Fjarðarpósturinn - 14.02.2008, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. febrúar 2008
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR SÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR.IS
AFGREIÐSLA BÆJARSTJÓRNAR
HAFNARFJARÐAR Á
AUGLÝSTRI TILLÖGU AÐ
DEILISKIPULAGI
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og bygg ingarlaga
nr. 73/1997 m.s.br., er hér auglýst afgreiðsla bæjar -
stjórnar Hafnar fjarðar á eftir farandi deiliskipulagstillögu:
Hafnarfjörður – miðbær, Strandgata 26-30
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997
m.s.br. hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt þann
11. desember 2007 tillögu að breyttu deiliskipulagi
Hafnarfjörður – miðbær, Strandgata 26-30. Málsmeðferð
var skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofan greind lög
mæla fyrir um.
Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild
Stjórnartíðinda þann 11. febrúar 2008.
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála úrskurðaði 24.
janúar sl. að samþykkt deili -
skipulag fyrir lóðina Hamars -
braut 17, sem bæjarstjórn Hafn -
ar fjarðar samþykkti 27. júní
2006 væri fellt úr gildi.
Í febrúar 2005 hélt skipulags-
og bygingarráð forstigss kynn -
ingu á tillögu sem gerði ráð fyrir
að lóðinni, sem er 1.478 m², yrði
skipt í tvennt, byggt yrði við
núverandi hús sem er 169 m² og
reist parhús. Andmæltu 32 íbúar
við Suðurgötu og Hamarsbraut
en töldu sig geta sætt sig við
einbýlishús í stíl sem einkenndi
hverfið. Var leitað umsagnar
Fronleifaverndar ríkisins vegna
steinrústa bæjarins Steina eða
Steinsstaða. Í framhaldi af þessu
var ákveðið að laga skipu lagstil -
löguna og gera ráð fyrir einu ein -
b ýlishúsi til viðbótar nú verandi
húsi. Ný og breytt tillaga var svo
kynnt og komu athuga semdir og
var tillögunni hafnað á fundi
skipulags- og bygg ingar ráðs 4.
október 2005 og var skipu -
lagsstjóra falið að vinna for sögn
að deili skipu lagstillögu sem
gerði ráð fyrir einni nýbyggingu
á lóðinni og skyldi mótun húss
taka mið af viðkvæmu umhverfi
í fastmótaðri byggð. Var sam -
þykkt að auglýsa þessa tillögu og
var gert ráð fyrir að lóðinni yrði
skipt upp í 407 m² lóð með
núverandi húsi með stækk -
unarmöguleikum og nýtingar -
hlutfalli 0,58 og 708 m² lóð með
311,5 m² tveggja hæða steinhúsi
með bílskúr. Jafn framt var gert
ráð fyrir fram lengingu Ham ars -
brautar og skyldi gatan vera á
bæjarlandi. Eftir auglýsingu þar
sem tillagan var kynnt sem
breyting á deiliskipulagi vegna
nýs skipulags á lóðinni, komu
athuga semdir fram, m.a. frá
kæranda og var athuga semd um
svarað 30. maí og 6. júní 2006.
Bæjarstjórn sam þykkti svo til -
löguna eins og áður segir 27. júní
sama ár.
Vísuðu íbúar að Suðurgötu 45
og 47 málinu til úrskurðar -
nefndar innar. Málsrök kæraenda
var að ekki hafi verið tekið tillit
til ábendinga þeirra og töldu þeir
að útsýni yrði skert sem ekki ætti
að gera ráð fyrir í gróinni
byggð.Hafnarfjarðarbær hafnaði
rökum kærenda.
Úrskurðarnefndin taldi að ljóst
væri að við gerð umrædds deili -
skipulags hafi ekki verið tekið
tillit til þeirra grundvallar sjónar -
miða sem líta ber til við skipu -
lagsgerð, þ.e. að deili skipulag
skuli að jafnaði taka til svæða
sem myndi heildstæða einingu
og skuli að jafnaði ekki taka til
minna svæðis en götu reits. Ekki
var til deiliskipulag að svæðinu
fyrir og þótti ákærunefndinni
ágallar á hinni kærðu ákvörðun
það miklir að leiða ætti til ógild -
ingar og úrskurðaði að sam -
þykktin væri úr gildi fallin.
Úrskurðarnefnd ógilti sam þykkt
deili skipulag á Hamarsbraut
Ekki lagastoð fyrir skipulagi á einni lóð á ódeiliskipulögðu svæði
Búið er að lengja Hamarsbrautina samkvæmt nú ógildu skipulagi.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Hamar dró línuskipið Tómas
Þorvaldsson inn til hafnar á
sunnudaginn og lagðist skipið að
bryggju um kl. 14 eftir um 12
tíma drátt af Jökuldjúpi, vestur af
Faxaflóa þaðan sem Hrafn GK
hafði dregið skipið en Þorbjörn í
Grindavík gerir bæði skipin út.
Tómas er 334 brúttórúmlesta,
tæplega 50 m skip var að veiðum
þegar gírinn gaf sig en að sögn
skipverja var veiðin dræm.
Dregið til hafnar
með bilaðan gír
Tómas Þorvaldsson GK 10 dregið frá Jökuldjúpi
Hamar dregur en Þróttur er til aðstoðar utan við Langeyri.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Þau voru glæsilega búin,
krakkarnir sem tóku þátt í
Grímutölti hestamannafélagsins
Sörla á laugardaginn og margir
hestanna voru einnig skreyttir.
Fjölmargir komu til að horfa á
enda stórskemmtilegt að fylgjast
með krökkunum í búningum
sínum á hestunum.
Þátttakendur voru fjölmargir
og var keppt í 6 flokkum og voru
yngstu keppendurnir ekki háir í
loftinu en þeir elstu voru komnir
aðeins yfir unglingsárin svo
þarna voru ekki bara börn.
Komu knaparnir inn á hestum
sínum í litlum hópum og var
knapi, hestur og búningur
kynntur. Verðlaun voru veitt fyrir
besta töltið í hverjum flokki auk
þess sem búningaverðlaun voru
veitt. Úrslitin má sjá á heimasíðu
Sörla, www.sorli.is
Glæsilegir krakkar á hestum
Árlegt grímutölt var haldið á Sörlastöðum um helgina
Jólasveinninn kom á ný til byggða.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Glæsileikinn leyndi sér ekki.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Á útsendum fasteignagjalda -
seðlum frá Hafnarfjarðarbæ urðu
þau mistök að gjalddaginn er
sagður vera sá fyrsti af ellefu.
Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt,
heldur er þetta fyrsti gjalddagi af
sex og hefur Hafnarfjarðarbær
sent frá sér tilkynningu þar sem
þessi mistök eru hörmuð.
Ekki 11 gjalddagar
Villa á útsendum fasteignagjaldaseðlum