. 11-12