Fjarðarpósturinn - 14.02.2008, Qupperneq 6
Skrifstofuhúsnæði til leigu á
Strandgötu í Hafnarfirði, ca. 80
fm, skiptist í fjögur herbergi.
Uppl. í s. 899 8121
Leiguíbúð í Áslandi óskast.
Hjón með tvö börn óska eftir 3-4
herbergja leigubúð í Áslandi frá
1. apríl eða 1. maí.
Erum reyklaus og reglusöm.
Uppl. í síma 694 5517,Kristín.
Heimasmíðaður tréskjöldur með
sporðdreka framan á tapaðist
framan við Fjörukrána. Eigandinn,
ungur drengur saknar hans mjög.
Finnandi hringi vinsamlegast í s.
555 3285 eða 867 5294.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Húsnæði óskast
Tapað - fundið
Húsnæði í boði
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. febrúar 2008
Eldsneytisverð
13. febrúar 2008 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 134,2 137,8
Atlantsolía, Suðurhö. 134,2 137,8
Orkan, Óseyrarbraut 134,1 137,7
ÓB, Fjarðarkaup 134,1 137,7
ÓB, Melabraut 134,2 137,8
Skeljungur, Rvk.vegi 137,9 142,4
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Yvonne Tix
ÞAÐ ER TIL LAUSN!
AA fundur • Kaplahrauni 1
miðvikudaga kl. 19.45
Snotur staður í
hjarta Hafnarfjarðar
er til útleigu fyrir
hvers kyns
viðburði.
Salurinn tekur um
65 manns sitjandi
en um 100 manns
standandi.
Upplýsingar hjá Lindu
í síma 898 6412
Salur til leigu
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilarHERBALIFE
Gasfélagið ehf Straumsvík óskar eftir að
ráða starfsmann í almenn störf sem fyrst.
Vinnutími er frá kl. 8-16 daglega.
Viðkomandi þarf að vera
samviskusamur og stundvís.
Umsóknir sendast á Gasfélagið, Straumsvík,
230 Hafnarfjörður eða gasfelagid@simnet.is
Starfsmaður óskast
Skv. upplýsingum Hagstof -
unnar fluttu 2870 einstaklingar
inn an Hafnarfjarðar á síðasta ári
eða tæp 12% íbúanna. Fjölgar
þeim um 27% á milli ára. Til
bæjar félagsins fluttu 3.151 en frá
því 2.286 og aðfluttir umfram
brott flutta eru því 865 talsins en
var 988 árið 2006 en ekki nema
279 árið 2005. Af þessum 865
voru þeir sem fluttu milli landa
395 en 834 fluttu til bæjarins frá
út löndum og 439 fluttu til út -
landa.
Í Garðabæ voru 308 fleiri
aðflutt ir en brottfluttir, 1.294
fluttu til sveitarfélagsins en 986
fluttu frá því. Fjölgar aðfluttum
umfram brottflutta um 259 frá
árinu á undan. 554 fluttu innan
sveitarfélagsins eða tæp 6%
íbúanna en þeim fjölgaði um
32% á milli ára.
Á Álftanesi voru 54 fleiri
aðfluttir en brottfluttir, 304 fluttu
til sveitarfélagsins en 250 fluttu
frá því. Hins vegar fluttu 97
innan sveitarfélagsins sem er
fjölgun um 62% á milli ára.
Ríkisfang íbúanna
Til fróðleiks má geta að 5,8%
íbúa Hafnarfjarðar voru með
erlent ríkisfang 1. desember sl.,
3,9% íbúa Garðabæjar og 2,4%
íbúa Álftaness. Pólverjar eru
flestir þeirra sem bera erlent
ríkisfang í Hafnarfirði alls 676,
64 í Garðabæ og 13 á Álftanesi,
næst flestir eru Litháar í Hafn -
arfiði 97 og þá Danir sem eru 64.
Hafði Pólverjum fjölgað um
125% frá árinu 2006.
Tæp 12% íbúanna skiptu
um íbúð á síðasta ári
Aðeins tæp 6% íbúa Garðabæjar
skiptu um íbúð á sama tíma
Í kvöld, fimmtudag, kl. 20-22
verður sagnakvöld í Straumi við
Straumsvík í boði Hafnar -
fjarðarbæjar, Viking Circle og
sjf. Menningarmiðlunar.
Hraunin og Hraunafólkið.
Hraunin vestur af Straumsvík má
flokka sem menningarlandslag
því þar má rekja búsetu allt frá
land námstíð fram á miðja síðustu
öld. Fjöldi rústa er í Hraununum
sem tengjast bæði landbúnaði og
sjósókn fyrri tíma, auk þess sem
landið er ríkt af örnefnum,
gömlum götum og sögnum.
Lovísa Ásbjörnsdóttir, jarðfræð -
ingur mun segja frá örnefnum í
Hraun unum, fornum bæjar hús -
um og síðustu ábúendum á
Óttarsstöðum eystri og í Eyðikoti
sem voru forfeður hennar.
Bernskuminningar. Aðal heið -
ur Guðmundsdóttir, íslensku -
fræðingur og aðjunkt við Há -
skóla Íslands, segir frá æsku
sinni í Straumi. Fjölskylda Aðal -
heiðar fluttist að Straumi árið
1971, um það leyti sem hún átti
að hefja skólagöngu. Hún segir
frá leigubílaferðum sínum til og
frá skóla, könnunarferðum um
hraunið og nánasta umhverfi,
dýralífi í kringum bæinn, óvæntu
hlutverki í heimildarmynd, bú -
rekstri foreldra sinna og ýmsu
fleiru.
Reykjanesgoði. Haukur Hall -
dórsson, Reykjanesgoði og ábú -
andi í Straumi, fer vítt og breitt
um Reykjanes, þar sem hann
fjallar um dísir, álfa, rostunga og
jólasveina. Haukur hefur ásamt
Sverri Sigurjónssyni, listamanni
komið upp magnaðri sýningu
Edduheima í Straumi og verður
sýningin opin gestum á
sagnakvöldinu.
Fjöldasöngur og heitt á
könnunni
Á milli atriða verður fjölda -
söng ur og heitt á könnunni. Til -
valið að taka með sér vinkonur
og vini og skella sér á sagna -
kvöld, njóta menningararfleiðar
og veitinga. Bókin Sagnaslóðir á
Reykjanesi I sem byggir á efni
fyrri sagnakvölda verður seld á
sérstöku tilboðsverði.
Hraunfólk og rostungar
á sagnakvöld í Straumi
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR SÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR.IS
SLÁTTUR Á OPNUM
SVÆÐUM Í HAFNARFIRÐI
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í grasslátt á
opnum svæðum í Hafnarfirði.
Verkið felur í sér slátt á opnum svæðum bæjarins sam -
kvæmt nánari tilvísun verkkaupa, alls 46,3 hektarar
(463.000 m²). Um er að ræða manir með mismiklum halla
og slétt svæði.
Útboðsgögn verða seld í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar,
Strandgötu 6, frá og með mánudeginum 18. febrúar
2008. Verð kr. 2.000,-
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 5. mars
2008, kl. 10.00.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Minningabókin
Hægt er að nálgast minningar -
bókina, sem gefin var út í tilefni
100 ára afmæli Hafnarfjarðar, í
þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar.
Þessar tvær ungu stúlkur stóðu og spjölluðu við spegil.
Spegilmynd í Hafnarfjarðarkirkju
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n