Fjarðarpósturinn - 10.07.2008, Qupperneq 2
Jaðarleikhúsið sýnir
Superhero
Superhero er dramatískur gamanleikur
um ungan mann sem býr við stöðugt
ofríki foreldra sinna. Þegar foreldrar
hans falla skyndilega frá verður hann
að læra að taka eigin ákvarðanir,
áskorun sem í hans augum er nánast
óyfirstíganleg. Hann leitar því
leiðsagnar hjá ofurhetjunum sem hann
kynntist í barnæsku.
Verkið er samið af leikstjóranum,
Eyrúnu Ósk Jónsdóttur, en það var
sérstaklega samið fyrir leikarann sem
flytur það, Erik Hakansson. Persóna
verksins byggir að sumu leyti á Erik
sjálfum, en Erik og Peter eru báðir afar
sérstakir menn sem upplifa heiminn á
annan hátt en við eigum flest að
venjast og tjá sig á einstakan hátt.
Verkið tekur þátt í einleikjahátíðinni Act
alone á Ísafirði en fjórar sýningar á
verkinu fara fram í Jaðarleikhúsinu,
Miðvangi 41, 9.-12. júlí kl. 20 og er
verkið flutt á ensku.
Árni Gunnlaugsson sýnir í
Hafnarborg
Árni Gunnlaugsson hæstaréttar lög -
maður hefur verið ötull í að mynda
Hafn firðinga en um 50 ár eru síðan
hann fór að taka myndir af eldra fólki á
förn um vegi í Hafnarfirði, aðallega af
þeim Hafnfirðingum sem lengi höfðu
átt þar heima. Hvatinn að þessum
ljósmynd um voru ljósmyndir eftir
Gunnar Rúnar frá árunum 1940-50 en
þær er að finna í tveimur bókum
Magnúsar Jónssonar kennara.
Á sýningunni eru um 400 ljósmyndir
af um 500 eldri Hafnfirðingum, sem
teknar voru á árunum 1960-92 og eru
allar svart hvítar. Myndirnar eru úr
safni 612 ljósmynda úr þremur bind -
um bókar Árna, ,,Fólkið í Firðinum”.
Sýningin stendur til 21. júlí.
„Hundrað“ í Hafnarborg
Byggðasafnið í Hafnarfirði hefur sett
upp sýninguna Hundrað en á henni eru
til sýnis ljósmyndir sem spanna
hundr að ára sögu Hafnarfjarðar kaup -
staðar ásamt örsögum. Sýningin
stendur til 21. júlí.
Sýning í Syrpu
Í Galleríinu Syrpu á 2. hæð Strandgötu
39 stendur yfir sýning á verkum þeirra
Bjarna Þ. Þórarinsson og Guðmundar
Odds Magnússonar. Sýningin er opin
virka daga kl. 12-18 og eru gestir
hvattir til að hringja dyrabjöllunni.
Kristbergur sýnir hjá SÍM
Kristbergur Ó. Pétursson sýnir
málverk í húsakynnum SÍM, Hafnar -
stræti 16 í Reykjavík. Verk hans standa
út mánuðinn, en opið er frá kl. 10-16
alla virka daga.
Kristbergur útskrifaðist úr Myndlista
og handíðaskóla Íslands árið 1985 og
úr Rijksakademie van Beeldende
Kunsten í Amsterdam árið 1988. Hann
er meðlimur í SÍM, Íslenskri grafík og
Félagi Nýlistasafnsins.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. júlí 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Hér í bæ er til nokkuð sem heitir Vinnuskóli
Hafnarfjarðar. Skv. heimasíðu skólans er ekki að
finna neinn skólastjóra heldur aðeins rekstrar -
stjóra, yfirmann skólagarða og einn yfir flokks -
stjóra. Á hverju sumri starfa hundruð barna við
skólann og vinna ýmis nytsamleg störf, sér -
staklega til fegrunar bæjarins og er þar af nógu að
taka. Þarna var ég strax búinn að segja „vinna“ en
ég hef alltaf verið skeptískur á að kalla þetta skóla
og gamla góða heitið „unglingavinnan“ er
kannski réttara. Ég hef áður tjáð mig um vinnuskólann og þar hafa
menn tekið gagnrýni af mikilli viðkvæmni. Það verður bara að vera
svo ef slíkt gerist nú. Mér varð hugsað til allra þeirra mynda í huga
mér af unglingum sitjandi á rassinum, með tónlist í eyrunum, reitandi
arfa eða skafandi gras á milli gangstéttarhellna, þegar ég ók um
hverfið mitt um daginn. Hópur unglinga sat flötum beinum í
götukantinum og skóf upp gras á milli kantsteins og gangstéttar.
Verkfærin voru stutt og margir voru nánast á sama stað. Síðar sá ég
afraksturinn og eflaust verður grasið komið í sama far eftir nokkrar
vikur. Ekki ætla ég að hneykslast út í krakkana, þeir vita ekki betur
en hvaða vinnubrögð eru það að sitja flötum beinum og dingla með
hendinni lengi á sama stað? Þau eru nú einu sinni í vinnuskóla og
hefði maður ætlað að þar læri maður réttu handbrögðin. Svo ég
minnist ekki á að þau læri að vinna hlutina á hagkvæman hátt og nota
aðferðir til að losna við þetta gras. Fá krakkarnir réttu verkfærin í
hendurnar? Eru sett markmið um árangur sem mældur er í tíma og
gæðum?
Auðvitað er ég að fjalla um málið út frá nokkrum myndum sem
hafa birst mér og ætla ég rétt að vona að þær gefi ekki góða mynd af
raunveruleikanum í Vinnuskólanum. Ég man mína stuttu tíð í
unglinga vinnunni, í málaraflokki þar sem eldri maður kenndi okkur
handbrögðin, ég man eftir að hafa fylgst með garðyrkjuflokkum fyrir
aldar fjórðungi, annar var marga daga að vinna verk sem hinn flokk -
urinn vann á einum degi og langtum betur. Þar munaði sennilega bara
flokksstjóranum, annað var ekki að sjá.
Guðni Gíslason
1. Bæjarráð, kosning
varaformanns júlí 2008
Á fundi bæjarstjórnar þann 10.
júní sl. var kosið í bæjarráð.
Kosningu hlutu sem aðalmenn:
Guðmundur Rúnar Árnason
sem jafnframt var kosinn for -
maður.
Ellý Erlingsdóttir
Guðfinna Guðmundsdóttir
Haraldur Þór Ólason
Rósa Guðbjartsdóttir
Áheyrnarfulltrúi Jón Páll Hall -
gríms son.
Sem varamenn voru kosnir:
Gunnar Svavarsson
Margrét Gauja Magnúsdóttir
Gísli Ó. Valdimarsson
Almar Grímsson
María Kristín Gylfadóttir.
Formaður bar fram tillögu um
Ellý Erlingsdóttur sem vara -
formann. Fleiri tillögur komu ekki
fram og var Ellý Erlingsdóttir
kosinn varaformaður með 5
atkvæðum.
7. Glacier World ehf, vatnskaup
Bæjarstjóri gerði grein fyrir
framvindu málsins.
Anna Jörgensdóttir staðgengill
bæjarlögmanns, Dagur Jónsson
vatnsveitustjóri og Már Svein -
björnsson hafnarstjóri mættu til
fundarins vegna þessa máls.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að
vinna áfram að málinu í samræmi
við umræður á fundinum.
9. Hamarsbraut 17, makaskipti
á lóðum
Lagt fram erindi Pálmars Harð -
arsonar sent í tölvupósti 26. júní
sl. varðandi makaskipti á hluta af
lóðinni Hamarsbraut 17 og lóðum
á Völlum 7.
Bæjarráð synjar erindinu.
12. Hafnarborg, erindisbréf
stjórnar
Tekið fyrir erindisbréf fyrir stjórn
Hafnarborgar en stjórnin sam -
þykkti það fyrir sitt leyti á fundi 1.
júli sl.
Bæjarráð í umboði bæjar stjórn -
ar Hafnarfjarðar staðfestir framlagt
erindisbréf.
Bæjarráð óskar jafnframt eftir
skoðun á stjórnskipulegri stöðu
Hafnarborgar gaganvart sam -
þykktum og stjórnsýslu Hafnar -
fjarðarbæjar með tilliti til gjafabréfs
dags. 1. jú´ní 1993.
26. Hitaveita Suðurnesja,
fyrirspurn vegna eignarhluta
Nú er eitt ár síðan gengið var frá
samkomulagi milli Orkuveitu
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar bæj -
ar um hugsanleg kaup OR á hlut
bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja,
að söluverðmæti um 8 milljarða
króna. Á bæjarstjórnarfundi 18.
des. sl var ákveðið að ganga að
tilboði OR og selja hlut Hafnar -
fjarðarbæjar í HS. Bæjarráðs -
fulltrúar Sjálf stæðis flokksins óska
eftir skriflegum upplýsingum fyrir
næsta bæjar ráðsfund, um stöðu
málsins nú í júlí 2008.
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagurinn 13. júlí
Morgunsöngur kl. 10.30
Prestur: sr. Kjartan Jónsson, héraðsprestur
Morgunkaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Allir velkomnir
Víðistaðakirkja
Helgistund á sumarkvöldi
sunnudaginn 13. júlí
kl. 20:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Balursbrá eða túttublóm eins og börnin kalla oft blómið.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n