Fjarðarpósturinn - 14.02.2008, Qupperneq 5
www.fjardarposturinn.is 5
Fyrir tæpum fjórum árum síðan
ákváðum við skötuhjúin að flytjast til
Hafnarfjarðar, ein af
mörg um ástæðum þess
var sú einstaka fjöl skyldu -
stefna sem Sam fylk ingin
„hafði“ að leiðar ljósi. M.a.
góð ir leik skólar/ skól ar, frí
íþrótta þátt taka barna fram
til 12 ára aldurs o.s.frv.
Á þessum árum sem við
höfum búið í Hafn arfirði
höfum við eign ast annað
barnið okk ar sem fæddist
fatl að og er hún 2½ árs. Hún fæðist
með Williams heil kenni og fannst
okkur við hafa himin höndum tekið
sumarið 2006 þegar skólaskrifstofa
Hafn arfjarðar hringdi og bauð henni
pláss á glæsilegum leikskóla, Stekkj -
ar ási sem forgangsbarni. Í byrjun
sept ember 2006 byrjar hún skóla -
göngu sína þar, búið var að ráða 100%
stuðn ing fyrir hana eins og Grein -
ingarstöð ríkis ins hafði fyrir lagt og
var hún í vistun frá kl. 8-16 á daginn.
Allt gekk þetta vel fyrstu mán uðina,
en þegar hún var búin að vera 4 mán -
uði á leikskólanum þá missir hún
stuðn ingsaðilann og jafn framt var
skertur viðverutími hennar á leik -
skólanum vegna mann eklu um 2 klst
á dag, þannig að hún var frá kl. 8-14
jan.-feb. árið 2007 með nýjum
stuðningi. Við ákváðum að sýna leik -
skól anum þolin mæði en að sjálfsögðu
bitnaði þetta á mínum vinnu veit anda.
Það kórónaði allt saman þegar boðað
var til lokana á deild um í febrúar 2007
hvern áttunda virkan dag, þá runnu á
mig tvær grímur, átti nú eldri dóttir
okkar sem var á sama leikskóla að líða
fyrir mann ekl una líka, en þar fengum
við undanþágu þar sem sú yngri leið
fyrir „mikla“ skerðingu þá þegar.
1. mars 2007 byrjar loks þroska -
þjálfi, manneskja sem kunni sitt fag,
þá fór daman okk ar að taka við sér í
líkamlegri getu og byrjar að labba rétt
fyrir tveggja ára afmælið sitt. Það var
stór munur á barninu okkar í líkam -
legum burðum og vorum við afar sátt,
hún þarf daglegar æf ingar sem fara
fram á leik skólanum á virkum dögum
en heima um helgar. Þegar líður und -
ir lok ársins 2007 er mér til kynnt að
þroska þjálf inn sé að hætta störfum á
Stekkj ar ási en það sé þegar byrjað að
aug lýsa stöðu henn ar. Þeg ar þarna var
komið við sögu var barnið búið að
ganga á milli þriggja stuðn ingsaðila á
rétt rúmu ári og sá um við frammá að
hún fengi fjórða aðil ann sem stuðn -
ing. Í lögum kveð ur sterkt á að fatlaðir
ein staklingar eiga rétt á fullri þjón ustu
á við heilbrigðan ein stakl ing. Búið var
í rauninni að brjóta á henni á fyrsta
árinu hennar í leikskólanum bara með
því að skerða hennar viðverutíma og
hennar réttur til fagaðila sem stuðn -
ing.
Núna er hún annað árið í leik -
skólanum Stekkjarási og búið er að
brjóta á henni í annað skiptið með því
að hún hefur engan stuðning haft frá
áramótum. Starfs fólk leikskólans
gerir sitt besta en vegna manneklu fær
hún ekki þær æfingar í leik skól anum
sem hún þarf daglega til að þroskast
og dafna líkt og fagaðilar leggja fyrir.
Núna frá og með 4. febrúar eru
byrjaðar lokanir á leikskólanum
Stekkjar ási vegna manneklu, börnin
skulu vera heima 1 dag í viku sem
gera rúma 4 daga á mán uði. Þar sem
ég gegni starfi innan foreldrafélags
leikskólans og er formaður þess fór ég
ásamt öðrum stjórnarmeðlimi á fund
bæjarstjórans, fræðslu -
stjór ans, þró unarstjórans
og formans fræðslu ráðs
til að ræða yfir vof andi
lokanir, það kom bók staf -
lega ekkert út úr þeim
fundi annað en að fundir
yrðu haldnir á hverri deild
leikskólans fyrir sig sem
var gert. Okkur var bent á
að Hafnar fjarðarbær
hefði gert ýmislegt á
síðasta ári til að laða að fólk til starfa,
bjóða starfs mönn um frítt í sund,
námskeið og bætt auka álög um ofan á
laun kenn ara/ leikskólakennara, leið -
bein anda, styrkur til íþróttaiðk un ar
o.s.frv. Ábyrgðinni var velt yfir á
foreldra á þessum fundum fannst mér
með þá skýringu að það sækti enginn
um þegar auglýst væri.
Ég í raun skil ekki hvar bæj ar -
yfirvöld eru í þessum heimi, Hafn ar -
fjarðarbær er ekki að gera neitt nýtt
sem einkageirinn er ekki að gera og
hef ur gert til fjölda ára. Bæjaryfirvöld
hafa ber sýnilega engan vilja til að
halda í starfsmenn svo ekki þurfi að
koma til skerðingar á þjónustu við
bæjarbúa. Þau sultarlaun sem hið
opinbera er að bjóða fólki dug ir ekki
til hnífs og skeiðar fyr ir 4 manna
fjölskyldu. Ég hóf sjálf störf við einn
grunnskóla Hafnar fjarðar í byrjun
janúar mán aðar þessa árs sem
matráður, en ég er með 6 ára iðnnám
á bak inu og menntuð sem matreiðslu -
meist ari og eru 19 ár síðan ég
útskrifast. Eftir heilan mánuð í 80%
starfi fæ ég útborgað 116 þús und
krónur, ég er að fara ykk ur til fróðleiks
18 ár aftur í laun um. Svo eru bæjar -
yfirvöld hissa yfir því af hverju þeim
helst ekki á starfsfólki? Þetta starf
kalla ég sjálf boðavinnu og má hið
opin bera vera heppið að þó svo marg -
ir vinna í sjálfboðavinnu í leik- og
grunnskólum bæjarins og eiga
kannski maka sem heldur þeim uppi.
Vissulega má líka kenna verka -
lýðsfélögum um, en það er önnur
saga. En mér þætti fróð legt að sjá
hvort bæjar stjórnin, bæjarstjórinn,
fræðslu stjórinn og þróunarstjóri
bæjar ins gætu lifað af þessum laun -
um.
Hafnarfjörður er ekki bær sem er
fýsilegur kostur fyrir barna fjölskyldur,
þar sem foreldrar geta ekki treyst
bæjaryfirvöldum fyrir að halda uppi
lág marks þjónustu við þær svo fólk
geti unnið úti til að hafa ofan í sig.
Fólk umber lokanir kannski einu
sinni, en ekki tvisvar líkt og er að
gerast núna.
Höfundur er formaður
foreldrafélags leikskólans
Stekkj ar áss.
Mannekla í leikskólum Hafnarfjarðar
Margrét
Össurardóttir
Strandgata 55
220 Hafnarfjörður
Iceland
Tel: 565-1213
Fax: 565-1891
vikings@fjorukrain.is
Ny hljomsveit
a Fjorukranni
Hilmar Sverrisson, Vignir Ólafsson, Hlöðver Guðnason, Georg Ólafsson, Hermann Ingi Hermannsson.
Föstudagskvöld:
hin magnaða nýstofnaða hljómsveit Keltar
(uppistaðan gömlu Paparnir, með sinn
fyrsta dansleik).
Laugardagskvöld:
Rúnar Þór og hljómsveit,
eins og honum er einum lagið
Fimmtudagur 14. febrúar 2008