Fjarðarpósturinn - 17.04.2008, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 17. apríl 2008
www.hafnarfjardarkirkja.is
Aðalsafnaðarfundur
í Hafnarfjarðarsókn 4. maí 2008
Aðalsafnaðarfundur í Hafnarfjarðarsókn verður haldinn
4. maí nk. í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
og hefst fundurinn að lokinni messu kl. 12.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
2. Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga sóknar og kirkjugarðs fyrir s.l. ár.
3. Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundar
4. Prestar flytja skýrslur.
5. Kosning sóknarnefndarmanna og jafn margra varamanna til 4ra ára.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna og varamanna þeirra til árs.
7. Kosning aðal-og varafulltrúa í stjórn Kirkjugarðs Hafnarfjarðar.
8. Önnur mál.
Sóknarnefnd
Leikfélag Hafnarfjarðar frum -
sýndi nú um helgina leikverkið
Barnið eftir Edward Albee við
góðar undirtektir. Verkið er
skrifað í anda absúrd verka
fimmta áratugarins, verka
Ionesco og Beckett en þó með
sterkri tilvísun til stöðu mannsins
í nútímanum. Verkið fjallar um
stúlkuna og strákinn sem eignast
barn og njóta lífsins í fullkomnu
sakleysi og án truflana frá hinum
ytri heimi. Þegar maðurinn og
konan koma inn í líf þeirra breyt -
ist allt og spurningarnar um
kvöl ina og völina verða áleitnar.
Í verkinu takast á launfyndnar
uppákomur og grátleg atvik.
Verkið er þýtt af 18 ára stúlku,
Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur
sem einnig leikur í verkinu
jafnfram því að vera nýr
formaður Leikfélagsins en
leikstjóri er Lárus Vil hjálms son
og lýsing er í höndum Ingvars
Bjarnasonar.
Leikarar í verkinu eru fjórir:
Guðrún Sóley Sigurðardóttir,
Kristín Svanhildur Helgadóttir,
Tryggvi Rafnsson og Víðir Örn
Jóakimsson.
Að venju býður leikfélagið
bæjarbúum á þriðju sýningu
verksins þeim að kostnaðarlausu
annað kvöld kl. 20. Verkið er
sýnt í Gamla Lækjarskóla og
þarf að panta miða í síma 848
0475 eða með pósti á leik -
felagid@simnet.is – fyrstir koma
fyrstir fá.
Sýningar verða 18., 19. og 20.
apríl, 4., 10., 11. og 17. maí.
Barnið sýnt hjá Leikfélaginu
Bæjarbúum boðið á leiksýningu annað kvöld
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Við opnum nýja verslun
laugardaginn 19. apríl kl 13:00
að Tjarnarvöllum 11, Hafnarfirði
-Hafnarfjörður
Kristín, Guðrún Sóley og Víðir Örn í hlutverkum sínum.