Fjarðarpósturinn - 10.07.2008, Blaðsíða 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 10. júlí 2008
Competo – Jafningjafræðsla
Hafn arfjarðar er verkefni á
vegum Vinnuskóla Hafnarfjarðar
sem hóf sitt fjórða starfsár í
sumar. Í jafningjafræðslunni
starfa 7 ungmenni á aldrinum 16-
18 ára við að fræða starfsmenn
Vinnu skólans um fordóma og
ein elti. Markmið fræðslunnar er
að vinna gegn hvers kyns for -
dómum í samfélaginu, en lögð
hefur verið sérstök áhersla á
kynþáttafordóma, útlendinga -
hatur og fordóma gagnvart sam -
kynhneigðum. Fjallað er um
staðal myndir ýmissa hópa og
hvern ig þær móti hugmyndir
okk ar um annað fólk áður en við
kynnumst því – ef við þá kynn -
umst því á annað borð.
Eins og fyrr segir fjallar Jafn -
ingja fræðslan einnig um ein elti
og mikilvægi þess að allir skilji
hve alvarlegt það er. Lögð er
áhersla á að aldrei eigi að umbera
einelti og að allir eigi rétt á að
geta liðið vel innan um jafnaldra
sína, hvort sem það er í skól -
anum eða annars staðar.
Á heildina litið er markmið
Competo að stuðla að jákvæðum
og fordómalausum samskiptum
þar sem fólk kemur fram við
hvert annað af virðingu og
skilningi. Þannig líður fólki betur
með sjálft sig og samfélagið í
kring um sig.
Olga Eir Þórarinsdóttir og
Þorsteinn Kristinsson eru
verkefna stjórar Competo.
Fordómalaus
samskipti
Competo – Jafningjafræðsla Hafnarfjarðar
Sænskur leiklistahópur er
kominn í Fjörukrána og verður
fram í ágúst. Hann leysir af ólmi
víkingasveit staðarins á meðan
hún er í sumarfríi. Það verður því
ferskur blær yfir víkinga veisl -
unum en hópurinn mun einnig
flytja leikrit klukkan 18.30 til
19.30 á víkingasýningunum
„Vikingshow“, sem að sögn
Jóhannesar Viðars Bjarnason
hafa fengið mjög góðar viðtökur
en þær eru sérstaklega ætlaðar
erlendum gestum.
Þá byrja hinar eiginlegu vík -
ingaveislur og þar leikur hópur -
inn og syngur fyrir matar gesti.
Sænskur leiklistahópur og
víkingaveislur
Á 35 ára afmæli Fjarðarkaupa
gefur fyrirtækið, í samstarfi við
Plastprent, nýja umhverfisvæna
plastpoka sem framleiddir eru úr
efninu Mater-Bi sem er úr maís
og kartöflusterkju. Pokarnir eru
mjög sterkir og bera auð veld -
lega 12-15 kg þó þeir séu þynnri
en hefðbundnir pokar. Plast -
prent framleiðir pokana í sömu
vélum og hefðbundna plastpoka
en pokarnir brotna niður á 10-45
dögum við jarðgerð og pokar
unnir úr þessu efni eru því
tilvaldir undir matarleifar frá
heim ilum því þeir uppfylla kröf -
ur Evrópusambandsins um
urðun lífræns úrgangs.
Mater-Bi er mun dýrara en
hefðbundið plast en vinnslan er
alveg eins og segir Sigurður
Þor valdsson, sölustjóri Plast -
prents, að við fram leiðsluna
angi verksmiðjan af popplykt í
stað hefðbundinnar plastlyktar.
Í ljós hefur komið í rann -
sóknum að sterkur „fjöl nota -
poki“ úr plasti sé raunhæft ráð
til umhverfisverndar því sann að
sé, ólíkt því sem margir hafa ef -
laust talið til þessa, að orku notk -
unin við plast poka framleiðslu er
mun minni en við pappírs -
pokaframleiðslu.
Níðsterkir burðarpokar
úr maís og kartöflum
Fjarðarkaup og Plastprent gefa umhverfisvæna poka á afmæli Fjarðarkaupa
Jón Ernst Ingólfsson frá Plast -
prenti og Gísli Sigur bergsson
frá Fjarðarkaupum.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Kerra í
óskilum
Blá kerra með rauðri sessu er í
óskilum á lögreglustöðinni í
Hafnarfirði. Kerran er fyrir fatl -
að an einstakling.
Upplýsingar um kerruna gefur
Arnbjörn á lögreglustöðinni og í
s. 444 1140.
Eyrún Sif Helgadóttir, Hjördís Hera Hauksdóttir, Arnór Ingi
Sigurðsson og Ahd Abu Libdeh.
Horft yfir í Hlíð ar
og Ásland í
þokunni
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Frá námskeið í Gamla bókasafninu.
Listahópur Vinnuskólans er í
samstarfi við Leikfélag Hafnar -
fjarðar en í hópnum eru áhuga -
samir og efnilegir krakkar á
aldrinum 15-16 ára. Flokkstjórar
hópsins eru Hrefna Lind og
Klara Ósk.
Krakkarnir fá tækifæri til að
vinna við það að læra leiklist,
fram sögn og tjáningu og unnið
er meðal annars með spuna,
karakt er sköpun, rými og sam -
vinnu.
Listahópurinn var fyrrihluta
sumarsins í samvinnu við eldri
listahópinn og var með honum í
uppsetningu á barnaleikritinu
Töfraholunni sem sýnt var í
Gúttó fyrir leikskóla og leikja -
námskeið Hafnarfjarðar. Einnig
var hópurinn með atriði sem
hann vann upp úr sögunni
Draum ur á Jónsmessunótt eftir
William Shake speare og sýndi í
Hellis gerði á Jónsmessunni.
Eins og stendur er lista hóp -
urinn að vinna að lokaverkefni
sem heitir „Rúv – the musical“
sem verður frumsýnt í Hafnar -
fjarðarleikhúsinu þann 15. júlí
kl. 20. Sýningin er opin öllum
bæjarbúum og er frítt inn.
Listahópurinn býður
bæjarbúum á sýningu 15. júlí
Listahópurinn í fullum skrúða við æfingu á „Rúv - The musical“.