Fjarðarpósturinn - 14.02.2008, Síða 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 14. febrúar 2008
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 17. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
Altarisganga.
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
Verið velkomin
www.frikirkja.is
Nú á dögum eru sálræn
og félags leg vandamál
ásamt reyk ingum, áfengis-
og fíkni efna neyslu, kyn -
sjúkdómum og ótíma bær -
um þungunum helsta heil -
brigðistengda ógnin sem
ungu fólki á vesturlöndum
stafar af. Í ljósi þess, má
fullyrða að ungl ingar
þarfn ist sérstakrar þjónustu
sem sniðin er að þörfum
þeirra og hjálpar þeim að takast á
við vanda málin. Sam kvæmt
rannsókn Sól eyjar Bender (1999)
fara ungl ingar á Íslandi að stunda
kynlíf að jafn aði fyrr en jafnaldrar
þeirra í hin um ýmsu nágranna -
löndum. Samfara því verða fleiri
unglings stúlkur ófrísk ar hér á
landi en á hinum Norð ur lönd -
unum. Þá sýndi einnig rann sókn
sem Lýðheilsu stöð gerði í sam -
starfi við Há skólann á Akur eyri
(2005-2006), að aðeins 66%
þeirra sem höfðu stundað kynlíf
not uðu smokkinn við síðustu
kynmök.
Unglingamóttaka stofnuð
Árið 2000 var stofnuð svo köll -
uð unglingamóttaka við Heilsu -
gæsluna Sólvang í Hafnarfirði þar
sem störfuðu hjúkrunarfræðingur
og læknir. Markmið móttökunnar
var að unglingar á aldrinum 14 –
20 ára, búsettir í Hafnarfirði og á
Álftanesi, hefðu aðgang að þeim
úr ræðum sem voru í boði. Stefnt
var að því að ungt fólk gæti stuðl -
að að kynheilbrigði, komið í veg
fyrir ótímabærar þunganir, kyn -
sjúkdóma og afleiðingar þeirra. Þá
var einnig markmið að hvetja til
heil brigðra lifnaðarhátta ungs
fólks með því að greina og hafa
áhrif á áhættuhegðun þeirra, að
greina tilfinningalegan vanda og
bregðast við honum. Fyrsta árið
sem móttakan var starfrækt voru
komur um 100 talsins og fjölgaði
þeim jafnt og þétt. Árið 2005 voru
þær komnar upp í 274.
Unglingamóttökunni lokað
Sumarið 2007 var unglinga -
móttökunni lokað vegna fjár -
skorts. Lokunin var afar óæskileg
því samkvæmt mati þeirra sem til
þekkja er brýn þörf á úrræðinu. Til
þess að athuga þessa meintu þörf
gerðu greinarhöfundar óformlega
könn un á notkun móttökunnar og
hvort forsenda væri fyrir að opna
hana á ný. Farið var í grunn- og
framhaldsskóla Hafnarfjarðar og
spurn ingarlisti lagður fyrir nem -
endur. Í ljós kom að mikill meiri -
hluti, eða 92% svarenda, töldu
þörf á móttöku í Hafnarfirði. Þá
kom einnig í ljós að sú þjónusta
sem flestir vilja fá hjá slíkri mót -
töku er fræðsla tengd kyn heil -
brigði en jafnframt vilja margir
þjón ustu vegna andlegrar van -
líðunar eða geðrænna vandamála.
Brýn þörf á að opna á ný
Samkvæmt niðurstöðum þess -
arar könnunar er brýn þörf á því
að opna unglingamóttökuna á ný
og er okkar tillaga sú að það verði
gert hið fyrsta. Það eru ekki hjúkr -
unarfræðingar starfandi í fram -
halds skólum Hafnar fjarð ar og þar
fer ekki fram skipu lögð kyn -
fræðsla né þjónusta fyrir ungt fólk
hvað varðar kyn heil brigðismál.
Eina kyn fræðslan sem hafnfirskir
ungl ingar fá fer fram í ungl inga -
deild grunn skólans. Ungl inga -
mót takan er mikilvægur þáttur í
for varnarstarfi sem felst í fræðlu
og ráðgjöf um kynheil brigðis mál
og fleira.
Þær mörgu komur á ungl inga -
mót tökuna, meðan hún var starf -
rækt, og sú staðreynd að ungl -
ingarnir telja hana eins mikil væga
og raun ber vitni, gefur til kynna
að nýt ingin réttlæti kostn aðinn.
Að sama skapi er for varnar gildi
unglinga móttökunnar, eitt og sér,
réttlætanlegt til endur opnunar.
Síðast en ekki síst, er hægt að full -
yrða að hlutverk móttökunnar,
sem er að stuðla að aukinni lýð -
heilsu og auknum lífsgæðum hjá
unglingum, réttlæti fullkomlega
starf semi hennar.
Samkvæmt stefnuskrá Sam -
fylk ingar innar er stóraukin áhersla
lögð á forvarnir og eflingu heilsu -
gæslu með áherslu á fjölbreytni í
þjónustu, ráðgjöf og upplýsinga -
miðlun. Í samræmi við niður stöð -
ur könnunarinnar og stefnu skrá
Samfylkingarinnar, skorum við á
núverandi bæjarstjórn í
Hafnarfirði að opna unglinga -
móttök una á ný.
Höfundar eru útskriftarnemar í
hjúkrunarfræði við Háskóla
Íslands.
Hvers virði er heilsa
unglinganna okkar?
Sigrún Katrín
Kristjánsdóttir
Ragnheiður Hera
Sigurðardóttir
w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
ER HÚSIÐ ÞITT GULLMOLI?
STYRKIR TIL HÚSVERNDAR - HÚSEIGENDUR
HVATTIR TIL AÐ SÆKJA UM
Hafnarfjarðarbær veitir árlega húsverndarstyrki til
mannvirkja í elstu hverfum bæjarins sem sér stakt
varðveislugildi hafa af menningar sögu legum eða list -
rænum ástæðum.
Áhersla er lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra
byrði húsa s.s. glugga og klæðningu til upprunalegs horfs
og því er hér ekki um að ræða styrki til venjubundins
viðhalds t.d. vegna máln ingar.
Umsækjendum er bent á að afla sér nánari upplýsinga og
kynna sér samþykktir um styrkina, sjá:
www.hafnarfjordur.is/husvernd
Samþykktir um styrkina og þar tilgerð eyðublöð, fást
einnig í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strand götu 6.
Styrkumsókn skulu fylgja greinargóðar upp lýsingar um
áætlaðar framkvæmdir, kostnaðar áætlun og ljós -
mynd.
Umsókn skal berast eigi síðar en 19. febrúar 2008,
merkt „Umsókn um húsverndarstyrk 2008“.
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR SÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR.IS
Gerður Hannesdóttir • 865 4052 • 565 1045 • ghmg@simnet.is
NÝR LÍFSSTÍLL
— þyngdarstjórnun • ráðgjöf
Fríar prufur